| |
| 1. 2605062 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss 2026-2030 | |
Nefndarskipan samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 2. 2605051 - Sveitarstjórnarkosningar 2026 | |
| Bæjarráð þakkar yfirkjörstjórn vandaða vinnu. | | |
|
| 3. 2606005 - Erindi frá First Water vegna Laxabrautar 12 og 17 | |
| Bæjarráð samþykkir erindið samhljóða. | | |
|
| 4. 2606004 - Umsókn um launað námsleyfi haustið 2026 | |
Bæjarráð getur ekki orðið við erindinu enda ljóst að tilgreint nám veitir ákveðin starfsréttindi eins og kveðið er á um í kjarasamningi FOSS. Bæjarráð beinir því einnig til starfmanna að endurskoða reglur um námsorlof og leggja drög fyrir ráðið eigi síðar en í september næstkomandi.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 5. 2606019 - Fræðslumál - beiðni um viðauka við Hraunheima | |
Bæjarráð tekur jákvætt í framkomna beiðni sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs og leikskólastjóra Hraunheima um endurskoðun á mannauði leikskólans vegna skólaársins 2026-2027.
Bæjarráð leggur áherslu á að sveitarfélagið uppfylli lögbundnar skyldur sínar gagnvart börnum með sérþarfir og að tryggð séu gæði, öryggi og faglegt starf í leikskólanum samhliða áframhaldandi uppbyggingu hans.
Bæjarráð samþykkir að heimila ráðningu í eitt stöðugildi leikskólakennara frá og með 15. ágúst 2026. Þá samþykkir ráðið einnig að starf sérkennslustjóra verði skilgreint sem 50% aðstoðarleikskólastjóri og 50% sérkennslustjóri, enda hafi breytingin ekki í för með sér aukinn kostnað. Að lokum samþykkir bæjarráð að þroskaþjálfi leikskólans sinni starfi þroskaþjálfa að fullu í samræmi við framlagðar tillögur.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs að vinna breytingarnar áfram og gera grein fyrir kostnaðaráhrifum á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 6. 2605005 - Orlof húsmæðra 2025 | |
| Bæjarráð samþykkir erindið samhljóða. | | |
|
| 7. 2605060 - Umhverfismál, Nesið | |
Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir erindið og þann áhuga sem þar kemur fram hvað varðar verndun náttúru og lífríkis í Þorlákshöfn.
Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að fylgst sé með útbreiðslu lúpínu á viðkvæmum svæðum þar sem verðmætt gróðurfar og fuglalíf er til staðar. Sérstaklega er mikilvægt að huga að vernd þeirra fjölmörgu innlendu plöntutegunda sem finnast á Nesinu sem og þeirra náttúrugæða sem tengjast kríuvarpi og öðru fuglalífi á svæðinu.
Erindinu er því vísað til umhverfisstjóra til eftirfylgni. Óskað er eftir að metin verði staða lúpínu á svæðinu, möguleg áhrif hennar á gróður og fuglalíf og hvaða aðgerðir kunna að vera raunhæfar til að takmarka útbreiðslu hennar eftir því sem við á.
| | |
|
| 8. 2605065 - Samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga breytingar | |
| Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagðar samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga. | | |
|
| 9. 2606027 - Fækkun strætóferða til Þorlákshafnar | |
Bæjarráð vísar til tilkynningar Vegagerðarinnar, dags. 10. júní 2026, um fyrirhugaðar breytingar á þjónustu landsbyggðarvagna, en þær taka gildi haustið 2026.
Meðal breytinganna sem kynntir eru til sögunnar er fækkun ferða á leið 71 (Þorlákshöfn - Hveragerði) úr fimm ferðum á dag niður í fjórar á virkum dögum. Þessi breyting kemur bæjarráði mjög á óvart, sérstaklega í ljósi þess að leiðin var aðeins nýlega endurskipulögð með það fyrir augum að auka þjónustugildi hennar. Á þeim tíma var ákveðið að vagnar á leið 71 yrðu ekki lengur keyrðir beina leið frá Þorlákshöfn til Selfoss, heldur yrði farið um Hveragerði, meðal annars til þess að auðvelda tengingar við leiðir til Reykjavíkur. Þessum breytingum tók sveitarfélagið vel, enda fól tilhögunin í sér auknar mögulegar tengingar og þótti lofa góðu fyrir framtíðarþróun kerfisins.
Þorlákshöfn er eitt af þeim byggðarlögum á landinu sem hefur upplifað mesta fólksfjölgun undanfarin ár og stendur enn frammi fyrir miklum vexti. Notkun á leið 71 hefur verið góð samanborið við aðrar sambærilegar leiðir, og það er mat bæjarráðs að fækkun ferða muni ganga þvert gegn þörfum íbúanna og hamla því að þessi ferðamáti styrkist til framtíðar.
Bæjarráð beinir því til starfsmanna að funda sem fyrst með fulltrúum Vegagerðarinnar til þess að fara yfir þessar ákvarðanir í heild sinni, sérstaklega hvað varðar leið 71.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 10. 2606007 - Auka aðalfundur SASS 25.júní 2026 | |
Lagt fram.
| | |
|
| 11. 2606002 - Auka aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands | |
| Lagt fram. | | |
|
| 18. 2606006 - Boð um þátttöku í samráði Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga) | |
| Lagt fram. | | |
|
| |
| 12. 2605008F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 92 | |
| Lagt fram. | | |
|
| |
| 13. 2606003 - Fundargerð aðalfundar Eignarhaldsfélags Suðurlands | |
| Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 14. 1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga | |
| Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 15. 1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS. | |
| Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 16. 2104033 - Fundargerðir stjórnar Listasafns Árnesinga. | |
| Lagt fram til kynningar. | | |
|
| 17. 2009052 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Suðurlands | |
| Lagt fram til kynningar. | | |
|