| |
| 1. 2608058 - Þorláksskógar - áheyrn | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin þakkar kynninguna og tekur jákvætt í erindið. Nefndin beinir málinu til Ölfus Cluster og Hydros til upplýsinga. | | |
|
| 2. 2609047 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Bolavellir 2, Hellisheiði | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt. | | |
|
| 3. 2609048 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Mýrarsel 9A, 9B, 9C, 9D og 9E | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt. | | |
|
| 4. 2609053 - Erindi frá sóknarnefnd Strandarkirkju | |
| Afgreiðsla Skipulags og umhverfisnefndar: Nefndin felur skipulagsfulltrúa að skila ábendingu til Vegagerðinni um bæði sjóvarnir og aðkomuveg og kalla eftir umsögn. Varðandi sorpmál og salerni telur nefndin að þau málefni heyri undir landeiganda. | | |
|
| 5. 2609054 - Ósk um breytingu á lóðamörkum Pálsbúðar 16 og 18, Þorlákshöfn | |
| Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin samþykkir fyrir sitt leiti að breytingin sé framkvæmd á kostnað lóðarhafa. Nefndin bendir þó á að gera þarf bæði skipulagsbreytingu og merkjalýsingu sem getur verið kostnaðarsamt. | | |
|
| 6. 2607042 - Umsókn um deiliskipulag -eða breytingu - Birkiból 2, Ölfus | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin telur mikilvægt að halda í samræmi þar sem skipulögð hafa verið heildstæð hverfi. Skoða þarf skipulagsbreytingar sem hafa áhrif á ásýnd hverfis heildstætt, fremur en að hver lóð hafi eigin skipulagsskilmála. | | |
|
| 7. 2609064 - Gljúfurholt - Nýtt deiliskipulag | |
| Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin bendir á að lóðafjöldi er ekki í samræmi við skilmála í aðalskipulagi. Iðnaðarsvæði syðst á lóðinni er eingöngu hugsað undir hreinsivirki fyrir hverfið og því ekki heimilt að staðsetja þar iðnaðarlóðir. Þá er ekki heimilt að leyfa raðhús á landinu né fjölbýlishús samkvæmt ákvæðum aðalskipulags. | | |
|
| 8. 2609070 - Fyrirspurn um heimild til að breyta deiliskipulagi | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin telur mikilvægt að halda í samræmi þar sem skipulögð hafa verið heildstæð hverfi. Skoða þarf skipulagsbreytingar sem hafa áhrif á ásýnd hverfis heildstætt, fremur en að hver lóð hafi eigin skipulagsskilmála. | | |
|
| 9. 2604018 - Oddabraut 9 - Beiðni um heimild til að skipta upp húseign | |
| Afgreiðsla Skipulags og umhverfisnefndar: Frestað til næsta fundar | | |
|
| 10. 2610002 - Kvörtun vegna umgengni á lóð í dreifbýli | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin harmar slæma umgengni á lóðum og felur skipulagsfulltrúa að skila ábendingum til Heilbrigðiseftirlits. | | |
|