Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarstjórn Ölfuss - 360

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
26.08.2026 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Gestur Þór Kristjánsson forseti bæjarstjórnar,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir 1. varaforseti,
Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi,
Erla Sif Markúsdóttir bæjarfulltrúi,
Guðlaug Einarsdóttir bæjarfulltrúi,
Gunnsteinn R. Ómarsson bæjarfulltrúi,
Berglind Friðriksdóttir bæjarfulltrúi,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Fundargerð ritaði: Elliði Vignisson, bæjarstjóri


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2608053 - Skapandi sumarstörf fyrir ungmenni
Tillaga frá bæjarfulltrúum S-lista um skapandi sumarstörf fyrir ungmenni í sveitarfélaginu.

Svohljóðandi afgreiðslutillaga borin fram af Guðlaugu Einarsdóttur fyrir hönd fulltrúa D lista:

Fulltrúar D-listans taka jákvætt í markmið tillögunnar enda fellur hún fellur vel að stefnuskrá beggja flokka eins og þeir kynntu þær í aðdraganda kosninga í vor. Í stefnuskrá D-listans, Áfram af ábyrgð, var meðal annars lögð áhersla á að „efla frístundastarf og tækifæri ungmenna“, „auka aðkomu ungmenna að menningarviðburðum“ og „auka aðstöðu fyrir listir og skapandi greinar“. Þá var sérstaklega lögð áhersla á að virkja ungt fólk til áhrifa í gegnum ungmennaráð.
Skapandi sumarstörf geta sannarlega verið góð leið til að hrinda þessum markmiðum í framkvæmd, gefa ungmennum færi á að njóta hæfileika sinna og skapa um leið samfélaginu verðmæti. Mikilvægt er þó, í samræmi við áherslu D-listans á ábyrga fjármálastjórn og vönduð vinnubrögð, að fyrirkomulag, markhópur, umfang, kostnaður og árangursviðmið liggi fyrir áður en endanleg ákvörðun um fjármögnun verður tekin.
Fulltrúar D-listans leggja því til að verkefnið verði útfært sem afmarkað tilraunaverkefni fyrir sumarið 2027, í samráði við ungmennaráð, og að kostnaðar- og verkefnaáætlun verði lögð fram við vinnslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Tillagan samþykkt samhljóða.
2. 2608052 - Stuðningur við starfsfólk leikskóla til náms í leikskólakennarafræðum
Tillaga frá bæjarfulltrúum S-lista um stuðning við starfsfólk leikskóla til náms í leikskólakennarafræðum.

Svohljóðandi afgreiðslutillaga barst frá undirrituðum fulltrúum D-lista:

Fulltrúar D-listans taka undir markmið tillögunnar um að fjölga fagmenntuðum leikskólakennurum og styrkja faglegt starf leikskóla sveitarfélagsins.
Markmið tillögunnar fellur vel að stefnuskrá D-listans, Áfram af ábyrgð. Þar er lögð áhersla á að hagsmunir barna séu í forgrunni ákvarðana, að tryggja áframhaldandi gæði í þjónustu við fjölskyldur, fjölga leikskólaplássum og tryggja börnum framúrskarandi uppvaxtarskilyrði. Hæft og vel menntað starfsfólk er ein mikilvægasta forsenda þess að þessi markmið náist.
Fulltrúar D-listans telja þó mikilvægt að stuðningur við nám starfsmanna byggist á skýrum og almennum reglum, jafnræði, tengslum námsins við viðkomandi starf og ábyrgri meðferð fjármuna. Sveitarfélagið hefur þegar sett sér reglur um launuð námsleyfi starfsmanna og því er eðlilegra að endurskoða og þróa þær reglur en að koma á sérstöku og óútfærðu stuðningskerfi fyrir einn starfsmannahóp.
Með það að leiðarljósi felur bæjarstjórn bæjarstjóra að láta endurskoða sérstaklega árangur þess fyrirkomulags sem áður hefur verið viðhaft gagnvart starfsfólki. Við vinnuna verði sérstaklega metnir kostir þess að bæta inn í reglurnar heimild fyrir starfsmenn, sem uppfylla skilyrði þeirra meðal annars um starfsaldur, til að fá allt að fimm daga á önn án launaskerðingar vegna staðlota og prófa, enda tengist námið starfi viðkomandi hjá sveitarfélaginu. Niðurstaða slíkrar vinnu verði forsenda ákvörðunar í tengslum við fjárhagsáætlun 2027.
Með því móti er hægt að styðja með markvissum hætti við menntun og starfsþróun, fjölga fagmenntuðu starfsfólki allra stofnanna og bæta samhliða þjónustu við börn og fjölskyldur, um leið og gætt er að jafnræði milli starfsmanna, gagnsæis og ábyrgrar fjármálastjórnar.

Erla Sif Markúsdóttir, Grétar Ingi Erlendsson, Guðlaug Einarsdóttir og Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir.

