Fundargerðir

Til bakaPrenta
Skipulags- og umhverfisnefnd - 116

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
25.06.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Guðlaug Einarsdóttir varaformaður,
Geir Höskuldsson formaður,
Guðbergur Kristjánsson aðalmaður,
Bettý Grímsdóttir aðalmaður,
Guðmundur Oddgeirsson aðalmaður,
Sigurður Steinar Ásgeirsson skipulagsfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Sigurður Steinar Ásgeirsson, Sviðsstjóri Skipulags- og lögfræðisviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2606016 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Hafnarvegur 2, Þorlákshöfn
Lagt er fram merkjalýsing - uppskipting landeignar - Hafnarvegur 2, Þorlákshöfn. Merkjalýsing þessi er unnið skv. gildandi deiliskipulagi fyrir Móa svæði II í Þorlákshöfn, dags. B deild augl. 22.02.2024 og aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036. Hafnarvegur 2 er 6914,9 m2 og er stofnuð úr jörðinni Þorlákshöfn (L171822), sem er ekki með skráða stærð í fasteignaskrá HMS en minnkar nú um það sem því nemur. Lóðin er verslunar- og þjónustulóð. Enginn matshluti er á lóðinni. Engin kvöð er á lóðinni.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt
2. 2606017 - Merkjalýsing - Breyting á stærð lóðar - Hafnarbakki 8, Þorlákshöfn
Lagt er fram merkjalýsing - breyting á stærð lóðar - Hafnarbakki 8, Þorlákshöfn. Merkjalýsing þessi er unnið skv. gildandi deiliskipulagsbreytingu fyrir Hreinsistöð í Þorlákshöfn, unnin af EFLU, dags. uppdr. 15.05.2026 og aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036. Hafnarbakki 8 er með skráða stærð 746,5 m2 í fasteignaskrá HMS en minnkar nú um 200,0 m2 og verður 546,5 m2. Mismunurinn fer inn í jörðina Þorlákshöfn (L171822), sem er ekki með skráða stærð en stækkar nú um það sem því nemur. Enginn matshluti er á lóðinni. Engin kvöð er á lóðinni.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt með fyrirvara um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar og birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
3. 2606018 - Mávavík 32-36 Fyrirspurn um túlkun skipulags
Lóðarhafi að lóðinni leggur fram fyrirspurn um túlkun deiliskipulags fyrir vesturbyggð 3. áfanga. Í skipulagi er byggingarreitur raðhúss stallaður en einn eignahluti er með byggingarreit sem er 1 m styttri en hinir sem skapar töluvert óhagræði þegar íbúðir eru hannaðar. Lóðarhafi fer þess á leit að fá að byggja út fyrir byggingarreitinn 1 m þannig að allar þrjár íbúðirnar verði eins.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Þegar lóðin er borin saman við aðrar lóðir á sama svæði virðist þessi skekkja ekki koma upp. Að öllu virtu virðist vera að hér hafi bersýnileg villa ratað inn í skipulagið. Nefndin fellst á beiðina.
4. 2606020 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Efstaland E
Lagt er fram merkjalýsing - uppskipting landeignar - Efstaland E, Ölfus. Merkjalýsing þessi er unnið skv. deiliskipulagi fyrir íbúðarhús í landi Efstalands, dags. B deild augl. 03.07.2015 og aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036. Efstaland E er 13.532,6 m2 og er stofnuð úr Lyngmóar (L200528), sem er með skráða stærð 13,8 ha í fasteignaskrá HMS, en minnkar nú um það sem því nemur. Eftir uppskiptingu verður Lyngmóar (L200528) 12,4 ha. Enginn matshluti er á lóðinni.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt
5. 2606022 - Beiðni um heimild til takmarkaðrar efnistöku í landi Hamragils
Lögð er fram beiðni um takmarkaða efnistöku til rannsókna í landi Hamragils. Teknir verða um 40 m3 af efni til að kanna gæði og samsetningu jarðefna á þessum stað.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin kallar eftir meiri upplýsingum um fyrirhugaða efnistöku og samninga milli íþróttafélaga.
6. 2605050 - Vesturgljúfur 8 - Athafnasvæði í Verslunar og þjónustusvæði - óv. ASKbr
Lögð er fram óveruleg breyting á aðlaskipulagi Ölfuss er snýr að lóðinni Vesturgljúfur 8. Í aðalskipulagi er óútmælt athafnasvæði AT3 sem lóðin tilheyrir. Athafnasvæðið verður óbreytt hvað varðar aðrar lóðir í Vesturgljúfri en stofnað er nýtt verslunar og þjónustusvæði VÞ26 sem lóðin Vesturgljúfur 8 tilheyra.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Synjað. Nefndin telur að ekki fari saman að blanda saman athafnasvæði og verslun og þjónustu á þessum stað.
7. 2606023 - Gljúfurárholt land 10 - stækkun byggingarreits óv. DSKbr
Lögð er fram óveruleg deiliskipulagsbreyting fyrir lóðina stað. Breytingin felur í sér örlitla breytingu á byggingarreit.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr 123/2010.
