| |
| 1. 2304041 - Samþykktir öldungaráðs | |
Formaður fór yfir samþykktir fyrir öldungaráð Ölfuss sem skipað var vorið 2026.
Samkvæmt 3. gr. samþykkta um hlutverk og skipan öldungaráðs kýs ráðið sér varaformann. Formaður lagði til að Ásta Júlía yrði kjörin varaformaður öldungaráðs. Tillagan var samþykkt samhljóða. | | |
|
| 2. 2602024 - Málefni aldraðra - upplýsingabæklingur um þjónustu | |
Öldungaráð þakkar fyrir framlagða kynningu á upplýsingabæklingi um þjónustu fyrir íbúa 67 ára og eldri í Ölfusi, sem og yfirferð á upplýsingum á heimasíðu sveitarfélagsins. Ráðið telur mikilvægt að eldri íbúar hafi greiðan aðgang að skýrum og aðgengilegum upplýsingum um þá þjónustu og úrræði sem þeim standa til boða.
Öldungaráð leggur til að upplýsingarnar verði reglulega endurskoðaðar og uppfærðar í samræmi við breytingar á þjónustu og þörfum markhópsins. | | |
|
| 3. 2312011 - Stefna um málefni eldri borgara | |
| Öldungaráð fagnar stefnunni og telur hana mikilvægan grunn að áframhaldandi þróun á þjónustu og stuðningi við eldra fólk í sveitarfélaginu. | | |
|
| 4. 2312021 - Starfsáætlun sviðsstjóra - kynning | |
Öldungaráð þakkar fyrir kynninguna og fagnar þeim áherslum sem unnið er eftir til að efla þjónustu og upplýsingagjöf til íbúa sveitarfélagsins.
Öldungaráð samþykkti að standa fyrir fræðsluerindum á nýju ári með það að markmiði að efla þekkingu, heilsulæsi og vellíðan eldri íbúa sveitarfélagsins. Fyrsta erindið verður í samstarfi við Krabbameinsfélagið Framför og mun fjalla um karlaheilsu, með áherslu á forvarnir, heilsueflingu og mikilvægi þess að leita sér upplýsinga og aðstoðar vegna heilsufarsmála. | | |
|