Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 471

Haldinn í fjarfundi,
20.08.2026 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Erla Sif Markúsdóttir 1. varamaður,
Gunnsteinn R. Ómarsson aðalmaður,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri
Í upphafi fundar leitaði formaður eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.

Óskað var eftir því að taka tvö mál inn á fundinn með afbrigðum, mál nr. 2605064 og 2608042 og var það samþykkt samhljóða.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2608032 - Samkomulag um vilyrði fyrir lóð
Lagt fram samkomulag milli Sveitarfélagsins Ölfuss og Arctic Data Interconnection ehf. (ADI) um tímabundið lóðarvilyrði vegna áforma félagsins um uppbyggingu gagnavers á iðnaðarsvæði I4, Sandi I, norðan Suðurstrandarvegar.

Samkomulagið felur í sér tólf mánaða vilyrði fyrir um fimm hektara lóð vegna fyrirhugaðs 60 MW gagnavers. Jafnframt er lýst vilja til mögulegrar stækkunar svæðisins um allt að 25 hektara þegar framkvæmdir eru hafnar við fyrsta áfanga. Samkvæmt áætlunum ADI gætu skapast 50-100 varanleg störf og árlegar tekjur sveitarfélagsins af fyrsta áfanga numið um 170-300 m.kr.

Endanleg lóðaúthlutun er háð skipulagsmeðferð, sérstakri samþykkt bæjarráðs og gerð lóðarleigusamnings. ADI ber allan kostnað vegna deiliskipulags, rannsókna og annarrar undirbúningsvinnu. Samkomulagið hefur ekki áhrif á lögbundið skipulagsforræði sveitarfélagsins.

Bæjarráð fagnar áformum Arctic Data Interconnection ehf. um uppbyggingu gagnavers í Ölfusi og telur verkefnið geta stuðlað að fjölgun fjölbreyttra starfa, aukinni verðmætasköpun og styrkari tekjugrunni sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samkomulag um tímabundið lóðarvilyrði og felur bæjarstjóra að undirrita það fyrir hönd Sveitarfélagsins Ölfuss. Bæjarráð áréttar að endanleg lóðaúthlutun er háð niðurstöðu skipulagsmeðferðar, greiðslu tilskilinna gjalda, gerð lóðarleigusamnings og sérstakri ákvörðun bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.


2. 2608034 - Beiðni um aukning á stöðugildi í heimaþjónustu
Erindi frá forstöðumanni 9-unnar um aukningu á stöðugildi í heimaþjónustu. Um er að ræða auka klukkustund á hverjum degi alla daga vikunnar. Kostnaður vegna þessa er um 110 þúsund á mánuði.
Bæjarráð samþykktir beiðnina og felur starfsmönnum að vinna viðauka vegna málsins.

Samþykkt samhljóða
3. 2605064 - Fundartími bæjarstjórnar kjörtímabilið 2026-2030
Lagt er til að næsti reglulegi bæjarstjórnarfundur verði miðvikudaginn 26.ágúst kl. 16:30.
Samþykkt samhljóða
4. 2608042 - Beiðni um viðauka vegna frístundar í Bjargi
Erindi frá skólastjóra grunnskólans þar sem óskað er eftir viðauka vegna ca 48% stöðugildis í Bjargi-frístund vegna aukinnar þjónustuþarfar í úrræðinu. Kostnaður vegna þessa er rúmlega 1,5 milljónir fyrir tímabilið sept-des 2026.

Bæjarráð samþykktir beiðnina og felur starfsmönnum að vinna viðauka vegna málsins.

Samþykkt samhljóða.
Fundargerðir til staðfestingar
5. 2608003F - Fjallskilanefnd - 13
Fundargerð fjallskilanefndar frá 13.08.2026 til staðfestingar.

1. 2605016 - Uppgræðsla norðan Húsmúla, vestan Hengils - úthlutun úr uppgræðslusjóði
2. 2605015 - Fundur með fjáreigendum í Ölfusi á Stuðlabakka 19. apríl 2026
3. 2608014 - Fjallskil 2026
4. 2608013 - Fjallskilanefnd - Önnur mál

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest
Fundargerðir til kynningar
6. 2104033 - Fundargerðir stjórnar Listasafns Árnesinga.
Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga frá 05.08.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:25 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?