8. 2606032 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Staður 3, Gljúfurárholt
Lagt er fram merkjalýsing - uppskipting landeignar - Staður 3, Gljúfurárholt. Merkjalýsing þessi er unnið skv. gildandi dieliskipulagsbreytingu fyrir Gljúfurárholt 10/Stað, dags. B deild augl. 24.11.2023 og aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036. Staður 3 er stofnuð úr lóðinni Staður (L199504), sem er með skráða stærð 11,3 ha í fasteignaskrá HMS, en minnkar nú og verður 9,9 ha. Staður 3 er 13651,7 m2. Enginn mahtshluti er á lóðinni. Kvöð er á lóðinni vegna aðkomuvegur um hverfið sem liggur að hluta á lóðinni.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt með fyrirvara um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar og birtingu hennar í B-deild Stjórnartíðinda.
9. 2606033 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Prufuholur við Óseyrarbraut
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi til jarðvegsrannsókna við Óseyrarbraut. Tilgangurinn rannsóknanna er að rannsaka jarðvegsaðstæður, meta burarhæfni og afla upplýsinga sem nýtast við hönnun og undirbúning fyrirhugaðar uppbyggingar. Grafnar verða þrjár prufuholur á hverjum að þremur reitum við Óseyrarbrautina sem verða afgirtar meðan á rannsókn stendur.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Beiðnin var tekin til atkvæðagreiðslu. Framkvæmdaleyfið er samþykkt með 4 atkvæðum D-lista. Guðmundur Oddgeirsson S-lista greiddi atkvæði á móti.
10. 2606035 - Árbæjarhverfi - Breyting landnotkunnar úr samfélagsþjónustu í íbúðasvæði ASKbr
Lögð er fram skipulagslýsing vegna breytingar á aðalskipulagi Ölfus í Árbæjarhverfi. Í breytingunni felst að landnotkun er breytt úr samfélagsþjónustu í íbúðasvæði.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa skipulagslýsinguna og ganga frá málinu í samræmi við 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að kynna breytinguna sérstaklega fyrir íbúum Árbæjarhverfis.
11. 2606036 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Nýr vegslóði að tengivirki á Völlum
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi til að leggja nýjan aðkomuveg að tengivirki Landsnet á Völlum við Hveragerði.Í stað þess að styrkja og breyta núverandi aðkomuveg þannig að hægt sé að flytja um hann þungaflutninga hefur verið komist að samkomulagi við Eldhelsta að gera nýjan aðkomuveg. Samfylgjandi framkvæmdum við nýjan aðkomuveg verður gerður nýr reiðstígur sunnan við núverandi tengivirki og reiðstígur samhliða Varmá sveigður örlítið frá fyrirhuguðu loftlínumastri (sjá teikningu í viðhengi) til að tengja Lækjartúnslínu 1 inn í nýjan 220 kV rofareit.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt. Bent er á að fyrirhugaður reiðvegur liggur á mörkum íbúðasvæðis í skipulagi. Gera þarf ráð fyrir að íbúðauppbygging muni fela í sér mögulega truflun fyrir reiðmenn og/eða væntanlega íbúa.
12. 2606037 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Akurholtssel, Ölfus
Lagt er fram merkjalýsing - uppskipting landeigna - Akurholtssel. Merkjalýsing þessi er utan deiliskipulags og aðalskipulagi Sveitarfélagsins Ölfuss 2020-2036. Stofna á lóð Akurholtssel úr Akurholt (L211957). Akurholtssel er 10.000,4 m2 og minnkar land Akurholts sem því nemur. Á Akurholti hvílir kvöð um að nýting vatns- og jarðhitaréttinda í Akurholti skuli ávallt vera bundin við jörðina og lögbýlið Akurholt. Lóðin stendur við Árveg og hefur aðkomu þaðan.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt.
13. 2606038 - Litla kaffistofan - Ferðaþjónusta - Nýtt deiliskipulag
Lagt er fram deiliskipulag á lóð litlu Kaffistofunnar þar sem til stendur að reka ferðaþjónustu tengda fjórhjóla og norðurljósaferðum.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin bendir á að ef núverandi slóði er færður þá þarf lóðarhafi að leggja nýjan á sinn kostnað. Minnt er á að tryggja þarf aðgengi annarra að gamla þjóðveginum.
14. 2606040 - Samskiptamastur í Gljúfurárholti
Íslandsturnar leggja fram beiðni um að staðsetja fjarskiptamastur í Gljúfurárholti á landi þar í eigu sveitarfélagsins. Mastrið er 16 metra hátt og er ætlað að efla 5g samband í dreifbýli Ölfus milli Hveragerðis og Selfoss.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna beiðnina fyrir íbúum í klettagljúfri.
15. 2606041 - Umhverfisverðlaun 2026
Umhverfisstjóri kemur fyrir fundinn og kynnir umhverfisverðlaun 2026.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Rætt á fundinum.
16. 2606042 - Beiðni um að starfrækja færanlega Saunuaðstöðu í Þorlákshafnarfjöru
Lögð er fram beiðni um að starfrækja færanlega gufubaðsaðstöðu í fjörunni fyrir neðan golfvöll.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin fagnar beiðninni en bendir á mikilvægi þess að gengið sé snyrtilega um. Heimild er veitt til reynslu, í eitt ár.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?