Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarstjórn Ölfuss - 357

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
30.04.2026 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Gestur Þór Kristjánsson forseti bæjarstjórnar,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir 1. varaforseti,
Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi,
Erla Sif Markúsdóttir bæjarfulltrúi,
Hrönn Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi,
Vilhjálmur Baldur Guðmundsson bæjarfulltrúi,
Berglind Friðriksdóttir bæjarfulltrúi,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri
Í upphafi fundar leitaði forseti eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.

Mál nr. 12 í útsendri dagskrá var sett á dagskrá fyrir mistök en málið átti eftir að fá umfjöllun í skipulags- og umhverfisnefnd. Forseti lagði því til að það yrði tekið af dagskrá og var það samþykkt.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2603060 - Ársreikningar Sveitarfélagsins Ölfuss 2025
Ársreikningar sveitarfélagsins vegna ársins 2025 - síðari umræða.
Elliði Vignisson bæjarstjóri tók til máls og fór yfir helstu stærðir í ársreikningnum og þær breytingar sem urðu á milli umræðna.

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt A og B hluta var jákvæð um 1.463 milljónir króna en rekstarniðurstaða A hluta var jákvæð um 1.053 milljónir króna.

Samkvæmt efnahagsreikningi nema heildareignir A og B hluta um 11.475 milljónum króna.
Bókfært eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2025 nam 7.485 milljónum króna og er eiginfjárhlutfall sveitarfélagsins 64,48 %.

a)Ársreikningur A-hluta 2025 (í þúsundum króna):
Afkoma fyrir fjármagnsliði kr. 1.059.991
Rekstrarafkoma ársins kr. 1.053.460
Niðurstaða efnahagsreiknings. Eignir kr.7.829.791, skuldir og skuldbindingar kr. 2.781.190
Eigið fé kr. 5.048.655

b) Ársreikningur Félagslegra íbúða
Afkoma fyrir fjármagnsliði kr. -1,6 milljónir.
Rekstrarafkoma ársins kr. -12,8 milljónir
Niðurstaða efnahagsreiknings. Eignir kr.95,1 milljón. Skuldir kr.262,5 milljónir.
Eigið fé kr. -167,5 milljónir

c) Ársreikningur Fráveitu Ölfuss
Afkoma fyrir fjármagnsliði kr. 81,3 milljónir.
Rekstrarafkoma ársins kr. 72,6 milljónir.
Niðurstaða efnahagsreiknings. Eignir kr.538 milljónir. Skuldir kr.210 milljónir.
Eigið fé kr. 328 milljónir.

d) Ársreikningur Hafnarsjóðs Þorlákshafnar
Afkoma fyrir fjármagnsliði kr. 337 milljónir
Rekstrarafkoma ársins kr. 306 milljónir.
Niðurstaða efnahagsreiknings. Eignir kr. 2.565 milljónir. Skuldir kr.576 milljónir.
Eigið fé kr.1.989 milljónir.

e) Ársreikningur Íbúða eldri borgara
Afkoma fyrir fjármagnsliði kr. 23,7 milljónir.
Rekstrarafkoma ársins kr.1,3 milljónir.
Niðurstaða efnahagsreiknings. Eignir kr.457,5 milljónir. Skuldir kr.408 milljónir.
Eigið fé kr. 49,6 milljónir.

f)Ársreikningur Vatnsveitu Þorlákshafnar
Afkoma fyrir fjármagnsliði kr. 45,9 milljónir.
Rekstrarafkoma ársins kr. 42,4 milljónir.
Niðurstaða efnahagsreiknings. Eignir kr. 380 milljónir. Skuldir kr. 143 milljónir.
Eigið fé kr. 237 milljónir.

g) Ársreikningur Uppgræðslusjóðs Ölfuss
Uppgræðslusjóður var lagður niður á árinu.

h) Ársreikningur Samstæðu Ölfuss (í þúsundum króna)
Afkoma fyrir fjármagnsliði kr. 1.546.056
Rekstrarafkoma ársins kr. 1.463.310
Niðurstaða efnahagsreiknings. Eignir kr.11.474.661, skuldir kr. 3.990.158
Eigið fé kr. 7.484.503.

Ársreikningurinn lagður fyrir fundinn og hann samþykktur samhljóða.
2. 2603071 - Brunavarnaáætlun BÁ 2026-2031
Lögð er fram til samþykktar Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu auðkennisnúmer 09-03-2026 09:00. Áætlunin gildir til febrúar 2031. Áætlunin hefur verið samþykkt af Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun.
Grétar Ingi Erlendsson tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:

Fyrir liggur að á seinustu árum hafa orðið miklar samfélagslegar breytingar í sveitarfélaginu sem kalla á ígrundaða endurskoðun á öllu því sem lýtur að öryggi íbúa. Ekki einungis hefur íbúðarhúsnæði fjölgað um rúmlega 70% heldur hefur atvinnulífið vaxið gríðalega.

