| |
| 1. 2607021 - Eima - Deiliskipulagsbreyting atvinnulóðir | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Almennt hefur ekki verið heimilað að byggja hærri byggingar en 8,5 m á landbúnaðarsvæði og telur nefndin 15 m mænishæð heldur of hátt. Þá bendir nefndin á að byggingarreitir eru heldur nálægt lóðarmörkum en almennt hefur verið miðað við að þeir séu að minnsta kosti 10 m frá lóðarmörkum. Að endingu bendir nefndin á að lóðir á landbúnaðarsvæði samkvæmt aðalskipulagi skulu ekki vera fleiri en 5 samliggjandi. Þá skortir á umfjöllun um MV4 í aðalskipulagi þar sem skipulagið liggur yfir það svæði. | | |
|
| 2. 2605011 - Tangagljúfur og Háagljúfur - AT6, ÍB36 og VÞ20 óv. ASKbr | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt.
Hvað varðarr eðli landnotkunnar þá felur breytingin í sér að landnotkun er annars vegar breytt úr Landbúnaðarsvæði í Íbúðasvæði en hins vegar að Athafnasvæði er breytt í Verslunar og þjónustusvæði. Um er að ræða áþekka landnotkunarflokka og því myndi breytingin ekki teljast veruleg hvað varðar eðli landnotkunarr. Stækkun svæðis sem verður Verslun og þjónusta auk viðbótar nýs íbúðasvæðis felur í sér að Landbúnaðarsvæði minnkar samtals um 2,3 Ha. Í gátlista útgefnum af skipulagsstofnun hefur verið miðað við að breytingar undir 3 ha. teljist ekki verulegar hvað varðar stærð svæðis. Breyting úr Athafnasvæði í Verslun og þjónustu er fremur til þess fallin að draga úr líkum á að íbúar í nágrenni verði fyrir neikvæðum áhrifum.
Að öllu þessu virtu er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna fyrir íbúum á svæðinu samhliða auglýsingu.
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010.
| | |
|
| 3. 2603067 - Hjarðarból - Fjölgun íbúðalóða - óv. ASKbr. | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt. Er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010. | | |
|
| 4. 2608008 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Laxabraut 43B, Þorlákshöfn | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt | | |
|
| 5. 2512090 - Hafnarsvæði H1 - Nýtt deiliskipulag | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Sveitarfélagið vill taka fram að umrædd landfylling er ekki komin á framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins og hefur ekki verið fullhönnuð. Landfyllingin myndi verða hluti af næsta fasa í stækkun hafnarinnar sem er nokkurra milljarða króna framkvæmd. Hönnun hafnarmannvirkja er kostnaðarsöm og veltur á ýmum breytum sem ekki liggja ljósar fyrir nú. Slík hönnun byggir á líkanagreiningu þar sem meginmarkmið er að draga úr hreyfingu innan hafnar og auka öryggi skipa sem liggja við bryggju. Ekki tímabært að ráðast í slíka hönnun fyrr en framkvæmdin hefur verið fjármögnuð og ljóst er hversu umfangsmikil hún verður. Engu að síður er mikilvægt að skipuleggja næsta fasa hafnarsvæðisins svo gera megi ráð fyrir framtíðar vegtengingum og veitutengingum í gatnagerð sem er í framkvæmd nú. Sveitarfélagið þakkar góðar ábendingar frá HMS og mun hafa þær í huga. Engu að síður telur sveitarfélagið mikilvægt að halda áfram með skipulagið mun því birta það í b-deild stjórndartíðinda. | | |
|
| 6. 2405090 - Hraunstjörn og Hraunsland nýtt DSK | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 7. 2601076 - Grásteinn - fjölgun íbúðalóða og stækkun skipulagssvæðis - DSKbr | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 8. 2402017 - Grímslækjarheiði - Hraunkvíar DSK | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 9. 2608029 - Leyfi til að dreifa PheLyz (lífhvata VAXA) á landi í Ölfusi | |
| Fá þarf staðfestingu frá umsækjanda um nákvæmt svæði áður en hægt er að afgreiða erindið. Máli frestað til næsta fundar. | | |
|
| 10. 2608036 - Lækur 4 - DSK | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Landið er innan svæðis sem skilgreint er sem grannsvæði vatnsverndar. Samkvæmt grein 13.1 í reglugerð um verndun vatns segir: Ekki skal leyfa nýjar byggingar, sumarbústaði eða þess háttar á svæðinu. Vegalagnir, áburðarnotkun og önnur starfsemi innan svæðisins skal vera undir ströngu eftirliti.
Taka þarf til sérstakrar skoðunar hvort nefndinni sé heimilt að leyfa deiliskipulag sem inniber byggingarheimildir á svæðinu. Málinu er frestað og skipulagsfulltrúa falið að hafa samband við HSL og fá leiðbeiningar um málsmeðferð. | | |
|
| 11. 2608037 - Lækjaskógar - stöðuleyfi fyrir allt að 6 20feta gáma | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samkvæmt 2.6.1. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012 er sótt um stöðuleyfi til byggingarfulltrúa viðkomandi sveitarfélags sem tekur ákvörðun um að veita eða synja byggingarleyfi og stöðuleyfi. Erindinu er því vísað til afgreiðslunefnd byggingafulltrúa til afgreiðslu. | | |
|