Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarstjórn Ölfuss - 362

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
28.10.2026 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Gestur Þór Kristjánsson forseti bæjarstjórnar,
Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi,
Erla Sif Markúsdóttir bæjarfulltrúi,
Guðlaug Einarsdóttir bæjarfulltrúi,
Geir Höskuldsson 1. varamaður,
Gunnsteinn R. Ómarsson bæjarfulltrúi,
Berglind Friðriksdóttir bæjarfulltrúi,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri
Í upphafi fundar leitaði forseti eftir athugasemdum við fundarboð.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2605062 - Kosning í nefndir og ráð Sveitarfélagsins Ölfuss 2026-2030
Skipan í ungmennaráð Sveitarfélagsins Ölfuss kjörtímabilið 2026-2030.

Eftirfarandi aðilar eru tilnefndir í ungmennaráð:

Aðalmenn:
Eva Rán Ottósdóttir
Gunnar Ægir Þorsteinsson
Freyja Ósk Ásgeirsdóttir
Hreiðar Leó Vilhjálmsson
Védís Kolka Jónsdóttir

Varamenn:
Emma Rós Sindradóttir
Bergþóra Ósk Ásgeirsdóttir
Edytta Marina Pisarska
Björgvin Breki Sindrason
Gabríel Óskar Stefánsson

Samþykkt samhljóða.
2. 2608035 - Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss 2027-2030
Forsendur fjárhagsáætlunar 2027 til staðfestingar. Þær hafa áður fengið umfjöllun í bæjarráði 15.okt.sl.
Bæjarstjórn samþykkir framlagðar forsendur.

Samþykkt samhljóða.

3. 2603075 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Fyrir fundinum liggur viðauki 2 við fjárhagsáætlun ársins 2026 til samþykktar.
Aukning tekna ársins er kr. 162.605.000 og aukning gjalda kr. 95.860.000. Nettó breyting rekstrar er því jákvæð um kr.66.745.000.
Fjárfestingaáætlun ársins lækkar um 1.156.700.000 og vegur þar þyngst breytt áætlun hafnarframkvæmda en framkvæmdaáætlun hafnarinnar lækkar um kr.708.700.000.
Aðrar stórar breytingar eru lækkun fjármagni til gatnagerðar sem ekki verður farið í á árinu, kr. 151.000.000 og tilfærsla á framkvæmd við dælustöð milli ára kr. 120.000.000.

Samhliða breytingum á fjárfestingaáætlun var tekin út lántaka hjá Hafnarsjóði að fjárhæð 830 millj. og lækkun verður á afskriftum og fjármagnsgjöldum.

Samþykkt samhljóða.

4. 2602417 - Samþykkt um hundahald
Endurskoðuð samþykkt um hundahald í Sveitarfélaginu Ölfusi til staðfestingar. Samþykktin hefur hlotið umfjöllun hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem staðfesti hana. Lagt er til við bæjarstjórn að vísa samþykktinni til síðari umræðu.

Samþykkt samhljóða að vísa samþykktum um hundahald til síðari umræðu.
5. 2602418 - Samþykkt um kattahald
Endurskoðuð samþykkt um kattahald í Sveitarfélaginu Ölfusi til staðfestingar. Samþykktin hefur hlotið umfjöllun hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem staðfesti hana. Lagt er til við bæjarstjórn að vísa samþykktinni til síðari umræðu.


Samþykkt samhljóða að vísa samþykktum um kattahald til síðari umræðu.
6. 2610146 - Tillaga frá S lista, Mannauðsráðgjafi til leigu fyrir Sveitarfélagið Ölfus
Fyrir fundinum lá tillaga frá S-lista um að afla tilboða í tímabundna mannauðsþjónustu fyrir sveitarfélagið. Miðað yrði við að sérfræðingur á sviði mannauðsmála hefði reglulega viðveru hjá sveitarfélaginu og ynni náið með bæjarstjóra, sviðsstjórum og öðrum stjórnendum sveitarfélagsins.

Gunnsteinn Ómarsson S-lista, Grétar Ingi Erlendsson D-lista og Berglind Friðriksdóttir S-lista tóku til máls.

Tillagan var sett í atkvæðagreiðslu, bæjarfulltrúar S-lista greiddu atkvæði með tillögunni en bæjarfulltrúar D-lista greiddu atkvæði á móti. Tillagan var því felld.

Grétar Ingi Erlendsson lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd bæjarfulltrúa D-lista:
Meirihluti D-lista bendir einnig á að starfsmenn sveitarfélagsins hafa leitað til utanaðkomandi sérfræðinga á þessu sviði þegar þess hefur verið þörf. Fyrirkomulagið hefur reynst afar vel og hvetur meirihluti D-lista stjórnendur sveitarfélagsins að leita áfram ráðgjafar í einstökum starfsmannamálum þegar þörf er á.

