| |
| 1. 2602007 - Þjónusta sveitarfélaga - þjónustukönnun Gallup 2025 | |
Bæjarráð fagnar afar góðri niðurstöðu þjónustukönnunar Gallup, sem lögð var fyrir ráðið, og telur hana skýra staðfestingu á öflugri og metnaðarfullri þjónustu sveitarfélagsins við íbúa sína.
Niðurstöðurnar sýna að Sveitarfélagið Ölfus stendur sig einstaklega vel í samanburði við önnur sveitarfélög landsins, ekki síst meðal sveitarfélaga með 3.000-8.000 íbúa. Sérstaklega er ánægjulegt að sjá að ánægja íbúa mælist hæst meðal allra íbúa samanburðarsveitarfélaga á 9 af 13 þjónustuþáttum og að þjónusta við börn og fjölskyldur þeirra skuli skara fram úr á landsvísu.
Bæjarráð leggur ríka áherslu á að þessar niðurstöður endurspegli fyrst og fremst fagmennsku, elju og metnað starfsfólks sveitarfélagsins og vill sérstaklega færa framlínustarfsfólki einlægar þakkir fyrir framúrskarandi störf. Sú staðreynd að ánægja með úrlausn erinda íbúa mælist hvergi meiri er skýr vitnisburður um góða þjónustulund, skilvirkni og mannlega nálgun í störfum sveitarfélagsins.
Jafnframt lítur bæjarráð á niðurstöður varðandi þá þætti þar sem enn er svigrúm til umbóta sem mikilvægt leiðarljós til áframhaldandi þróunar og framfara, í samræmi við markmið sveitarfélagsins um stöðugar umbætur í þjónustu við alla íbúa.
Það er bæjarráði sérstakt gleðiefni að meirihluti íbúa telji búsetugæði hafa aukist á undanförnum árum og að yfirgnæfandi hluti þeirra myndi mæla með búsetu í Ölfusi við vini og ættingja. Slíkt er skýr staðfesting á að Sveitarfélagið Ölfus er á réttri leið.
Bæjarráð mun áfram vinna markvisst að því að styrkja innviði, þjónustu og lífsgæði íbúa sveitarfélagsins, í góðu samstarfi við starfsfólk og samfélagið allt.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 2. 2601078 - Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2025-2026 | |
Bæjarráð felur starfsmönnum sínum að óska eftir því við Innviðaráðuneytið að úthlutun byggðakvóta frá fyrra ári verði með sama hætti og verið hefur undanfarin ár.
Þannig verði 35% skipt jafnt á milli allra skipa sem uppfylla skilyrði 1. gr. reglugerðar nr. 665/2013 um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa á fiskveiðiárinu sem skráð voru í Þorlákshöfn og hafa almennt veiðileyfi. 65% verði úthlutað eftir lönduðum afla síðasta fiskveiðiárs.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 3. 2602005 - Leikskólakennaranám - launað námsleyfi | |
Bæjarráð þakkar bréfriturum fyrir erindið og þann áhuga sem þar kemur fram á eflingu fagmennsku og menntunar innan leikskólastarfs í sveitarfélaginu.
Bæjarráð hefur fjallað um erindið en telur ekki forsendur til að verða við þeim óskum sem þar koma fram um sérstakan rétt til launaðra námsleyfa fyrir afmarkaðan hóp starfsmanna en vísar til almennra reglna sveitarfélagsins um námsleyfi starfsmanna: https://www.olfus.is/static/files/Stjornsysla/Reglur/2026/reglur-um-launud-namsleyfi-starfsmanna-endurskodun-feb-2021.pdf
Við mat á erindinu er litið til þess grundvallarsjónarmiðs að allir starfsmenn sveitarfélagsins skulu sitja við sama borð þegar kemur að réttindum og kjörum, þar á meðal réttindum tengdum launuðum námsleyfum.
Bæjarráð telur að það samræmist ekki jafnræði að veita hluta starfsmanna rétt til að sækja sér nám á launum, þegar aðrir starfsmenn sveitarfélagsins hafa stofnað til sambærilegra réttinda á eigin kostnað og án launagreiðslna. Slík mismunun sé ekki talin málefnalega réttlætanleg.
Með vísan til framangreinds er erindinu hafnað. Bæjarráð leggur þó áherslu á að sveitarfélagið metur mikilvægi menntunar og fagþekkingar starfsfólks mikils og að áfram verði unnið að heildstæðri stefnumótun um mannauðsmál á grundvelli jafnræðis, gagnsæis og samræmis í kjörum starfsmanna.
| | |
|
| 4. 2602006 - Umsögn Sv.fél.Ölfuss og Hydros ehf. um drög að frumvarpi til laga um lagareldi | |
Bæjarráð lýsir ánægju með faglega og vel rökstudda umsögn sem styður markmið frumvarpsins um umhverfisvernd, fiskvelferð og sjálfbæra nýtingu auðlinda, jafnframt því að lögð er áhersla á sérstöðu landeldis og mikilvægi skýrs, fyrirsjáanlegs og stöðugs regluverks.
Bæjarráð telur að sjónarmið umsagnarinnar um hlutlæg viðmið, heildarmat fiskvelferðar og trausta stjórnsýslu séu mikilvæg fyrir áframhaldandi uppbyggingu landeldis og atvinnulífs í sveitarfélaginu og styður framlagningu hennar sem mikilvægt innlegg í lagasetningarferlið.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 5. 1704002 - Lagafrumvörp Beiðni Alþingis um umsögn. | |
Lagt fram.
| | |
|