🎉 Viltu taka þátt í Frístundamessu Ölfuss ?

Fyrirhugað er að halda frístundamessuna í íþróttahúsinu sunnudaginn 6. september frá kl. 11–13

Markmiðið er að gefa íbúum á öllum aldri tækifæri til að kynnast því fjölbreytta frístundastarfi sem er í boði í sveitarfélaginu.

Við viljum bjóða öllum félögum, samtökum, hópum og öðrum aðilum sem bjóða upp á frístunda-, íþrótta-, menningar- eða félagsstarf í Ölfusi að kynna starfsemi sína fyrir íbúum.

✨ Kynntu starfsemina þína
🤝 Hittu nýja og eldri íbúa eða tilvonandi íbúa
📣 Sýndu hvað þú hefur upp á að bjóða
💚 Vertu með í að gera frístundalífið í Ölfusi sýnilegt og fjölbreytt!

Tilkynnið þátttöku fyrir 4. september.

📩 ragnar@olfus.is

Tökum höndum saman og kynnum allt það góða starf sem fer fram í Ölfusi! 🙌

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?