Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 473

Haldinn í fjarfundi,
01.10.2026 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Gunnsteinn R. Ómarsson aðalmaður,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri
Formaður leitaði eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2609063 - Viljayfirlýsing vegna mögulegrar uppbyggingar gagnavers á iðnaðarsvæði I4
Fyrir bæjarráði lá undirrituð viljayfirlýsing sem áður hafði verið samþykkt sem drög. Viljayfirlýsingin er lögð fram til upplýsinga um framvindu verkefnins.

Vilyrðið gildir í tólf mánuði en felur hvorki í sér endanlega úthlutun lóðarinnar né fyrirfram samþykki á deiliskipulagi. Markmiðið með þessu plaggi er í raun að koma okkur á þann stað að hægt verði að ljúka skipulagsvinnu. Með samþykki skipulagsnefndar, staðfestingu bæjarstjórnar og samkomulagi við ADI um lóðarleigusamning verður hægt að úthluta lóðinni.

Bæjarráð þakkar upplýsingarnar og felur starfsmönnum áframhaldandi framgang verkefnisins.

Samþykkt samhljóða.
2. 2609025 - Beiðni um viðauka vegna leikskólalóðar Hraunheima
Lögð fram greinargerð leikskólastjóra Hraunheima þar sem óskað er eftir 2.000.000 kr. viðauka við fjárhagsáætlun leikskólans vegna aðgengisbóta á leikskólalóðinni.

Fyrir liggur tilboð að fjárhæð 1.844.500 kr. í gerð göngustíga sem tengja miðsvæði lóðarinnar við rólusvæði, rennibraut og sparkvöll. Eftirstöðvar viðaukans, 155.500 kr., verði eftir atvikum nýttar til kaupa á körfurólu ásamt mögulegum óráðstöfuðum fjármunum vegna framkvæmda á lóðinni.

Framkvæmdunum er ætlað að bæta aðgengi, sjálfstæði og félagslega þátttöku barna með hreyfihömlun og aðrar stuðningsþarfir. Erindið er lagt fram til afgreiðslu bæjarráðs.

Í ljósi þess að beiðni um tilgreindan viðauka byggir á viðbrögðum við aukna þjónustuþörf vegna barns með CP lömun samþykkir bæjarráð viðaukann. Eftir sem áður beinir bæjarráð því til starfsmanna sem fara með fjárráð að halda sig innan þess ramma sem fjárhagsáætlun myndar.

Samþykkt samhljóða.
3. 2609040 - Umsókn um styrk vegna afmælistónleika
Lagt fram erindi frá Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna þar sem óskað er eftir styrk frá Sveitarfélaginu Ölfusi vegna 80 ára afmælistónleika kórsins í Hveragerðiskirkju 22. nóvember 2026.

Á tónleikunum koma fram kirkjukórinn, aðrir kórar úr sveitarfélaginu og gestatónlistarfólk. Áætlaður heildarkostnaður er 2.300.000 kr. og verður hann jafnframt fjármagnaður með miðasölu og styrkjum frá fleiri aðilum.

Bæjarráð lýsir velvilja gagnvart verkefninu og bendir umsóknaraðilum á að opið er fyrir umsóknir í lista- og menningarsjóð Ölfuss. Umsóknarfrestur er til 18.október nk.

Samþykkt samhljóða.
4. 2609039 - Beiðni um viðbótarfjárveitingu vegna reiðvegagerðar
Hestamannafélagið Háfeti óskar eftir því að bæjarráð taki til skoðunar 3,4 m.kr. viðbótarfjárveitingu til reiðvegagerðar vegna þeirrar röskunar sem orðið hefur á reiðleiðakerfinu samhliða uppbyggingu og framkvæmdum í sveitarfélaginu.

Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða.
5. 2609033 - Aðstöðuumbætur í Skötubót - beiðni um heimild til að gera tröppur og útisturtu
Fjörugufan hefur verið með gusu í Þorlákshafnarfjöru neðan við golfvöll Þorlákshafnar. Viðtökur hafa verið vonum framar og fóru yfir 100 manns í Fjörugufu fyrsta mánuðinn sem hún var starfrækt. Fyrirsvarsmönnum Fjörugufunnar langar til að bæta og efla aðkomu niður í fjöruna sem myndi nýtast bæði gestum Fjörugufunnar en einnig almenningi sem leggur leið sína í Þorlákshafnarfjöru. Að auki er óskað eftir heimild til að staðsetja útisturtu í fjörunni fyrir gesti Fjörugufunnar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin er jákvæð fyrir erindinu og samþykkir fyrir sitt leyti en umfjöllun um fjárveitingu er vísað til bæjarráðs.


Bæjarráð vísar þeim hluta erindisins sem lýtur að bættu aðgengi til umfjöllunar við gerð fjárhagsáætlunar. Ráðið telur hins vegar ekki rétt að forgangsraða fjármunum sveitarfélagsins til uppbyggingar sturtuaðstöðu við fjöruna að svo stöddu.

Bæjarráð er þó jákvætt gagnvart því að kannaðar verði forsendur fyrir því að einkaaðila verði heimilað að koma upp og reka slíka aðstöðu, komi fram áhugi þess efnis.

Samþykkt samhljóða.
6. 2609062 - Reglur og viðmið um notkun gervigreindar hjá Sveitarfélaginu Ölfusi
Fyrir bæjarráði lágu drög að reglum um ábyrga og faglega notkun gervigreindar hjá Sveitarfélaginu Ölfusi.

Markmið reglnanna er að gera starfsfólki kleift að nýta gervigreind til að bæta þjónustu, gæði og skilvirkni, án þess að draga úr faglegri ábyrgð, réttaröryggi, persónuvernd, upplýsingaöryggi, gagnsæi eða trausti til sveitarfélagsins og/eða starfsmanna þess.
Reglurnar eiga jafnframt að tryggja að staðbundin þekking, sérfræðiþekking starfsfólks og gögn sveitarfélagsins séu forsenda vinnunnar.


Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög með þeim athugasemdum sem komu fram á fundinum og felur starfsmönnum að kynna þau fyrir framkvæmdastjórum sveitarfélagsins sem síðan fylgja reglunum eftir gagnvart sínum starfsmönnum.

Samþykkt samhljóða.


7. 2608035 - Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss 2027-2030
Lögð fram verk- og tímaáætlun vegna gerðar fjárhagsáætlunar Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árið 2027. Áætlunin afmarkar helstu áfanga, skilafresti og ábyrgð við gagnaöflun, mótun rekstrar- og framkvæmdaáætlunar og pólitíska afgreiðslu.

Gert er ráð fyrir að tillaga að fjárhagsáætlun verði tekin fyrir í bæjarráði 20. nóvember, fyrri umræða fari fram í bæjarstjórn 26. nóvember og síðari umræða og lokaafgreiðsla 10. desember. Samþykktri áætlun verði skilað til opinberra aðila eigi síðar en 15. desember.

Tímaáætlunin er lögð fram með fyrirvara um breytingar vegna framvindu vinnunnar og fundaáætlunar sveitarfélagsins.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi drög að verk- og tímaáætlun vegna gerðar fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða.
8. 2609037 - Notendaráð sveitarfélaga
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga þar sem sveitarfélögin eru minnt á mikilvægi þess að skipa í lögbundin notendaráð sveitarfélaga þ.e. samráðshóp í
málefnum fatlaðs fólks, öldungaráð og ungmennaráð.

Bæjarráð þakkar erindið og tekur undir mikilvægi þess að skipað sé í umrædd ráð. Bæjarráð vill ennfremur koma því á framfæri að þegar hefur verið skipað í umrædd ráð og þau tekin til starfa.
9. 2609043 - Áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess
Lagt fram erindi Starfsgreinasambands Íslands, dags. 16. september 2026, þar sem sveitarfélög eru hvött til þátttöku í þjóðarsátt um verðstöðugleika. Tillagan felur í sér að ríki, sveitarfélög, atvinnulíf og aðrir sem áhrif hafa á verðmyndun skuldbindi sig til að halda hækkunum innan 2,5% það sem eftir lifir gildandi kjarasamninga.

