Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 472

Haldinn í fjarfundi,
03.09.2026 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Gunnsteinn R. Ómarsson aðalmaður,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri
Í upphafi fundar leitaði formaður eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2609001 - Mosfellsheiðarvirkjanir I og II
Erindi frá faghópi 3 í rammaáætlun þar sem óskað er eftir áliti sveitarstjórnar á vindorkuhugmyndum sem eru til umfjöllunar í 6.áfanga rammaáætlunar.

Samkvæmt drögum að frumvarpi um rýmiseignir er áhrifasvæði vindorkuvera skilgreint sem 30 km og því mun Ölfus lenda innan þeirra marka frá virkjunarhugmyndinni Mosfellsheiðarvirkjanir I og II, sem yrðu með staðsetningu í Grímsnes- og Grafningshreppi og í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Bæjarráð Ölfuss getur að svo stöddu ekki stutt að Mosfellsheiðarvirkjun I, R4306A, eða Mosfellsheiðarvirkjun II, R4307A, verði flokkuð í orkunýtingarflokk verndar- og orkunýtingaráætlunar.

Afstaðan byggist á því að ekki liggur fyrir nægilega upplýst og endanleg útfærsla virkjunarhugmyndanna, upplýst afstaða íbúa, heildstætt mat á uppsöfnuðum áhrifum vindorku á Mosfellsheiði, flugöryggi, vatnsvernd og landslagi né bindandi greining á staðbundnu orkuöryggi og fjárhagslegum ávinningi fyrir Ölfus, íbúa og fyrirtæki.

Bæjarstjórn vísar sérstaklega til orku- og auðlindastefnu Ölfuss í þessu samhengi.

Endurskoðun afstöðu getur komið til greina þegar:

-Nákvæm hnit, fjöldi, afl og heildarhæð vindmylla liggja fyrir.

-Uppsöfnuð áhrif allra vindorkuhugmynda á heiðinni hafa verið metin.

-Óháð fjárhagsgreining sýnir brúttó- og nettóáhrif fyrir Ölfus samkvæmt gildandi lögum.

-Sýnt hefur verið fram á mælanlegan ávinning fyrir afhendingaröryggi, atvinnulíf og íbúa.

-Fullnægjandi kynning og samráð hefur farið fram við íbúa og fyrirtæki.


Samþykkt samhljóða.


2. 2609002 - Beiðni um undanþágu vegna íbúðar fyrir aldraða - Trúnaðarmál
Erindi frá forstöðumanni 9-unnar þar sem óskað er eftir undanþágu frá viðmiðum vegna umsóknar um íbúð á Egilsbraut 9.
Lagt er til að erindinu verði vísað til fjölskyldu- og fræðslunefndar til umfjöllunar.

Samþykkt samhljóða.
3. 2609004 - Beiðni um aukningu á stöðugildum í dagdvöl aldraðra
Erindi frá forstöðumanni 9-unnar þar sem óskað er eftir aukningu á stöðugildum í dagdvöl aldraðra.
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar og óskar eftir því að fyrir liggi nánari upplýsingar um hvaða breytingar hafa orðið á rekstri dagdvalar sem kalla á tilgreinda fjölgun starfsmanna.

Samþykkt samhljóða.
4. 2609005 - Beiðni um viðauka vegna viðhalds
Óskað er eftir viðauka að fjárhæð allt að 2 milljónir vegna endurbóta á íbúð í eigu sveitarfélagsins í Sambyggð 6. Nýlega urðu íbúaskipti og ekki var gert ráð fyrir þessum endurbótum í viðhaldsáætlun ársins.

Bæjarráð samþykkir erindið og felur starfsmönnum sínum að vinna viðauka vegna þess.

Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:40 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?