Með það að leiðarljósi vinnur Sveitarfélagið Ölfus nú að undirbúningi á heildarúttekt á brunavörnum í góðu samstarfi við Brunavarnir Árnessýslu með öryggi íbúa og fyrirtækja að leiðarljósi. Fyrirliggjandi brunavarnaáætlun fellur vel að þeirri vinnu. Með það í huga m.a. samþykkir bæjarstjórn brunavarnaáætlunina.

Bæjarstjórn samþykkir brunavarnaráætlunina samhljóða.

3. 2603075 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
Fyrir fundinum liggur viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2026 til samþykktar. Viðaukinn hefur verið lagður fyrir bæjarráð á 463.fundi þess 01.04.2026.

Samtals er lækkun á áætluðum rekstrarafgangi kr. 138.020.000. Aukning gjalda frá fjárhagsáætlun ársins er kr. 20.335.000 og lækkun tekna er kr. 117.685.000.

Fjárfestingar aukast um 4.085.000 frá upphaflegri áætlun.

Berglind Friðriksdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi bókun:
Undirrituð styður heilshugar það góða markmið að bjóða upp á gjaldfrjálsa þrjátíu og sex stunda vistun í leikskólum sveitarfélagsins. Málefnið er mikilvægt og til þess fallið að styðja við barnafjölskyldur í sveitarfélaginu. Ég geri hins vegar alvarlegar athugasemdir við þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við undirbúning og afgreiðslu málsins. Samkvæmt 62. og 63. gr. sveitarstjórnarlaga er fjárhagsáætlun bindandi ákvörðun um allar fjárhagslegar ráðstafanir sveitarfélagsins. Óheimilt er að víkja frá henni nema að undangenginni samþykkt viðauka.
Þegar tekin er ákvörðun um verulega tekjuskerðingu án fullnægjandi útreikninga og fjárhagslegs mats, en síðan lagður fram 36 milljóna króna viðauki tveimur mánuðum síðar, er sveitarstjórn í reynd svipt eðlilegu færi til upplýstrar og lýðræðislegrar umræðu um fjárhagsleg áhrif málsins. Gott málefni réttlætir ekki óvönduð vinnubrögð. Þessi málsmeðferð er ekki í samræmi við ábyrga fjármálastjórn og verður vart talin bera með sér þá nálgun að halda „áfram af ábyrgð“.

Viðaukinn lagður í atkvæðagreiðslu og hann samþykktur samhljóða.
4. 2604065 - Samþykktir Sorpstöðvar Suðurlands
Samþykktir Sorpstöðvar Suðurlands síðari umræða. Lagt er til að bæjarstjórn staðfesti samþykktirnar.
Samþykktir Sorpstöðvar Suðurlands samþykktar samhljóða.
5. 2604023 - Tæknilýsing innviða - endurskoðun á gatnabreidd
Lögð er til uppfærsla á tæknilýsingu sveitarfélagsins. Lágmarksbreidd húsagatna verði 6 m í stað 7 m og lágmarksbreidd aðalgatna verði 7 m í stað 6 m.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt og vísað til meðfylgjandi breytinga á tæknilýsingunni þar sem breidd húsagatna má vera 6 m og breidd aðalgatna 6,5 m, að ákveðnum skilyrðum uppfylltum.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2603067 - Hjarðarból - Fjölgun íbúðalóða - óv. ASKbr.
Lögð er fram óveruleg breyting á aðalskipulagi vegna Hjarðarbóls (ÍB27). Breytingin felst í uppfærslu á töflu þar sem fram kemur fjöldi lóða og er fjölda breytt úr 25 í 31.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt með fyrirvara um að áfangaskipting sé útfærð í deiliskipulagi. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2604003 - Framkvæmdaleyfi - Vinnsluborhola í Lakakróki
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna vinnsluborholu í Lakakróki. Framkvæmdin er innan skilgreinds iðnaðarsvæðis og í samræmi við umhverfismatsskýrslu frá 2025 ,,Vinnslu- og rannsóknarholur í Hverahlíð II og Meitlum, Sveitarfélaginu Ölfusi".

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.

Niðurstaða nefnarinnar staðfest.
8. 2604016 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Ýmsar framkvæmdir við tengivirki á Völlum
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna ýmissa framkvæmda í kringum tengivirki Landsnets á Völlum við Hveragerði. Framkvæmdirnar tengjast stækkun tengivirkisins sem fyrirhuguð er síðar í sumar en eru þó ekki hluti byggingarleyfisins.