Berglind Friðriksdóttir lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd bæjarfulltrúa S-lista:
Markmið tillögunnar er ekki að færa ábyrgð á mannauðs- og starfsmannamálum frá stjórnendum eða að búa til nýtt stöðugildi þó hún gangi út á reglubundna viðveru. Þvert á móti er markmiðið að styrkja stjórnendur í hlutverki sínu, auka öryggi þeirra við úrlausn mannauðsmála og tryggja þeim greiðan aðgang að faglegum stuðningi þegar þörf krefur. Með reglulegri viðveru sérfræðings í mannauðsmálum skapast jafnframt tækifæri til að vinna með mannauðsmál með markvissari og fyrirbyggjandi hætti. Þannig verður ekki einungis brugðist við þegar einstök mál koma upp líkt og fyrirkomulagið er í dag heldur jafnframt horft til endurtekinna áskorana, sameiginlegra þarfa stjórnenda og tækifæra til að styrkja verkferla og vinnustaðamenningu. Það skal líka undirstrikað að hér er verið að tala um reynsluverkefni sem meta skal að ári liðnu. Það er einmitt einn af kostunum við tillöguna, við erum ekki að binda okkur við varanlega ráðningu. Við getum prófað fyrirkomulagið í tólf mánuði, séð hvaða þjónustu stjórnendur þurfa mest á að halda og metið ávinninginn áður en tekin er ákvörðun um framtíðarfyrirkomulag. Við fáum þannig raunveruleg gögn og reynslu til að byggja framtíðarákvörðun á.

