| |
| 1. 2605016 - Uppgræðsla norðan Húsmúla, vestan Hengils - úthlutun úr uppgræðslusjóði | |
| Haft var samband við Land og Skóg þar sem Landgræðslan hafði yfirleitt lagt til áburð en sveitarfélagið lagt til vinnu við dreifingu. Hjá Landi og Skóg fengust þau svör að þau hefðu ekki nægilegan áburð til að veita í verkefnið og því fékkst ekki áburður þaðan. Áburður fékkst þó frá Sláturfélagi Suðurlands og Halldór frá Nautaflötum, Guðni í Hvammi og Helgi á Kjarri sáu um fluting og dreifingu og eru þeim færðar þakkir fyrir. | | |
|
| 2. 2605015 - Fundur með fjáreigendum í Ölfusi á Stuðlabakka 19. apríl 2026 | |
| Ekkert hefur heyrst frá GOGG frá síðustu kosningum og hefur erindið ekki verið ítrekað af hálfu GOGG. Ljóst er að þó svo ný girðing yrði sett upp á þessum stað þyrfti eftir sem áður að viðhalda fyrri girðingu sem skilur fé frá suðurlandsvegi. Páll og Björn á Grásteini áttu fund með starfsmanni GOGG og formanni fjallskilanefndar. Margt er enn óljóst í málinu og þessi staðsetning girðingarinnar sem GOGG lögðu til upphaflega er ekki endilega sú heppilegasta. Boltinn í málinu er hjá GOGG og mun nefndin bíða átekta þar til haft verður samband aftur. | | |
|
| 3. 2608014 - Fjallskil 2026 | |
| Fjallseðillinn var uppfærður og samþykktur á fundinum. | | |
|
| 4. 2608013 - Fjallskilanefnd - Önnur mál | |
Deiliskipulag Litlu kaffistofunnar - ferðaþjónusta. Rætt var um deiliskipulag sem er í umsagnarferli um lóð Litlu kaffistofunnar. Nefndin lýsir áhyggjum af því að slíkur rekstur gæti haft verulega truflandi áhrif á búfé. Í 13. gr. afréttarlaga nr. 6/1986 er tiltekið að enginn má gera afréttarpeningi ónæði nema með leyfi sveitarstjórnar. Nefndin felur starfsmanni að rita umsögn um deiliskipulagið í nafni nefndarinnar og senda inn í skipulagsgátt.
Afréttargirðing við Húsmúla og Kolviðarhól er komin í mjög lélegt ástand. Vírinn er ryðgaður og leiðir illa rafmagn og fé sleppur ítrekað í gegnum girðinguna. Stundum hefur eftirlitsmaður þurft að sækja fé yfir girðingu oftar en einu sinni í viku með tilheyrandi umstangi og kostnaði. Svo vel megi vera þyrfti að leggja fremur girðingu með neti, fremur en rafmagnsgirðingu þar sem rafmagnsgirðing á þessum stað virðist hafa takmarkaða endingu. Lengd girðingarinnar er um það bil 1 km. Nefndin felur Páli og Sigurði að eiga fund með fulltrúum Vegagerðar og kalla eftir að girðingin verði endurnýjuð með sem bestu móti.
Rætt var um vaðið í Hengilsdalsánni. Vaðið er orðið mjög grýtt og erfitt yfirferðar. Fá þarf gröfumann til að skoða það og lagfæra svo hægt sé að fara þar yfir á bílum. | | |
|