Fundargerðir

Til bakaPrenta
Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 42

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
19.08.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Bettý Grímsdóttir formaður,
Óttar Ingólfsson varaformaður,
Berglind Eva Markúsdóttir aðalmaður,
Ásta Júlía jónsdóttir 1. varamaður,
Hrafnhildur Lilja Harðardóttir aðalmaður,
Helena Helgadóttir leikskólastjóri,
Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir leikskólastjóri,
Guðlaug Einarsdóttir skólastjóri,
Ragnheiður María Hannesdóttir áheyrnarfulltrúi,
Inga Jóna Bragadóttir áheyrnarfulltrúi,
Elín Aðalsteina áheyrnarfulltrúi,
Harpa Vignisdóttir áheyrnarfulltrúi,
Jóhanna M Hjartardóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Jóhanna M. Hjartardóttir, sviðsstjóri
Formaður setti fund og óskaði eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.

Formaður lagði áherslu á að nefndarmenn myndu gæta trúnaðar um þau gögn, upplýsingar og umræður sem þeir fá aðgang að vegna setu sinnar í nefndinni, eftir því sem lög og reglur kveða á um.

Nefndarmenn samþykktu að undirrita trúnaðaryfirlýsingu við upphaf starfa sinna um mikilvægi þess að trúnaði sé fylgt í öllum störfum nefndarinnar.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2312021 - Starfsáætlun sviðsstjóra - kynning
Sviðstjóri kynnti starfsáætlun fjölskyldu og fræðslusviðs 2026 og þá málaflokka sem tilheyra sviðinu.

Starfsáætlunin fyrir árið 2026 leggur áherslu á samráð, þjónustuþróun og farsæld íbúa. Meginverkefni sviðsstjóra eru að samræma starf sviðsins, efla samstarf við skóla, velferðarþjónustu og aðra samstarfsaðila og fylgja eftir stefnum og nýjum verkefnum.

Helstu áherslur eru:

Skóla- og farsældarþjónusta: innleiðing farsældarþjónustu, nýrra kerfa og verklags, auk foreldrafræðslu og samráðs við sérfræðinga.

Skólastarf: reglulegt samstarf við stjórnendur grunn- og leikskóla og innleiðing m.a. FRIGG, OneCore og Námfús.

Eldri borgarar og velferð: fræðsla, heilsuefling, menning og samráð um þjónustu við eldri borgara.

Íþróttir, tómstundir og lýðheilsa: sumarnámskeið, frístundir fatlaðra og áframhaldandi þróun íþrótta- og frístundastarfs.

Menning og mannlíf: efla menningarstarf, viðburði, tónleikahald og þátttöku íbúa.

Fjölmenning og upplýsingamiðlun: fjölmenningarhátíð fyrir börn og öflug upplýsingavefsíða sveitarfélagsins.

Viðburðir og hátíðir: utanumhald og samstarf um fjölmarga viðburði, þar á meðal bæjarhátíðina Hamingjan við hafið.

Í heild miðar áætlunin að því að efla samstarf, bæta þjónustu, styðja við farsæld barna og fjölskyldna og styrkja menningu, lýðheilsu og samfélagslega þátttöku í Ölfusi.

Nefndin þakkar sviðsstjóra fyrir góða og ítarlega kynningu á starfsáætluninni og fagnar fjölbreyttum verkefnum sviðssins. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá áherslu á farsæld barna og fjölskyldna, öflugt skólastarf, velferð eldri borgara, lýðheilsu, íþrótta- og frístundastarf, menningu og samfélagslega þátttöku.
2. 2311012 - Skýrsla leikskólastjóra Bergheima
Leikskólinn Bergheimar opnaði aftur 13. ágúst eftir sumarfrí og hefur endurkoma barna og starfsfólks gengið vel. Í fyrstu vikunni er unnið að aðlögun barna milli kjarna og hefst aðlögun nýrra barna mánudaginn 24. ágúst.

Á komandi vetri verður lögð áhersla á að styrkja og skerpa á gildum Hjallastefnunnar með það að markmiði að auka gæði starfsins fyrir börn og fjölskyldur. Einnig stendur til að auka sýnileika leikskólans á samfélagsmiðlum með miðlun frétta af starfinu og stefnunni.

Nefndin þakkar leikskólastjóra fyrir góða skýrslu og fagnar því að starfsemi Leikskólans Bergheima hafi farið vel af stað eftir sumarfrí. Jafnframt er ánægjulegt að sjá þær áherslur sem fram undan eru, einkum með að styrkja og skerpa á gildum Hjallastefnunnar með það að markmiði að efla gæði skólastarfsins og stuðla að farsæld barna og fjölskyldna.
3. 2508002 - Skýrsla leikskólastjóra Hraunheima
Fyrsti skólahópur Hraunheima útskrifaðist 19. júní. Tíu börn tóku þátt og fengu þau sjálf að móta útskriftarathöfnina.

