Fundargerðir

Til bakaPrenta
Íþrótta- og tómstundanefnd - 54

Haldinn Fundarsalur íþróttamiðstöðvar,
27.08.2026 og hófst hann kl. 09:45
Fundinn sátu: Davíð Arnar Ágústsson formaður,
Sigríður María B.Fortescue varaformaður,
Ingunn Guðnadóttir aðalmaður,
Pálmi Þór Ásbergsson aðalmaður,
Ragnar M. Sigurðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi,
Berglind Eva Markúsdóttir 3. varamaður,
Fundargerð ritaði: Ragnar M. Sigurðsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2608051 - Erindisbréf nefndarinnar og tillögur að breytingum.
Tekið fyrir erindisbréf Íþrótta- og tómstundanefndar.
Formaður lagði fram tillögur að óverulegum breytingum á erindisbréfinu.
Í 2. grein er lagt til að felld verði niður setningin „en á fyrsta fundi nefndarinnar fer fram kjör varaformanns“ í staðin komi og varaformanns.
Greinin hljóðar þá svona:
Íþrótta- og tómstundanefnd Ölfuss er skipuð fimm fulltrúum og jafn mörgum til vara. Kjörtímabil fulltrúa miðast við kostningar til sveitastjórnar. Í upphafi kjörtímabils kýs bæjarstjórn formann og varaformann. Auk íþrótta- og tómstundafulltrúa á bæjarstjóri rétt á að sitja fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétt.
Í þriðju grein þar sem fjallað er um hlutverk og verkefni nefndarinnar er lagt til að fella niður setninguna.
„að gera tillögur til bæjarstjórnar um gjaldskrár þeirra stofnana sem starfa á verksviði nefndarinnar“
Samþykkt samhljóða.
2. 2608024 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn - ísl. æskulýðsrann.
Sveitarfélagsskýrsla með niðurstöðum grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) vorið 2026 fyrir Sveitarfélagið Ölfus lögð fram til kynningar.

Alls tóku 181 nemandi í 4. til 10. bekk þátt. Niðurstöðurnar sýna almennt sterka stöðu Grunnskóla Þorlákshafnar hvað varðar fjölskyldustuðning, vinatengsl og litla vímuefnanotkun. Jafnframt koma fram vísbendingar um áskoranir varðandi líðan yngri nemenda í kennslustundum og samskipti, neteinelti og velferð eldri nemenda.

Skýrsla frá Íslenskum æskulýðsrannsóknum (ÍÆ) með niðurstöðum
grunnskólakönnunar vorið 2026.
Lagt fram til kynningar og ákveðið að fresta umfjöllun til næsta fundar.
Almenn mál - umsagnir og vísanir
3. 2608048 - Erindi er varðar Tækwondóæfingar og stofnun deildar.
Erindi er varðar tækvondóæfingar og stofnun deildar innan Umf. Þórs.
Íþrótta- og tómstundanefnd fagnar fyrirhugaðri stofnun taekwondodeildar innan UMF Þórs í Þorlákshöfn.
Nefndin telur stofnun deildarinnar vera jákvæða viðbót við íþróttaframboð í sveitarfélaginu og mikilvægt skref í að auka fjölbreytni í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir börn og ungmenni.
4. 2608047 - Erindi frá yfirþjálfurum Umf. Þórs og Knattspyrnufélagsins Ægis.
Erindi vegna aðgengis leikskólabarna að íþróttastarfi á leikskólatíma
Íþrótta- og tómstundanefnd tekur jákvætt í erindi yfirþjálfara UMF Þórs og Knattspyrnufélagsins Ægis um að bæta aðgengi leikskólabarna að íþróttastarfi.
Nefndin telur það mikilvægt og jákvætt að börnum á leikskólaaldri gefist kostur á að taka þátt í skipulögðu íþróttastarfi og bendir á að sú leið sem hefur verið farin fyrir börn í Bergheimum hafi gefist vel.
Með tilkomu Hraunheima hefur skapast sú áskorun að fjarlægð leikskólans frá íþróttahúsinu gerir sambærilegt fyrirkomulag erfiðara. Nefndin telur mikilvægt að leitað verði leiða til að tryggja börnum í Hraunheimum sambærilegt aðgengi að íþróttastarfi.
Íþrótta- og tómstundanefnd hvetur því sveitarfélagið, leikskólana og íþróttafélögin til að vinna sameiginlega að því að finna farsæla og raunhæfa lausn sem tryggir sem jöfnust tækifæri leikskólabarna til þátttöku í íþróttastarfi.
Mál til kynningar
5. 2608050 - Stundatafla íþróttasalar og fimleikasalar veturinn 2026-2027) Lagt fram til kynningar kynningar.

Stundatöflur Íþróttasalar og fimleikasalar veturinn 2026 til 2027
Lagt fram til kynningar.
Í Íþróttahúsinu er orðin mjög þétt dagskrá og salurinn fullbókaður frá lok skóladags og til kl. 22:00 alla virka daga. Einnig er mikið um helgar einnig og nánast fullbókaður þá daga.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 10:45 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?