Fundargerðir

Til bakaPrenta
Stjórn vatnsveitu - 28

Haldinn í fjarfundi,
18.06.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Geir Höskuldsson formaður,
Gestur Þór Kristjánsson varaformaður,
Bryndís Sigurðardóttir aðalmaður,
Sigmar Björgvin Árnason sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sigmar B Árnason, Sviðsstjóri/byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2606025 - Vatnsveita Akurholti
Landeigandi óskar eftir að vatnsveita Ölfuss leggi til allt efni og vinnu fyrir stofnlagnir innan deiliskipulags Akurholts.

Sjá minnisblað.

Afgreiðsla: Nefndin samþykkir að leggja til efni í 180mm stofnlögn að brunahana við lóð L211957, enda fá vatnsveitan heimild til að framlengja lagnir í austur að Hvammsvegi.

Aðrar dreifilagnir innan deiliskipulags eru á ábyrgð landeiganda.

2. 2606026 - Endurnýjun kaldavatnsstofnlagnar vatnsveitu austurveitu
Lagt er fyrir nefndina erindi frá Veitum hf um hvort vatnsveita Ölfuss vilji vera með í útboði vegna endurnýjunar stofnlagna fyrir austurveitur. Um er að ræða endurnýjun allra stofnlagna Veitna og Rariks meðfram Ölfusveg frá Kotstrandarveg og um 250 m framhjá Ingólfshvol. Um er að ræða 1 áfanga af 3 til að klára tengingu vatnsveitu á milli Ölfusborgarholu og vatnsveitunar Berglindar.
sjá meðfylgjandi fylgiskjöl.

Afgreiðsla: Nefndin telur mjög hagstætt að taka þátt í framkvæmdinni með öðrum veitum og samþykkir hana fyrir sitt leiti.
Erindinu er vísað til bæjarráðs með ósk um samþykkt á viðauka fyrir hlut vatnsveitu í framkvæmdinni.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?