SGS óskar eftir skriflegu svari um hvort Sveitarfélagið Ölfus sé reiðubúið að taka þátt og tryggja að gjaldskrár sveitarfélagsins og fyrirtækja í þess eigu hækki ekki um meira en 2,5%.

Bæjarráð tekur undir afstöðu Starfsgreinasambands Íslands um mikilvægi þjóðarsáttar til að draga úr verðbólgu og skapa forsendur fyrir lækkun vaxta. Slíkt átak krefst þess að ríki, sveitarfélög, atvinnulíf, verslun og þjónusta axli sameiginlega ábyrgð og haldi aftur af verð- og gjaldskrárhækkunum.

Bæjarráð lýsir því yfir að Sveitarfélagið Ölfus er reiðubúið að taka þátt í átakinu og miðað sé við að gjaldskrár sveitarfélagsins hækki ekki um meira en 2,5%. Jafnframt verði því beint til fyrirtækja í eigu sveitarfélagsins að fylgja sama viðmiði.

Samþykkt samhljóða.
10. 2609038 - Forsendur kjarasamninga -erindi frá VR, LÍV og Fagfélögunum
Lagt fram erindi frá VR, Landssambandi íslenzkra verzlunarmanna og Fagfélögunum, dags. 14. september 2026, vegna forsendubrests kjarasamninga og áframhaldandi verðbólgu og hárra vaxta.

Óskað er eftir upplýsingum um framlag Sveitarfélagsins Ölfuss til verðstöðugleika og afstöðu þess til endurskoðunar gjaldskrárhækkana, hraðari uppbyggingar íbúðarhúsnæðis, aðgerða til að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla og annarra leiða til að draga úr kostnaðarhækkunum heimila.

Bæjarráð tekur undir markmið erindisins um sameiginlegt átak til að draga úr verðbólgu og skapa forsendur fyrir lækkun vaxta. Slíkt átak krefst þess að ríki, sveitarfélög, atvinnulíf og aðrir sem áhrif hafa á verðmyndun sýni ábyrgð og hófsemi.

Bæjarráð bendir á að Sveitarfélagið Ölfus hefur sennilega gengið lengst allra sveitarfélaga seinustu misseri hvað þessi mál varðar. Sérstaklega hefur Ölfus gripið til umfangsmikilla aðgerða til að létta undir með heimilum. Þar má nefna gjaldfrjálsa leikskóladvöl í allt að 36 stundir á viku, gjaldfrjálsar skólamáltíðir, heimgreiðslur allt að 108.500 kr. á mánuði, frístundastyrk að fjárhæð 56.300 kr. á hvert barn og 50% lækkun álagningarhlutfalls fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði á 8 árum.

Við undirbúning fjárhagsáætlunar 2027 er gert ráð fyrir að álagningarhlutfall fasteignaskatts lækki um 5% (úr 0,20% í 0,19%) og að almennar gjaldskrár hækki eingöngu um 2,5%.

Bæjarráð lýsir því yfir að Sveitarfélagið Ölfus sé reiðubúið að taka þátt í sameiginlegu átaki um verðstöðugleika og miði við að almennar gjaldskrár sveitarfélagsins hækki ekki um meira en 2,5% í fjárhagsáætlunarvinnu næsta árs. Jafnframt er lögð áhersla á áframhaldandi framboð byggingarhæfra lóða og uppbyggingu leikskóla- og húsnæðisinnviða.

Bæjarstjóra er falið að svara erindinu í samræmi við framangreint.

11. 2609036 - Samráðsgátt - Tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði
Verkefnisstjórn 6.áfanga rammaáætlunar upplýsir að hún hefur sett tillögu um
virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði í samráðsgátt stjórnvalda sbr. lög 48/2011. Tillöguna og fylgigögn hennar ásamt upplýsingum um umsagnarfrest má nálgast á heimasíðu samráðsgáttar: https://island.is/samradsgatt/mal/4309


Lagt fram.
12. 2609052 - Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Boð á aðalfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem fram fer miðvikudaginn 7.október kl. 13:00.
Lagt fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:50 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?