Fundargerðir

Til bakaPrenta
Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 43

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
23.09.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Bettý Grímsdóttir formaður,
Óttar Ingólfsson varaformaður,
Berglind Eva Markúsdóttir aðalmaður,
Oskar Rybinski aðalmaður,
Hrafnhildur Lilja Harðardóttir aðalmaður,
Helena Helgadóttir leikskólastjóri,
Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir leikskólastjóri,
Guðlaug Einarsdóttir skólastjóri,
Ingibjörg Aðalsteinsdóttir áheyrnarfulltrúi,
Hallfríður Snorradóttir áheyrnarfulltrúi,
Sigurhanna Björg Hjartardóttir áheyrnarfulltrúi,
Harpa Vignisdóttir áheyrnarfulltrúi,
Eyrún Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Jóhanna M Hjartardóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Jóhanna M. Hjartardóttir, sviðsstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2508002 - Skýrsla leikskólastjóra Hraunheima
Leikskólastjóri fjallaði meðal annars um stöðu barna og aðlögun á nýrri deild, samstarf Hraunheima, Bergheima og Grunnskólans í Þorlákshöfn, fjölbreytt verkefni í leikskólastarfinu, fyrirkomulag íþróttastarfs og undirbúning að innleiðingu Námfús.
Fjölskyldu- og fræðslunefnd þakkar leikskólastjóra fyrir greinargóða skýrslu og yfirferð.

Nefndin fagnar því fjölbreytta starfi sem fram fer á Hraunheimum og leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf milli leikskólanna og grunnskólans með það að markmiði að stuðla að samfellu milli skólastiga og farsæld barna.
2. 2311012 - Skýrsla leikskólastjóra Bergheima
Fjölskyldu- og fræðslunefnd þakkar leikskólastjóra fyrir greinargóða skýrslu og yfirferð.

Nefndin fagnar því fjölbreytta starfi og samstarfi sem fram kemur í skýrslunni, ekki síst markvissu samstarfi leik- og grunnskóla og góðum tengslum við foreldra og nærsamfélagið.

Fjölskyldu- og fræðslunefnd þakkar leikskólastjóra fyrir greinargóða skýrslu.

Nefndin fagnar fjölbreyttu starfi á Bergheimum og leggur sérstaka áherslu á mikilvægi góðs samstarfs milli skólastiga, heimila og nærsamfélagsins í þágu farsældar barna.
3. 2603052 - Leikskólinn Bergheimar - Leikskóladagatal 2026-2027
Beiðni um færslu á starfsdegi í þegar samþykktu leikskóladagatali 2026-2027:

Færa skráðan starfsdag frá 4. nóv. 2026 til 21. apríl 2027.

Foreldraráð Bergheima hefur samþykkt að þessi breyting verði gerð á leikskóladagatalinu.

Fjölskyldu- og fræðslunefnd samþykkir framlagða beiðni um breytingu á áður samþykktu leikskóladagatali Bergheima fyrir skólaárið 2026 til 2027. Breytingin felur í sér að starfsdagur, sem fyrirhugaður var 4. nóvember 2026, færist til 21. apríl 2027. Fyrir liggur samþykki foreldraráðs Bergheima fyrir breytingunni.

Samþykkt samhljóða.
4. 2311017 - Skýrsla skólastjóra
Fyrir nefndinni liggur skýrsla skólastjóra um starf skólans í upphafi skólaárs.

Skólastjóri kynnti helstu verkefni og þróunarstarf, þar á meðal innleiðingu Námfús, breytt fyrirkomulag námsmats, samstarf við félagsþjónustu og verkefni sem styðja við nám og velferð nemenda.

Fjölskyldu- og fræðslunefnd þakkar skólastjóra fyrir greinargóða skýrslu og yfirferð á skólastarfinu. Nefndin fagnar því þróunarstarfi og samstarfi sem fram kemur í skýrslunni og leggur áherslu á áframhaldandi markvisst starf í þágu náms og velferðar nemenda.
5. 2608024 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn - ísl. æskulýðsrann.
Fyrir nefndinni liggja niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar 2026 fyrir Sveitarfélagið Ölfus. Niðurstöðurnar veita mikilvægar upplýsingar um stöðu og líðan barna og ungmenna og nýtast við stefnumótun, forgangsröðun og þróun forvarnarstarfs.

Lagt er til að nefndin ræði helstu styrkleika og áskoranir sem fram koma og með hvaða hætti niðurstöðunum verði fylgt eftir.

Fjölskyldu- og fræðslunefnd þakkar kynninguna og fagnar þeim fjölmörgu jákvæðu þáttum sem fram koma í niðurstöðunum. Nefndin telur jafnframt mikilvægt að brugðist verði markvisst við þeim viðvörunarmerkjum sem koma fram í könnuninni.

Nefndin felur skólastjórnendum, í samstarfi við sviðsstjóra og farsældarteymi, að leggja fyrir nefndina tillögur að stefnumótun og gerð aðgerðaáætlunar.

Skólastjóri, leikskólastjórar og áheyrnafulltrúar viku af fundi.
9. 2609002 - Beiðni um undanþágu vegna íbúðar fyrir aldraða - Trúnaðarmál
Málinu var vísað til umfjöllunar í fjölskyldu- og fræðslunefnd af bæjarráði 3.sept. 2026
Bókun skráð sem ítarbókun.
Mál til kynningar
6. 2603045 - Velferðarþjónusta - fundargerðir farsældarráðs
Fundargerð 4. fundar farsældarráðs lögð fram til kynningar.
Nefndin þakkar kynninguna.
7. 2609019 - Velferðarþjónusta - fundargerðir framkv.hóps farsældarráðs
Fundargerð framkvæmdahóps farsældarráðs lögð fram til kynningar.
Nefndin þakkar kynninguna.
8. 2609022 - Velferðarþjónusta - þjónustusamningur við Píeta samtökin
Þjónustusamningur á milli Ölfuss og Píeta samtakanna lagður fram til kynningar.

Markmið samningsins er að efla aðgengi íbúa Ölfuss að þjónustu Píeta samtakanna með því að tryggja starfsemi svokallaðs Píeta skjóls innan Sveitarfélagsins Ölfuss.

Fjölskyldu- og fræðslunefnd hefur kynnt sér þjónustusamning milli Sveitarfélagsins Ölfuss og Píeta samtakanna. Nefndin fagnar samstarfinu og telur starfsemi Píeta skjóls mikilvæga viðbót við þjónustu íbúa sveitarfélagsins og til þess fallna að bæta aðgengi að stuðningi og ráðgjöf.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:15 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?