Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 467

Haldinn í fjarfundi,
02.07.2026 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Gunnsteinn R. Ómarsson aðalmaður,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Í upphafi fundar leitaði formaður eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.

Formaður óskaði eftir að taka inn með afbrigðum mál nr.2607030 og var það samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2607030 - Kynning á umsókn í Enercom
Páll Marvin Jónsson framkvæmdastjóri Ölfus Cluster kynnti tækifæri sem felast í þátttöku í ENERCOM ? European Energy Communities Facility, sem er styrkja- og þróunarverkefni á vegum Evrópusambandsins sem styður uppbyggingu orkusamfélaga.

Hugmyndin er að kanna möguleika á stofnun Orkusamfélags Ölfuss, þar sem sveitarfélagið, fyrirtæki, rannsóknastofnanir og aðrir hagaðilar gætu unnið saman að þróun verkefna á sviði endurnýjanlegrar orku, orkunýtni, samnýtingar varma, orkugeymslu og annarra lausna sem styðja við uppbyggingu Grænna iðngarða í Ölfusi.
Ef af þátttöku verður er stefnt að því að sækja um allt að 45.000 evra þróunarstyrk, sem nýttur yrði til undirbúnings verkefnisins, þar á meðal viðskiptaáætlunar, hagkvæmnisgreininga og mótunar samstarfs. Þátttaka sveitarfélagsins á þessu stigi felst fyrst og fremst í að koma að undirbúningi og samstarfi við aðra hagaðila og felur ekki í sér fjárfestingar- eða framkvæmdaskuldbindingar.

Bæjarráð þakkar kynninguna. Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að taka þátt í verkefninu og felur bæjarstjóra að undirrita viljayfirlýsinguna fyrir hönd sveitarfélagsins.

Samþykkt samhljóða.

Páll Marvin vék af fundi kl. 12:35.
2. 2606021 - Persónuverndarstefna
Uppfærð persónuverndarstefna Sveitarfélagsins Ölfuss til staðfestingar.

Persónuverndarstefnan markar meginviðmið um meðferð persónuupplýsinga í starfsemi sveitarfélagsins og er ætlað að tryggja að vinnsla persónuupplýsinga fari fram í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sem og að persónuvernd sé höfð að leiðarljósi í allri starfsemi sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða persónuverndarstefnu.

3. 2606050 - Ósk um samning um garðslátt á Sunnu- og Mánabraut
Erindi frá Sigurði Ósmann Jónssyni og Jóhönnu Maríu Ingimarsdótur fyrir hönd óstofnaðs húsfélags við Sunnubraut og Mánabraut. Óskað er eftir því að Sveitarfélagið Ölfus geri samning við félagið um garðslátt á lóðum parhúsanna við Sunnu- og Mánabraut.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og þann vilja sem þar kemur fram til að leita hagkvæmra og samræmdra lausna við umhirðu svæðisins.

Að teknu tilliti til hlutverks sveitarfélagsins, jafnræðis gagnvart öðrum fasteignaeigendum og þeirra sjónarmiða sem gilda um samkeppni hins opinbera við einkaaðila sem bjóða upp á sambærilega þjónustu telur bæjarráð ekki forsendur til að sveitarfélagið taki að sér garðslátt á lóðum íbúðarhúsa.

Erindinu er því hafnað.
4. 2606026 - Endurnýjun kaldavatnsstofnlagnar vatnsveitu austurveitu
Beiðni um viðauka fyrir hlut vatnsveitu í framkvæmd við stofnlagnir meðfram Ölfusvegi, sjá fylgiskjal.

Um er að ræða endurnýjun allra stofnlagna Veitna, Rariks og vatnsveitu Ölfuss meðfram Ölfusvegi frá Kotstrandarvegi og um 250 m framhjá Ingólfshvoli. Um er að ræða 1. áfanga af 3 til að klára tengingu vatnsveitu á milli Ölfusborgarholu og vatnsveitunnar Berglindar.

Bæjarráð samþykkir beiðni um viðauka og felur stjórn Vatnsveitunefndar að láta vinna minnisblað um það hvernig hægt er að mæta tilgreindum kostnaði upp á 54 milljónir við endunýjun Kaldavatnsstofnlagnar vatnsveitu austurveitu innan gildandi fjárhagsramma eins og hann kemur fram í samþykktri fjárhagsáætlun.

Samþykkt samhljóða.
5. 2606023 - Gljúfurárholt land 10 - Breyttir byggingaskilmálar óv. DSKbr
Lögð er fram óveruleg deiliskipulagsbreyting fyrir lóðina Stað. Breytingin felur í sér örlitla breytingu á byggingarreit.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2606033 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Prufuholur við Óseyrarbraut
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi til jarðvegsrannsókna við Óseyrarbraut. Tilgangur rannsóknanna er að rannsaka jarðvegsaðstæður, meta burðarhæfni og afla upplýsinga sem nýtast við hönnun og undirbúning fyrirhugaðrar uppbyggingar. Grafnar verða þrjár prufuholur á hverjum þremur reitum við Óseyrarbrautina sem verða afgirtar meðan á rannsókn stendur.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Beiðnin var tekin til atkvæðagreiðslu. Framkvæmdaleyfið er samþykkt með 4 atkvæðum D-lista. Guðmundur Oddgeirsson S-lista greiddi atkvæði á móti.

