Ungmennaþing Ölfuss

 

Miðvikudaginn 16. maí verður ungmennaþing Ölfuss haldið í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss fyrir 15 – 25 ára Ölfyssinga. Þingið byrjar kl. 20.00 með því að þinggestum verður skipt í umræðuhópa eftir málefnum þar sem unnið verður að spurningum fyrir frambjóðendur beggja framboða. Að því loknu gefst tækifæri til að ræða við frambjóðendur og spurja þá um málefni unga fólksins í sveitafélaginu. Húsið opnar kl. 19.45 og boðið verður upp á pizzur.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?