| |
| 1. 2608056 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Akurholtssel 2, Ölfus | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt. | | |
|
| 2. 2607042 - Umsókn um deiliskipulag -eða breytingu - Birkiból 2, Ölfus | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Hugsa þarf breytingar á skipulaginu í heild sinni fremur en að hver og ein lóð sé skipulögð sérstaklega. Þá er í skipulaginu gert ráð fyrir fleiri en einni íbúð sem er ekki í samræmi við aðalskipulag. | | |
|
| 3. 2608039 - Umsókn um deiliskipulag -eða breytingu - Kinn (L212149), Ölfus | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 4. 2608071 - Nafnabreyting Akurholt 8 - Svartaskarð | |
| Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt með fyrirvara um samþykki Árnastofnun. | | |
|
| 5. 2609006 - Gönguþverun Ölfusbraut | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skoða þarf gönguþveranir á Ölfusbraut í heild, með hliðsjón af öðrum gönguþverunum sem þörf er á þegar Móahverfi er fullbyggt. | | |
|
| 6. 2607021 - Eima - Deiliskipulagsbreyting - Landbúnaðarlóðir | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin vill vekja athygli á að uppbygging á syðra svæðinu er orðin nokkuð þétt og ekki í fullu samræmi við strjálbýlisákvæði. Selvogur er merkilegt minjasvæði sem ber að varðveita og því telur nefndi rétt að deiliskipulagsbreytingin verði grenndarkynnt sérstaklega samhliða auglýsingu.
Málið var tekið til atkvæðagreiðslu: Samþykkt með 4 atkvæðum D lista 1 atkvæði S lista á móti
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal grenndarkynnt fyrir öðrum íbúum á svæðinu.
Berglind Friðriksdóttir lagði fram eftirfarandi bókun: Selvogur er einstakt menningar- og búsetulandslag þar sem saga byggðar, fornminjar, lágreist byggð, víðsýni og kyrrð mynda eina heild. Sérstaða svæðisins felst því ekki aðeins í einstökum skráðum minjum heldur einnig í samhengi þeirra við landslagið, byggðarmynstrið og þá ásýnd sem einkennir Selvog. Í Aðalskipulagi Ölfuss 2020?2036 er Selvogur skilgreindur sem hverfisverndarsvæði og þar er sérstaklega vísað til mikilla minja um byggð. Jafnframt kemur þar fram sú stefna sveitarfélagsins að vinna skuli að deiliskipulagi, rammahluta aðalskipulags eða verndarsvæði í byggð sem taki til verndunar umhverfis, byggðar og hugsanlegrar framtíðaruppbyggingar á svæðinu. Þá hefur sveitarfélagið áður lagt áherslu á að byggðamynstur Selvogs sé strjálbýlt og að ekki séu þar þyrpingar húsa. Við fyrri deiliskipulagsgerð fyrir Eimu var sérstaklega lögð áhersla á að hús yrðu stakstæð og í samræmi við þetta byggðamynstur. Nú liggur hins vegar fyrir tillaga sem felur í sér umtalsverða aukningu á byggingarheimildum á svæðinu, m.a. með nýjum lóðum og heimildum fyrir íbúðar-/frístundabyggð, gestahúsum og ferðaþjónustu. Undirrituð telur að við mat á slíkri uppbyggingu verði ekki eingöngu horft til þess hvort hægt sé að halda einstökum fornleifum óskemmdum. Ný uppbygging getur raskað þeirri heild án þess að einni einustu tóft sé raskað með beinum hætti. Meta verður áhrif uppbyggingarinnar á menningarlandslagið sem heild, þar með talið landslag, byggðamynstur, minjar, ásýnd, víðsýni og upplifun svæðisins. Sérstök ástæða er til að staldra við að nefndin hefur áður bent á að umfjöllun um MV4 í aðalskipulagi skorti þar sem skipulagið liggur yfir það svæði. Nefndin gerði jafnframt athugasemdir við umfang byggingarheimilda, m.a. mænishæð, staðsetningu byggingarreita og fjölda samliggjandi lóða á landbúnaðarsvæði. Að mati undirritaðrar hefur ekki verið sýnt fram á með nægilega heildstæðum hætti að fyrirhuguð uppbygging samræmist þeirri hverfisvernd og þeim verndarsjónarmiðum sem sveitarfélagið hefur sjálft sett fyrir Selvog. Ekki liggur heldur nægilega skýrt fyrir hvaða áhrif sú uppbygging sem hér um ræðir getur haft á heildarmynd Selvogs og framtíðarþróun svæðisins.
| | |
|
| 7. 2603068 - Hjarðarból - útvíkkun deiliskipulags - DSKbr | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 8. 2609007 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Endurheimt votlendis að sogni | |
| Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt. | | |
|
| 9. 2606035 - Árbæjarhverfi - Breyting landnotkunnar úr samfélagsþjónustu í íbúðasvæði ASKbr | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|