Gunnsteinn Ómarsson S-lista lagði fram eftirfarandi bókun:
Hvers kyns framkvæmdir sem miða að uppbyggingu húsa á svæðinu milli hafnar og núverandi íbúðarbyggðar verða ekki samþykktar af hálfu bæjarfulltrúa S-lista.

Grétar Ingi Erlendsson og Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir D-lista lögðu fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti D-lista bendir á að hér er ekki um heimild til varanlegra áhrifa að ræða heldur eingöngu tilraunaholur til að kanna jarðveg á svæðinu. Framkvæmdir eru með öllu afturkræfar og þeim fylgir engin varanleg röskun. Sérstök áhersla verður lögð á að umgengni sé til fyrir fyrirmyndar meðan á þessum takmörkuðu framkvæmdum stendur ásamt því að öryggi nálægra íbúa sé tryggt.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest með tveimur atkvæðum bæjarfulltrúa D-lista. Bæjarfulltrúi S-lista greiddi atkvæði á móti.

7. 2606035 - Árbæjarhverfi - Breyting landnotkunnar úr samfélagsþjónustu í íbúðasvæði ASKbr
Lögð er fram skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Ölfuss í Árbæjarhverfi. Í breytingunni felst að landnotkun er breytt úr samfélagsþjónustu í íbúðasvæði.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa skipulagslýsinguna og ganga frá málinu í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að kynna breytinguna sérstaklega fyrir íbúum Árbæjarhverfis.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2606036 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Nýr vegslóði að tengivirki á Völlum
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi til að leggja nýjan aðkomuveg að tengivirki Landsnets á Völlum í Ölfusi. Í stað þess að styrkja og breyta núverandi aðkomuvegi þannig að hægt sé að flytja um hann þungaflutninga hefur verið komist að samkomulagi við Eldhesta að gera nýjan aðkomuveg. Samfylgjandi framkvæmdum við nýjan aðkomuveg verður gerður nýr reiðstígur sunnan við núverandi tengivirki og reiðstígur samhliða Varmá sveigður örlítið frá fyrirhuguðu loftlínumastri (sjá teikningu í viðhengi) til að tengja Lækjartúnslínu 1 inn í nýjan 220 kV rofareit.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt. Bent er á að fyrirhugaður reiðvegur liggur á mörkum íbúðasvæðis í skipulagi. Gera þarf ráð fyrir að íbúðauppbygging muni fela í sér mögulega truflun fyrir reiðmenn og/eða væntanlega íbúa.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2606038 - Litla kaffistofan - Ferðaþjónusta - Nýtt deiliskipulag
Lagt er fram deiliskipulag á lóð litlu Kaffistofunnar þar sem til stendur að reka ferðaþjónustu tengda fjórhjóla- og norðurljósaferðum.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin bendir á að ef núverandi slóði er færður þá þarf lóðarhafi að leggja nýjan á sinn kostnað. Minnt er á að tryggja þarf aðgengi annarra að gamla þjóðveginum.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
12. 2606043 - Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga 2025
Ársreikningur Samtaka orkusveitarfélaga fyrir árið 2025 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerðir til staðfestingar
10. 2606003F - Stjórn vatnsveitu - 28
Fundargerð 28.fundar stjórnar vatnsveitunnar frá 18.06.2026 til staðfestingar.

1. 2606025 - Vatnsveita Akurholti. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2606026 - Endurnýjun kaldavatnsstofnlagnar vatnsveitu austurveitu. Tekið fyrir sérstaklega.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
11. 2606005F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 116
Fundargerð 116.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 25.06.2026 til staðfestingar.

1. 2606016 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Hafnarvegur 2, Þorlákshöfn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2606017 - Merkjalýsing - Breyting á stærð lóðar - Hafnarbakki 8, Þorlákshöfn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2606018 - Mávavík 32-36 Fyrirspurn um túlkun skipulags. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2606020 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Efstaland E. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2606022 - Beiðni um heimild til takmarkaðrar efnistöku í landi Hamragils. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2605050 - Vesturgljúfur 8 - Athafnasvæði í Verslunar og þjónustusvæði - óv. ASKbr. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2606023 - Gljúfurárholt land 10 - stækkun byggingarreits óv. DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
8. 2606032 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Staður 3, Gljúfurárholt. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2606033 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Prufuholur við Óseyrarbraut. Tekið fyrir sérstaklega.
10. 2606035 - Árbæjarhverfi - Breyting landnotkunnar úr samfélagsþjónustu í íbúðasvæði ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
11. 2606036 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Nýr vegslóði að tengivirki á Völlum. Tekið fyrir sérstaklega.
12. 2606037 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Akurholtssel, Ölfus. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
13. 2606038 - Litla kaffistofan - Ferðaþjónusta - Nýtt deiliskipulag. Tekið fyrir sérstaklega.
14. 2606040 - Samskiptamastur í Gljúfurárholti. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
15. 2606041 - Umhverfisverðlaun 2026. Til kynningar.
16. 2606042 - Beiðni um að starfrækja færanlega Saunuaðstöðu í Þorlákshafnarfjöru. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fuundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
Fundargerðir til kynningar
13. 1603010 - Málefni fatlaðs fólks Fundargerðir stjórnar Bergrisans.
Fundargerð 90.fundar stjórnar Bergrisans bs. frá 15.06.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
14. 1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 1000.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 09.06.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:15 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?