Hraunskógar: Fyrstu tíu trén hafa verið gróðursett. Stefnt er að því að hver skólahópur gróðursetji tré ár hvert og skilji þannig eftir sig varanlegt spor í nærumhverfinu.

Gróðurhús: Hraunheimar fengu 20 fermetra gróðurhús eftir að hafa unnið sumarleik Bambahúss og K100. Börn, foreldrar og starfsfólk hafa ræktað meðal annars jarðarber, tómata, blóm, klettasalat og grænkál.

Fjórða deildin, Ós, hefur verið opnuð og eftir aðlögun verða 62 börn í leikskólanum.

Starfsmannahópurinn hefur styrkst; fimm nýir starfsmenn hafa verið ráðnir og allir hafa eða eru að afla sér menntunar sem nýtist í leikskólastarfi.

ART og Blær: Tveir starfsmenn hafa lokið fyrri hluta ART-þjálfunar. Markmiðið er að
Hraunheimar verði ART-leikskóli. Vináttuverkefnið Blær verður einnig tekið upp í vetur.

Starfsánægja og umbótastarf: Niðurstöður starfsmannakönnunar voru almennt mjög jákvæðar. Starfsfólk upplifir gott starfsumhverfi, þátttöku í faglegri umræðu og mikla ánægju með teymisvinnu, starfsmannasamtöl og stjórnun. Umbótaáætlun hefur verið unnin út frá niðurstöðunum.

Niðurstaða: Veturinn fer vel af stað og starfsfólk er vel upplagt fyrir verkefni komandi skólaárs.

Nefndin þakkar leikskólastjóra fyrir góða og greinargóða skýrslu og fagnar þeim fjölbreyttu og metnaðarfullu verkefnum sem unnið hefur verið að í Hraunheimum.

Nefndin fagnar sérstaklega fyrsta útskriftarhópi leikskólans og þeirri áherslu að börnin hafi sjálf fengið að taka þátt í mótun útskriftarathafnarinnar. Einnig er ánægjulegt að sjá verkefni sem gefa börnunum tækifæri til að tengjast náttúrunni, læra um ræktun og taka þátt í uppbyggilegu samfélagsverkefni.
4. 2608022 - Leikskólinn Hraunheimar - skólapúlsinn kynning
Niðurstöður starfsmannakönnunar Skólapúlsins 2026

Þátttaka starfsfólks í könnuninni var mjög góð, 95,2%, og gefa niðurstöðurnar mikilvægar upplýsingar um stöðu leikskólans.

Heildarmyndin er jákvæð. Starfsfólk lýsir góðum starfsanda, góðum samskiptum og samstarfi við samstarfsfólk og stjórnendur. Einnig kemur vinnuaðstaða, mannauður og stuðningur við börn með sérþarfir vel út.

Á sama tíma koma fram skýr tækifæri til umbóta. Þar ber helst að nefna leikni í starfi, samstarf innan leikskólans, virkni foreldra í leikskólastarfinu og nægan undirbúningstíma.

Vinnuálag mælist einnig nokkuð hátt og opin svör starfsfólks benda sérstaklega á aukið svigrúm til að sinna verkefnum.

Niðurstöðurnar hafa verið nýttar við gerð umbótaáætlunar, þar sem áhersla er lögð á faglega þróun starfsfólks, markvissari teymisvinnu, aukna þátttöku foreldra, betra skipulag á undirbúningstíma og aðgerðir til að draga úr álagi.

Meginboðskapur:
Niðurstöðurnar sýna bæði styrkleika leikskólans og þau svið sem er vilji til að efla áfram. Markmiðið er að nýta niðurstöðurnar til markvissra umbóta sem styrkja starfsfólk, faglegt starf og þar með velferð barnanna.

Nefndin þakkar fyrir greinargóða kynningu á niðurstöðum starfsmannakönnunar Skólapúlsins 2026. Nefndin fagnar þeirri góðu þátttöku starfsfólks sem gefur mikilvæga og gagnlega mynd af stöðu leikskólans.

Nefndin tekur jákvætt í niðurstöðurnar og fagnar þeim styrkleikum sem fram koma, meðal annars góðum starfsanda, samskiptum og samstarfi starfsfólks og stjórnenda. Það er ánægjulegt að niðurstöðurnar hafi þegar verið nýttar við gerð umbótaáætlunar og að lögð sé áhersla á markvissa eftirfylgni með henni.