7. 2602002 - Iðnaðarsvæði sunnan bolaöldu DSK
Auglýsingaferli er lokið. Níu umsagnir bárust, frá Umhverfis- og orkustofnun, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Náttúruverndarstofnun, Forsætisráðuneytinu, Veitum, Minjastofnun Íslands, Náttúrufræðistofnun og Orkuveitunni. Skipulagshöfundur hefur brugðist við umsögnum með breytingum á skipulagsskilmálum. Jafnframt hafa veglína og borplön verið færð lítillega til að falla betur að landslagi og landhalla í samræmi við framkvæmdahönnun og hámarksstærð borplana aukin úr 5.000 m² í 7.000 m². Að mati skipulagshöfundar breyta þessar breytingar ekki umhverfisáhrifum skipulagsins frá auglýstri tillögu. Skipulagið er lagt fram uppfært ásamt samantekt umsagna og viðbrögðum við þeim.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Málið var tekið til atkvæðagreiðslu. Guðmundur Oddgeirsson S-lista sat hjá og vísaði til fyrri bókana um málið. Fulltrúar D-lista greiddu atkvæði með og var málið því samþykkt. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2610001 - Lambafell E2 og E3 - Uppfærðar magntölur í töflu - óv. ASKbr
Lögð er fram óveruleg breyting á aðalskipulagi Ölfuss er snýr að efnisnámum í Lambafelli E2 og E3. Í breytingunni felst uppfærsla á heimilu efnismagni í samræmi við umhverfisskýrslur.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt með fyrirvara um samþykkt landeigenda. Breytingin felur í raun aðeins í sér uppfærslu í samræmi við umhverfismat. Er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2601076 - Grásteinn - fjölgun íbúðalóða og stækkun skipulagssvæðis - DSKbr
HMS féllst á að óveruleg aðalskipulagsbreyting fengi fram að ganga og er deiliskipulag því lagt fram að nýju.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2610132 - Víkursandur - nýjar lóðir fyrir gagnaver - DSKbr
Lögð er fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi iðnaðarsvæðisins á Sandi vestan Þorlákshafnar, á iðnaðarsvæði I4 samkvæmt aðalskipulagi Ölfuss 2020-2036. Vegna fjölda breytinga á skipulaginu frá 2017 er breytingin sett fram sem heildarendurskoðun og við gildistöku fellur eldra deiliskipulag og síðari breytingar þess úr gildi. Með breytingunni er skipulagssvæðið stækkað til norðurs og bætt við um 25 nýjum lóðum af mismunandi stærðum, meðal annars vegna áhuga gagnavera á uppbyggingu á svæðinu, ásamt lóð fyrir tengivirki. Gert er ráð fyrir nýtingarhlutfalli 0,5, allt að 15 m hæð bygginga, áfangaskiptri uppbyggingu gatna og veitukerfa og jarðvegsmönum og skjólbeltum á jaðri svæðisins. Umhverfismatsskýrsla fylgir tillögunni.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Bent er á að vatnstaka á svæðinu skal vera sjálfbær og afla skal umsagnar Hydros áður en borað er eftir vatni.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
11. 2610133 - Mói - Breyting byggingarreits vegna matvöruverslunar - DSKbr
Lögð er fram deiliskipulagsbreyting er snýr að Hafnarvegi 2. Byggingarreit er hliðrað og hann stækkaður lítillega. Nýtingarhlutfall er lækkað í 0,5 í ljósi þess að til stendur að reisa á lóðinni matvörubúð í stað hótels.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
12. 2610110 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - 10 kv strengur að vatnsverksmiðju
Rarik sækir um framkvæmdaleyfi til lagningar háspennustrengs frá tengivirki Landsnets, meðfram gamla Þorlákshafnarvegi og norður að vatnsverksmiðju Icelandic Glacial. Haft hefur verið samráð við Landsnet til að fyrirbyggja skörun strengsins við Þorlákshafnarlínu 2 sem verið er að leggja þessa dagana.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
13. 2511028 - Egilsbraut 9 DSKbr. - Lóð fyrir hjúkrunarheimili
HMS tók ekki afstöðu til deiliskipulagsbreytingarinnar með bréfi dags. 16.2.2026 og óskaði eftir skýrari afmörkun byggingarreits, greiningu á skuggavarpi og fyrirvara um minjakönnun Minjastofnunar. Minjakönnun er nú lokið og hefur skipulagshöfundur fært inn á uppdrátt mögulegt eldstæði sem fannst ásamt 15 m helgunarsvæði, bætt við skilmálum um að svæðið verði afgirt á framkvæmdatíma og að jarðrask innan helgunarsvæðisins sé óheimilt nema í samráði við minjavörð Suðurlands, og fækkað áætluðum bílastæðum um fjögur. Ekki eru gerðar breytingar vegna athugasemda um afmörkun byggingarreits og skuggavarp þar sem þær kröfur eiga sér ekki stoð í skipulagslögum eða skipulagsreglugerð.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
14. 2610134 - Gata A 3 - stækkun lóðar og byggingarreits - Óv. DSKbr
Lögð er fram óveruleg breyting á deiliskipulagi Móa. Breytingin felur í sér stækkun lóðarinnar Gata A 3 um 55 m2 og lítillega stækkun byggingarreits í samræmi við stækkun lóðar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
15. 2604017 - Deiliskipulag efnistökunáma E10, E11 og E12
Kynningu tillögunnar er lokið. Um er að ræða námur í landi Hrauns sem hafa verið í notkun frá árinu 1960 og er skipulaginu ætlað að ramma inn áframhaldandi efnistöku á svæðunum. Umsagnir bárust frá Veitum, Rarik, Vegagerðinni, Landsneti, Náttúruverndarstofnun, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Minjastofnun Íslands. Skipulagshöfundur hefur brugðist við umsögnum. Selfosslína 3 hefur verið færð inn á uppdrátt og breytt vegtenging við Eyrarbakkaveg sýnd í samræmi við ábendingu Vegagerðarinnar. Aðrar ábendingar umsagnaraðila snúa að atriðum sem fjallað er um við útgáfu framkvæmdaleyfis og starfsleyfis og kalla ekki á frekari breytingar á skipulaginu. Uppfært skipulag er lagt fram ásamt samantekt umsagna og viðbrögðum við þeim.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðir til staðfestingar
16. 2610001F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 121
Fundargerð 121.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 09.10.2026 til staðfestingar.

1. 2608058 - Þorláksskógar - áheyrn. Til kynningar.
2. 2609047 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Bolavellir 2, Hellisheiði. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2609048 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Mýrarsel 9A, 9B, 9C, 9D og 9E. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2609053 - Erindi frá sóknarnefnd Strandarkirkju. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2609054 - Ósk um breytingu á lóðamörkum Pálsbúðar 16 og 18, Þorlákshöfn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2607042 - Umsókn um deiliskipulag -eða breytingu - Birkiból 2, Ölfus. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2609064 - Gljúfurholt - Nýtt deiliskipulag. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2609070 - Fyrirspurn um heimild til að breyta deiliskipulagi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2604018 - Oddabraut 9 - Beiðni um heimild til að skipta upp húseign. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2610002 - Kvörtun vegna umgengni á lóð í dreifbýli. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
17. 2609007F - Bæjarráð Ölfuss - 473
Fundargerð 473.fundar bæjarráðs frá 01.10.2026 til staðfestingar.