Afgreiðsla: Á framkvæmdasvæðinu er mikið notuð reiðleið. Gæta skal fyllsta tillits við hestafólk og eiga samráð við nærliggjandi landeigendur. Framkvæmdaleyfi veitt.

Niðurstaða nefnarinnar staðfest.
9. 2604017 - Deiliskipulag efnistökunáma E10, E11 og E12
Lagt er fram deiliskipulag fyrir efnisnámur í landi Hrauns. Efnisnámurnar eru númer E10, E11 og E12 í aðalskipulagi.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2603078 - Norðurbakki 7-9 óverul. DSKbr vegna sameiningar lóða
Lögð er fram óveruleg deiliskipulagsbreyting á hafnarsvæði Þorlákshafnar. Í breytingunni felst að sameinaðar eru lóðirnar Norðurbakki 7 og Norðurbakki 9.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

11. 2604055 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Þorlákshafnarlína 2
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna lagningar Þorlákshafnarlínu 2. Umsóknin snýr aðeins að þeim kafla sem fyrirhugað er að leggja á árinu 2026.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt með fyrirvara um að samið hafi verið við landeigendur landareigna þar sem strengurinn er lagður um.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðir til staðfestingar
12. 2603010F - Bæjarráð Ölfuss - 463
Fundargerð 463.fundar bæjarráðs frá 01.04.2026 til staðfestingar.

1. 2207036 - Viljayfirlýsing vegna lóðar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2603070 - Beiðni um viðauka. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2603075 - Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2603019 - Uppgjör fjallskila 2025. Til kynningar.
5. 2603074 - Þjónustusamningur um rekstur, þjónustu og ráðgjöf í upplýsingatækni. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 1704002 - Lagafrumvörp Beiðni Alþingis um umsögn. Til kynningar.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
13. 2604005F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 111
Fundargerð 111.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 13.04.2026 til staðfestingar.

1. 2604023 - Tæknilýsing innviða - endurskoðun á gatnabreidd. Tekið fyrir sérstaklega.
2. 2603067 - Hjarðarból - Fjölgun íbúðalóða - óv. ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
3. 2603078 - Norðurbakki 7-9 óverul. DSKbr vegna sameiningar lóða. Tekið fyrir sérstaklega.
4. 2604003 - Framkvæmdaleyfi - Vinnsluborhola í Lakakróki. Tekið fyrir sérstaklega.
5. 2604016 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Ýmsar framkvæmdir við tengivirki á Völlum. Tekið fyrir sérstaklega.
6. 2604017 - Deiliskipulag efnistökunáma E10, E11 og E12. Tekið fyrir sérstaklega.
7. 2604018 - Oddabraut 9 - Beiðni um heimild til að skipta upp húseign. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
14. 2604006F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 83
Fundargerð 83.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 15.04.2026 til staðfestingar.

1. 2403014 - Fjölnota Íþróttahús. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2604020 - Framkvæmdir við opinn svæði 2026. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2604019 - Skilagrein fyrir sorphirðu í sveitafélaginu Ölfus árið 2025. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2604021 - Frágangur geymslusvæðis við Skarfaskersbryggju. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2601048 - Framkvæmdaráætlun 2025-26. Til kynningar.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
15. 2604007F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 52
Fundargerð 52.fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 14.04.2026 til staðfestingar.

1. 2602023 - Málefni fatlaðra - sumarfrístund fyrir börn. Til kynningar.
2. 2602029 - Barnamenningarhátíð á Suðurlandi. Til kynningar.
3. 2604001 - Frístundastyrkur - skýrsla 2025. Til kynningar.
4. 2604025 - Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð Ölfuss 2026. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2403014 - Fjölnota Íþróttahús. Til kynningar.
6. 2603032 - Barna- og unglingaþing Ölfuss 2026 - skýrsla. Til kynningar.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.

16. 2604009F - Stjórn vatnsveitu - 27
Fundargerð 27.fundar stjórnar vatnsveitu frá 21.04.2026 til staðfestingar.

1. 2604045 - Beiðni um tengingu við vatnsveitu sveitarfélags. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2604044 - Umsögn um nýtingar á vatnsbóli. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
17. 2603007F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 40
Fundargerð 40.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 25.03.2026 til staðfestingar.