Tillagan borin upp. Sex bæjarfulltrúar greiddu afgreiðslutillögunni atkvæði sitt. Gestur Þór Kristjánsson D-lista sat hjá og lagði fram eftirfarandi bókun:

Undirritaður tekur undir mikilvægi þess að fjölga fagmenntuðum leikskólakennurum og efla faglegt starf leikskóla sveitarfélagsins. Hann telur hins vegar ekki rétt að sveitarfélagið stofni með sérstökum ákvörðunum til viðbótarréttinda eða launagreiðslna til einstakra starfsmannahópa umfram það sem leiðir af gildandi kjarasamningum og almennum reglum sveitarfélagsins.
Starfskjör opinberra starfsmanna eiga að byggjast á kjarasamningum, jafnræði og gagnsæjum reglum en ekki sértækum pólitískum ákvörðunum.
Sveitarfélagið fer með skattfé íbúa en ekki eigið fé og ber því skylda til að sýna sérstaka varfærni við ráðstöfun þess. Þá felur tillagan í sér fyrirheit um fjármögnun áður en umfang, fyrirkomulag og kostnaður liggja fyrir. Með vísan til framangreinds situr undirritaður hjá við afgreiðslu tillögunnar

Gestur Þór Kristjánsson
D-lista

3. 2405090 - Hraunstjörn og Hraunsland nýtt DSK
Endurauglýsing

Skipulagið er endurauglýst þar sem 12 mánaða frestur var liðinn áður en það var birt í B-deild. Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir lóðirnar Hraunstjörn og Hraunsland. Á svæðinu er hraun sem rann eftir ísöld og er því friðað samkvæmt náttúruverndarlögum. Byggingarreitum hefur verið fundinn staður þar sem hraunið er gróið og hefur takmarkað verndargildi.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
4. 2402017 - Grímslækjarheiði - Hraunkvíar DSK
Deiliskipulag Hraunkvía á Grímslækjarheiði er endurauglýst þar sem meira en 12 mánuðir eru liðnir frá lokum auglýsingarfrests og skipulagið ekki verið birt í B-deild. Skipulagssvæðið er samtals um 9,2 ha. að stærð og felur í sér afmörkun 14 íbúðalóða á reit ÍB17 skv. aðalskipulagi Ölfuss.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2605011 - Tangagljúfur og Háagljúfur - AT6, ÍB36 og VÞ20 óv. ASKbr
Endurkoma
Með breytingunni hliðrast atvinnusvæðið AT6, en heldur umfangi sínu. Atvinnusvæðið byrjar eftir breytingu þar sem land tekur að halla í bæjarholtinu með minna skuggavarpi á þegar skipulagðar íbúðarlóðir á háholtinu, sbr. deiliskipulag um Háagljúfur. Atvinnusvæðið færist einnig milli taflna í aðalskipulagi, fer úr því að vera athafnasvæði með lítið mengandi starfsemi í svæði fyrir verslun og þjónustu. Gert er ráð fyrir að sá hluti atvinnusvæðisins sem er sunnan og vestan Ölfusvegar verði fyrir alhliða þjónustu við ferðamenn, íþrótta- og afþreyingarmiðstöð og vagna- og vélasölu. Eftir breytingu myndi verslunar og þjónustusvæði vera 8,2 ha. en nýtt íbúðasvæði 2,4 ha. Samtals eru svæðin því 10,6 ha. Fyrir breytingu er AT6 svæðið samtals 8,3 ha. Aðalskipulagsbreytingin felur að hluta til í sér hliðrun og að hluta til breytingu úr AT í ÍB og VÞ svæði. Þá er um að ræða stækkun á heildarsvæðinu úr Landbúnaðarsvæði í ÍB og VÞ um 2,3 ha.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt.
Hvað varðar eðli landnotkunar þá felur breytingin í sér að landnotkun er annars vegar breytt úr landbúnaðarsvæði í íbúðasvæði en hins vegar að athafnasvæði er breytt í verslunar- og þjónustusvæði. Um er að ræða áþekka landnotkunarflokka og því myndi breytingin ekki teljast veruleg hvað varðar eðli landnotkunar. Stækkun svæðis sem verður verslun og þjónusta auk viðbótar nýs íbúðasvæðis felur í sér að landbúnaðarsvæði minnkar samtals um 2,3 Ha. Í gátlista útgefnum af Skipulagsstofnun hefur verið miðað við að breytingar undir 3 ha. teljist ekki verulegar hvað varðar stærð svæðis. Breyting úr athafnasvæði í verslun og þjónustu er fremur til þess fallin að draga úr líkum á að íbúar í nágrenni verði fyrir neikvæðum áhrifum.

Að öllu þessu virtu er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna fyrir íbúum á svæðinu samhliða auglýsingu.

Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2512090 - Hafnarsvæði H1 - Nýtt deiliskipulag
HMS gerðu athugsemdir við birtingu skipulagsins í B-deild á grundvelli þess að ekki hafi verið nægilega skýrt hvernig landfylling undir lóðinni Hafnarvegi 2 skuli háttað. HMS gera einnig athugasemd við að umrætt landfylling gæti verið tilkynningarskyld til HMS á grundvelli laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Sveitarfélagið vill taka fram að umrædd landfylling er ekki komin á framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins og hefur ekki verið fullhönnuð. Landfyllingin myndi verða hluti af næsta fasa í stækkun hafnarinnar sem er nokkurra milljarða króna framkvæmd.
Hönnun hafnarmannvirkja er kostnaðarsöm og veltur á ýmum breytum sem ekki liggja ljósar fyrir nú. Slík hönnun byggir á líkanagreiningu þar sem meginmarkmið er að draga úr hreyfingu innan hafnar og auka öryggi skipa sem liggja við bryggju. Ekki er tímabært að ráðast í slíka hönnun fyrr en framkvæmdin hefur verið fjármögnuð og ljóst er hversu umfangsmikil hún verður. Engu að síður er mikilvægt að skipuleggja næsta fasa hafnarsvæðisins svo gera megi ráð fyrir framtíðar vegtengingum og veitutengingum í gatnagerð sem er í framkvæmd nú.
Sveitarfélagið þakkar góðar ábendingar frá HMS og mun hafa þær í huga. Engu að síður telur sveitarfélagið mikilvægt að halda áfram með skipulagið mun því birta það í b-deild Stjórnartíðinda.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2601076 - Grásteinn - fjölgun íbúðalóða og stækkun skipulagssvæðis - DSKbr
HMS gerðu athugasemdir við aðalskipulagsbreytingu sem gerð var samhliða deiliskipulagsbreytingunni. Athugasemd HMS fólst í að þau töldu aðalskipulagsbreytinguna ekki geta talist óverulega sbr. 36. gr. skipulagslaga. Í ljósi þess að aðalskipulagsbreytingin fékk ekki fram að ganga eru gerðar breytingar á deiliskipulaginu svo það samrýmist núgildandi aðalskipulagi. Byggingarheimildir hafa því verið fjarlægðar af öllum lóðum nema 3 og skipulagið lagt fram að nýju í uppfærðri mynd. Ekki er talin þörf á að auglýsa skipulagið að nýju þar sem þetta er eina breytingin sem gerð var á skipulaginu.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2603067 - Hjarðarból - Fjölgun íbúðalóða - óv. ASKbr.
Skipulagið hefur verið auglýst. Umsagnir bárust frá Náttúruverndarstofnun, Veitum, Vegagerðinni, Sveitarfélaginu Árborg og Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Engar athugasemdir voru gerðar við skipulagið og því er það lagt fram að nýju óbreytt.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt. Er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðir til staðfestingar
9. 2608004F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 42
Fundargerð 42.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 19.08.2026 til staðfestingar.

1. 2312021 - Starfsáætlun sviðsstjóra - kynning. Til kynningar.
2. 2311012 - Skýrsla leikskólastjóra Bergheima. Til kynningar.
3. 2508002 - Skýrsla leikskólastjóra Hraunheima. Til kynningar.
4. 2608022 - Leikskólinn Hraunheimar - skólapúlsinn kynning. Til kynningar.
5. 2311017 - Skýrsla skólastjóra. Til kynningar.
6. 2608023 - Frístund - foreldrahandbók drög. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 1906015 - Erindisbréf nefnda. Til kynningar.
8. 2608024 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn - ísl. æskulýðsrann. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
10. 2608005F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 88
Fundargerð 88.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 19.08.2026 til staðfestingar.

1. 2608028 - Flataskersbryggja - framkvæmdir. Til kynningar.
2. 2608027 - Gatnagerð - Víkursandur. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2601048 - Framkvæmdaráætlun 2025-26. Til kynningar.
4. 2608038 - Dýpkun hafnarinnar (ytri dýpkun). Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin lögð fram í heild sinni og hún staðfest.
11. 2608006F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 118
Fundargerð 118.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 21.08.2026 til staðfestingar.

1. 2607021 - Eima - Deiliskipulagsbreyting atvinnulóðir. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2605011 - Tangagljúfur og Háagljúfur - AT6, ÍB36 og VÞ20 óv. ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
3. 2603067 - Hjarðarból - Fjölgun íbúðalóða - óv. ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
4. 2608008 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Laxabraut 43B, Þorlákshöfn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2512090 - Hafnarsvæði H1 - Nýtt deiliskipulag. Tekið fyrir sérstaklega.
6. 2405090 - Hraunstjörn og Hraunsland nýtt DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
7. 2601076 - Grásteinn - fjölgun íbúðalóða og stækkun skipulagssvæðis - DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
8. 2402017 - Grímslækjarheiði - Hraunkvíar DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
9. 2608029 - Leyfi til að dreifa PheLyz (lífhvata VAXA) á landi í Ölfusi. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2608036 - Lækur 4 - DSK. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
11. 2608037 - Lækjaskógar - stöðuleyfi fyrir allt að 6 20feta gáma. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin lögð fram í heild sinni og hún staðfest.
Fundargerðir til kynningar
12. 1805041 - Menningarmál Fundargerðir stjórnar Byggðasafns Árnesinga
Fundargerð 1.fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga frá 26.08.2026 til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:30 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?