1. 2609063 - Viljayfirlýsing vegna mögulegrar uppbyggingar gagnavers á iðnaðarsvæði I4. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2609025 - Beiðni um viðauka vegna leikskólalóðar Hraunheima. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2609040 - Umsókn um styrk vegna afmælistónleika. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2609039 - Beiðni um viðbótarfjárveitingu vegna reiðvegagerðar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2609033 - Aðstöðuumbætur í Skötubót - beiðni um heimild til að gera tröppur og útisturtu. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2609062 - Reglur og viðmið um notkun gervigreindar hjá Sveitarfélaginu Ölfusi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2608035 - Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss 2027-2030. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2609037 - Notendaráð sveitarfélaga. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2609043 - Áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2609038 - Forsendur kjarasamninga -erindi frá VR, LÍV og Fagfélögunum. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
11. 2609036 - Samráðsgátt - Tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði. Til kynningar.
12. 2609052 - Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga. Til kynningar.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
18. 2609010F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 55
Fundargerð 55.fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 01.10.2026 til staðfestingar.

1. 2609056 - Erindi frá spinning iðkendum. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2609057 - Tillögur til fjárhagsáætlunar frá íþrótta- og tómstundafulltrúa. Til kynningar.
3. 2609058 - Tillaga að skipan ungmennaráðs 2027. Tekið fyrir sérstaklega.
4. 2609059 - Minnisblað um framtíðarsýn, húsnæði og aðstaða til íþróttaiðkunar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2609060 - Minnisblað um ráðningu framkvæmdastjóra. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2609065 - Tillaga frá Pálma Ásbergssyni. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2604025 - Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð Ölfuss 2026. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.


19. 2610003F - Bæjarráð Ölfuss - 474
Fundargerð 474.fundar bæjarráðs frá 15.10.2026 til staðfestingar.

1. 2608035 - Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss 2027-20304. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2610101 - Umsókn um styrk til reksturs Sigurhæða. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2610104 - Beiðni um stuðning til Stígamóta 2027. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2610105 - Beiðni um styrk til Kvennaathvarfsins 2027. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
20. 2610009F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 122
Fundargerð 122.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 23.10.2026 til staðfestingar.

1. 2609034 - Laut - 3 íbúðalóðir - nýtt DSK. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2610001 - Lambafell E2 og E3 - Uppfærðar magntölur í töflu - óv. ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
3. 2601076 - Grásteinn - fjölgun íbúðalóða og stækkun skipulagssvæðis - DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
4. 2604017 - Deiliskipulag efnistökunáma E10, E11 og E12. Tekið fyrir sérstaklega.
5. 2602002 - Iðnaðarsvæði sunnan bolaöldu DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
6. 2610003 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - fjarskiptasúla - Gljúfurárholt land 13. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2604018 - Oddabraut 9 - Beiðni um heimild til að skipta upp húseign. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2610110 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - 10 kv strengur að vatnsverksmiðju. Tekið fyrir sérstaklega.
9. 2610115 - Tilnefning aðila í samstarfsnefnd um friðlandið Herdísarvík. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2609069 - Þurárhraun 13-17 beiðni um heimild til að byggja garðskála utan byggingarreits. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
11. 2610129 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Hlíðarás vegsvæði. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
12. 2610130 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Ytri-Grímslækur vegsvæði. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
13. 2610131 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Sögusteinn vegsvæði. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
14. 2610132 - Víkursandur - nýjar lóðir fyrir gagnaver - DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
15. 2610133 - Mói - Breyting byggingarreits vegna matvöruverslunar - DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
16. 2610134 - Gata A 3 - stækkun lóðar og byggingarreits - Óv. DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
17. 2511028 - Egilsbraut 9 DSKbr. - Lóð fyrir hjúkrunarheimili. Tekið fyrir sérstaklega.
18. 2511026 - Kirkjuferjuhjáleiga DSK. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
19. 2610137 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Vinnslu og vöktunarholur Nesbraut 25 og Laxabraut 5. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.

25. 1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 1002.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11.09.2026, 1003.fundar frá 23.09.2026 og 1004.fundar frá 08.10.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerðir til kynningar
21. 1701026 - Brunamál Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu
Fundargerð 7.fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 17.09.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
22. 1611032 - Almannavarnir Fundargerðir almannavarnarnefndar Árnessýslu
Fundargerð Almannavarnanefndar Árnessýslu frá 18.09.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
23. 1701032 - Fræðslumál Fundagerðir stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga.
Fundargerð 221.fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga frá 28.09.2026. Einnig er til kynningar kostnaðarskipting sveitarfélaganna á árinu 2027.
Lagt fram til kynningar.
24. 1701026 - Brunamál Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu
Fundargerð 8.fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 25.09.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
26. 1603010 - Málefni fatlaðs fólks Fundargerðir stjórnar Bergrisans.
Fundargerð 95.fundar stjórnar Bergrisans frá 14.09.2026 og 96.fundi frá 05.10.2026 til kynningar.
27. 1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS.
Fundarerð 639.fundar stjórnar SASS frá 02.10.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
28. 2009027 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fundargerð 97.fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 07.09.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?