Fundargerðir

Til bakaPrenta
Stjórn vatnsveitu - 14

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
05.09.2023 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Björn Kjartansson aðalmaður,
Arnar Árnason aðalmaður,
Sigmar Björgvin Árnason sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sigmar B Árnason, Sviðsstjóri/byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2307014 - Kaldavatnsveitan Seyla í Árbæjarhverfi
Fyrirspurn frá umsjónaraðila vatnsveitu um mögulega yfirtöku sveitarfélagsins rædd.
Afgreiðsla: Stjórn vatnsveitu tekur jákvætt í erindið og felur starfsmanni sínum að óska eftir fundi með umsjónaraðilum.
2. 2309003 - Beiðni um tenging við vatnsveitu Ölfuss- Háagljúfur
Örn Karlsson f/h Ingólfshof óskar eftir heimild fyrir tengingu við vatnsveitu Ölfuss í dreifbýli n.t.t. vatnsveituna Berglindi/Ölfusborgir. Um er að ræða breytingu á fyrra deiliskipulagi, þar var gert var ráð fyrir einu einbýlishúsi allt að 250m2, 1800m2 skemmu/hesthús og 250m2 tækjaskemmu. Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir 2 einbýlishúsum 707m2 og 451m2 ásamt 80m2 gestahúsum, 1500m2 skemmu/hesthús, 890m2 tækjaskemmu (6 sjálfstæð einingum/bilum) 1500m2 bændagistingu/gistiheimili með alltað 15 gistirýmum.
Afgreiðsla: Stjórn vatnsveitu samþykkir erindið með þeim fyrirvara eins og fram kemur í 6 málsgr. 5.gr í lögum um vatnsveitu sveitarfélaga frá 2004 að réttur til að tengjast vatnsveitu skuldbindur ekki vatnsveitu til þess að tryggja að þrýstingur á dreifiæðum sé ávallt nægilegur.
3. 2309004 - Beiðni um tenging við vatnsveitu Ölfuss- Akurholt
Gísli R Runólfsson f/h Kot eignarhaldsfélags ehf óskar eftir heimild fyrir tengingu við vatnsveitu Ölfuss í dreifbýli n.t.t. vatnsveituna Berglindi/Ölfusborgir. Um er að ræða breytingu á fyrra deiliskipulagi. Nýtt deiliskipulag nær yfir 72 ha.svæðis. Skipulagstillagan tekur til landnotkunarreita ÍB33, ÍB34, F16, I22 og VÞ24, auk landbúnaðarsvæðis.

Í skipulagi þessu er gert ráð fyrir fjölbreyttri uppbyggingu. Samtals eru áætlaðar 50 nýjar íbúðarlóðir, 17 frístundalóðir, 3 iðnaðarlóðir og 17 lóðir fyrir verslun og þjónustu,
til viðbótar við lóðir á eldra skipulagi. Skipulagið er liður í að mæta fjölgun íbúa í Ölfusi og tryggja aðgengi að fjölbreyttum lóðum í sveitarfélaginu.

Afgreiðsla: Stjórn vatnsveitu óskar eftir vegna stærð verkefnisins uppl um neyslu- og slökkvivatnsþörf þess.
4. 2309006 - Beiðni um tenging við vatnsveitu Ölfuss- Kambastaðir
Andrea Björgvinsdóttir óskar eftir heimild fyrir tengingu við vatnsveitu Ölfuss í dreifbýli n.t.t. vatnsveituna Berglindi/Ölfusborgir. Um er að ræða breytingu á fyrra deiliskipulagi Kambastaða, þar var gert var ráð fyrir allt að 850m2 í einbýlishúsi, gestahús og skemmu. Nýtt deiliskipulag gerir ráð fyrir 4 lóðum 10.000m2, 5000m2 og 2 2500m2 það er gert ráð fyrir allt að 3000m2 byggingarmagni í 4 einbýlishúsum (eitt einbýli er þegar byggt á svæðinu) eða 3 parhúsum 6 30m2 gistihúsum/gestahúsum.
Afgreiðsla: Stjórn vatnsveitu óskar eftir frekari uppl um neyslu- og slökkvivatnsþörf verkefnisins.
5. 2305048 - Vatnsveita dreifbýli - úttekt vatnsbólum Ölfusborgir og Berglind
Stjórn vatnsveitu ræðir framtíðar framkvæmdaráætlun fyrir vatnsveitu í dreifbýli Berglindi/Ölfusborgir m.t.t. úttektarskýrslu unna af verkfræðistofunni Eflu.
Afgreiðsla: Stjórn vatnsveitu felur starfsmanni að setja upp verkefnis- og fjárfestingaráætlun næstu ára og leggja fyrir á næsta fund.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?