| |
| 1. 2609034 - Laut - 3 íbúðalóðir - nýtt DSK | |
Geir Höskuldsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Afgreiðsla skipulags og umhverfisnefndar: Nefndin hefur hingað til unnið eftir því viðmiði að lóðir á landbúnaðarlandi séu 5000m2 eða stærri, orðalag aðalskipulags líkt og vísað er til hefur nefndin álitið sem íbúðalóðir á íbúðasvæðum en lóðir á landbúnaðarlandi séu landbúnaðarlóðir, í kafla um íbúðasvæði er tekið fram að lóðir á landbúnaðarlandi skuli vera stærri en lóðir á íbúðasvæðum. Nefndin felur skipulagsfulltrúa í framhaldi af afgreiðslu þessa erindis að hefja vinnu við aðalskipulagsbreytingu til skerpingar á orðalagi fyrir landbúnaðarsvæði. | | |
|
| 2. 2610001 - Lambafell E2 og E3 - Uppfærðar magntölur í töflu - óv. ASKbr | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt með fyrirvara um samþykkt landeigenda. Breytingin felur í raun aðeins í sér uppfærslu í samræmi við umhverfismat. Er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010. | | |
|
| 3. 2601076 - Grásteinn - fjölgun íbúðalóða og stækkun skipulagssvæðis - DSKbr | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 4. 2604017 - Deiliskipulag efnistökunáma E10, E11 og E12 | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 5. 2602002 - Iðnaðarsvæði sunnan bolaöldu DSK | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Málið var tekið til atkvæðagreiðslu. Guðmundur Oddgeirsson S-lista sat hjá og vísaði til fyrri bókana um málið. Fulltrúar D-lista greiddu atkvæði með og var málið því samþykkt. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 6. 2610003 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - fjarskiptasúla - Gljúfurárholt land 13 | |
| Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna lóðum í Klettagljúfri og aðliggjandi lóðum. | | |
|
| 7. 2604018 - Oddabraut 9 - Beiðni um heimild til að skipta upp húseign | |
| Afgreiðsla Skipulags og umhverfisnefndar: Skipulagsfulltrúa er falið að grenndarkynna beiðnina til að fá fram sjónarmið nágranna áður en tekin er endanleg afstaða til hennar. Nefndin bendir á að slík breyting er byggingarleyfisskyld og myndi þurfa að uppfylla öll skilyrði núgildandi byggingarreglugerðar svo hún fengi fram að ganga. | | |
|
| 8. 2610110 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - 10 kv strengur að vatnsverksmiðju | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt. | | |
|
| 9. 2610115 - Tilnefning aðila í samstarfsnefnd um friðlandið Herdísarvík | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin tilnefnir Guðmund Oddgeirsson og Hrönn Guðmundsdóttir. | | |
|
| 10. 2609069 - Þurárhraun 13-17 beiðni um heimild til að byggja garðskála utan byggingarreits | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin er opin fyrir því að heimila deiliskipulagsbreytingu í þessu tilviki, í ljósi þess að umhverfi býður upp á það og ný bygging nálgast ekki lóðamörk annars lóðarhafa. Lóðarhafa er heimilt að gera deiliskipulagsbreytingu á sinn kostnað. | | |
|
| 11. 2610129 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Hlíðarás vegsvæði | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt. | | |
|
| 12. 2610130 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Ytri-Grímslækur vegsvæði | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt. | | |
|
| 13. 2610131 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Sögusteinn vegsvæði | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt. | | |
|
| 14. 2610132 - Víkursandur - nýjar lóðir fyrir gagnaver - DSKbr | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Bent er á að vatnstaka á svæðinu skal vera sjálfbær og afla skal umsagnar Hydros áður en borað er eftir vatni. | | |
|
| 15. 2610133 - Mói - Breyting byggingarreits vegna matvöruverslunar - DSKbr | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 16. 2610134 - Gata A 3 - stækkun lóðar og byggingarreits - Óv. DSKbr | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 17. 2511028 - Egilsbraut 9 DSKbr. - Lóð fyrir hjúkrunarheimili | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 18. 2511026 - Kirkjuferjuhjáleiga DSK | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Byggingarreitir hafa breyst frá síðustu útgáfu án þess að það hafi verið tiltekið í yfirliti breytinga. Laga þarf byggingarreiti. | | |
|
| 19. 2610137 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Vinnslu og vöktunarholur Nesbraut 25 og Laxabraut 5 | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Málinu er frestað til næsta fundar. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að kalla eftir umsögn Hydros um málið. | | |
|