1. 2311012 - Skýrsla leikskólastjóra Bergheima. Til kynningar.
2. 2603050 - Leikskólinn Bergheimar - foreldrakönnun, niðurstöður. Til kynningar.
3. 2603051 - Leikskólinn Bergheimar - skólanámskrá. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2603052 - Leikskólinn Bergheimar - Leikskóladagatal 2026-2027. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2508002 - Skýrsla leikskólastjóra Hraunheima. Til kynningar.
6. 2603053 - Leikskólinn Hraunheimar - leikskóladagatal 2026-2027. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2311017 - Skýrsla skólastjóra. Til kynningar.
8. 2603048 - Grunnskólinn - námsframvinda barna í lesfimi. Til kynningar.
9. 2603044 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn - Uppsagnarbréf frá skólastjóra. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2602031 - Barnaþing í Ölfusi 2026. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
11. 2602023 - Málefni fatlaðra - sumarfrístund fyrir börn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
12. 2602029 - Barnamenningarhátíð á Suðurlandi. Til kynningar.
13. 2603046 - Velferðarþjónusta - fundargerð stjórnar Bergrisans. Til kynningar.
14. 2603045 - Velferðarþjónusta - fundargerð farsældarráðs. Til kynningar.
15. 2603047 - Velferðarþjónusta - Málefni barnaverndar 2025. Til kynningar.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
18. 2604011F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 112
Fundargerð 112.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 20.04.2026 til staðfestingar.

1. 2604048 - Beiðni um heimild til að halda sérleið í Jepparally. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
19. 2604003F - Bæjarráð Ölfuss - 464
Fundargerð 464.fundar bæjarráðs frá 16.04.2026 til staðfestingar.

1. 2604026 - Áhrif skattahækkunar á baðlón á atvinnulíf og íbúa í Ölfusi og Hveragerði. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2604027 - Beiðni um veðleyfi og veðbandalausn - Thor landeldi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2604028 - Bréf frá umboðsmanni barna - sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2604030 - Bréf frá SASS vegna samráðsfundar/vinnustofu um endurskoðun byggðaáætlunar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
20. 2604008F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 41
Fundargerð 41.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 22.04.2026 til staðfestingar.

1. 2311017 - Skýrsla skólastjóra. Til kynningar.
2. 2604039 - Fræðslumál - starfsmannakönnun Skólapúlsins. Til kynningar.
3. 2508002 - Skýrsla leikskólastjóra Hraunheima. Til kynningar.
4. 2604040 - Leikskólinn Hraunheimar - forvarnarverklag. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2311012 - Skýrsla leikskólastjóra Bergheima. Til kynningar.
6. 2406023 - Útikennslustofa. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2604032 - Farsæld barna - mælaborð. Til kynningar.
8. 2312011 - Stefna um málefni eldri borgara. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2604033 - Fræðslumál - umsóknir um stöðu skólastjóra grunnskólans. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2603046 - Velferðarþjónusta - fundargerð stjórnar Bergrisans. Til kynningar.
11. 2604034 - Velferðarþjónusta - fundargerð stjórnar Arnardrangs. Til kynningar.
12. 2604036 - Velferðarþjónusta - Arnardrangur. Til kynningar.
13. 2604043 - Málefni fatlaðra - Notendaráð. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.

21. 2604010F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 113
Fundargerð 113.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 27.04.2026 til staðfestingar.

1. 2604053 - Uppgræðslusjóður úthlutun 2026. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2604054 - Hreinsunarátak og umhverfisverðlaun 2026. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2604035 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Arnarvík, Lóuvík, Mávavík og Smyrlavík. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2604038 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Selvogsbraut 8 og 10, Þorlákshöfn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2601077 - Tangagljúfur og Háagljúfur - AT6. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2604055 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Þorlákshafnarlína 2. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
22. 2604013F - Ungmennaráð - 7
Fundargerð 7.fundar ungmennaráðs frá 20.04.2026 til kynningar.

1. 2604058 - Samráðsfundur um endurskoðun byggðaáætlunar
2. 2604059 - Erindi frá Færsældarráði á Suðurlandi
3. 2604060 - Samtal við ungt fólk á Suðurlandi
4. 2604061 - Ungmennaráð Ölfuss - hugmyndavinna

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðir til kynningar
23. 1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 995.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 10.03.2026, 996.fundar frá 20.03.2026 og 997.fundar frá 27.04.2026 til kynningar.

Lagt fram.
24. 2009027 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fundargerð 90.fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 28.01.2026 til kynningar.
Lagt fram.
25. 2302026 - Arnardrangur hses.fundargerðir stjórnar
Fundargerð 26.fundar stjórnar Arnardrangs frá 23.03.2026 til kynningar.
Lagt fram.
26. 1701026 - Brunamál Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu
Fundargerð 34.fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 20.03.2026 og 35.fundar frá 07.04.2026 til kynningar.
Lagt fram.
27. 1603010 - Málefni fatlaðs fólks Fundargerðir stjórnar Bergrisans.
Fundargerð 92.fundar stjórnar Bergrisans frá 23.03.2026 til kynningar.
Lagt fram.
28. 1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS.
Fundargerð 634.fundar stjórnar SASS frá 06.03.2026 og 635.fundar frá 10.04.2026 til kynningar.
Lagt fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 16:55 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?