Markmiðið verði áfram að skapa gott og heilbrigt starfsumhverfi, efla faglegt starf og stuðla þannig að velferð og farsæld barnanna.
5. 2311017 - Skýrsla skólastjóra
Skólaárið fer vel af stað þrátt fyrir breytingar og umfangsmikla kerfisinnleiðingu. Megináherslur eru fagleg forysta, skólaþróun, gæði náms og kennslu, velferð og farsæld nemenda og starfsfólks.

Nýtt stjórnunarteymi hefur tekið til starfa og áhersla er á skýra verkaskiptingu og faglega forystu.

Ný upplýsingakerfi eru í innleiðingu, m.a. One Core, Námfús og Nemendagrunnur.

Allar stöður eru mannaðar; rúmlega 70 starfsmenn og 290 nemendur.

Unnið verður með niðurstöður Matsferils og skýrslu Endurbótanefndar til að styrkja skólastarfið.

Skipulagsvinna vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar stendur yfir.

Áfram verður unnið að SNKN, þróun námsmats og faglegu samstarfi kennara.

Áhersla verður á jafningjamat, símareglur og farsæld barna.

Nýjar smiðjur á elsta stigi hafa fengið jákvæðar viðtökur.

Nefndin þakkar skólastjóra fyrir greinargóða kynningu og fagnar því að skólaárið fari vel af stað þrátt fyrir umfangsmiklar breytingar og innleiðingu nýrra upplýsingakerfa.

Nefndin fagnar sérstaklega áherslum á faglega forystu, skólaþróun, gæði náms og kennslu og velferð og farsæld nemenda og starfsfólks. Jafnframt er ánægjulegt að allar stöður séu mannaðar og að nýtt stjórnunarteymi hafi tekið til starfa með skýra verkaskiptingu að leiðarljósi.
6. 2608023 - Frístund - foreldrahandbók drög
Drög að foreldrahandbók frístundar lögð fram til umræðu. Handbókinni er ætlað að veita foreldrum skýrar og hagnýtar upplýsingar um starfsemi Frístundar, skipulag, opnunartíma og þau atriði sem mikilvægt er að hafa í huga í daglegu starfi.

Í handbókinni kemur fram að Frístund er fyrir börn í 1. til 4. bekk og að lögð er áhersla á fjölbreytt tómstundastarf, skipulagða dagskrá og frjálsan leik í öruggu og skemmtilegu umhverfi. Jafnframt er lögð áhersla á vináttu, samvinnu og að tekið sé mið af þörfum hvers barns, meðal annars í samstarfi við foreldra, skóla og fagaðila þegar um sérþarfir er að ræða.

Nefndin þakkar fyrir kynningu á starfsáætlunardrögum frístundar og tekur undir þær áherslur sem þar koma fram. Nefndin leggur áherslu á að starf frístundar taki mið af þörfum barna og fjölskyldna og að skipulag og þjónusta sé skýr og fyrirsjáanleg.

Í tengslum við starfsáætlunina og fyrirhugaðar breytingar á opnunardögum frístundar leggur nefndin til að frístund verði einnig opin þá daga sem kennaraþing er áætlað, enda er um að ræða starfsdag kennara þar sem ekki er um hefðbundið skólastarf að ræða.
7. 1906015 - Erindisbréf nefnda.
Kynning á erindisbréfi fjölskyldu og fræðslunefndar og fyrirhuguðum breytingum. Sjá nánar á heimasíðu Forsíða/Stjórnsýsla/Stjórnkerfi/Ráð og nefndir/Fjölskyldu- og fræðslunefnd.
Unnið er að breytingum á erindsbréfi nefndarinnar sem er í vinnslu í stjórnkerfinu. Nánari umfjöllun um erindisbréfið verður í nefndinni þegar samþykkt erindisbréf liggur fyrir.

Nefndin þakkar fyrir upplýsingarnar.
8. 2608024 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn - ísl. æskulýðsrann.
Sveitarfélagsskýrsla með niðurstöðum grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) vorið 2026 fyrir Sveitarfélagið Ölfus lögð fram til kynningar.

Alls tóku 181 nemandi í 4. til 10. bekk þátt. Niðurstöðurnar sýna almennt sterka stöðu Grunnskóla Þorlákshafnar hvað varðar fjölskyldustuðning, vinatengsl og litla vímuefnanotkun. Jafnframt koma fram vísbendingar um áskoranir varðandi líðan yngri nemenda í kennslustundum og samskipti, neteinelti og velferð eldri nemenda.

Nefndin ákvað að fresta umfjöllun og umræðu til næsta fundar nefndarinnar þann 23. september.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:10 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?