Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 474

Haldinn í fjarfundi,
15.10.2026 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Gunnsteinn R. Ómarsson aðalmaður,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Í upphafi fundar leitaði formaður eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2608035 - Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss 2027-2030
Fyrir bæjarráði liggja forsendur fjárhagsáætlunar til samþykktar.

Þar koma fram þær áherslur sem sveitarfélagið hefur lagt upp með við gerð fjárhagsáætlunar að íbúum sé af fremsta megni hlíft við aukinni skattbyrði og að gjaldskrárhækkunum sé haldið í lágmarki.

Af þeim ástæðum gera forsendurnar ráð fyrir að álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði verði lækkað úr 0,20% í 0,19%. Þar með hefur álagningahlutfallið verið lækkað um 50% á níu árum. Þá verða almennar gjaldskrár eingöngu hækkaðar um 2,5%, sem er undir verðbólgu. Útsvarshlutfall verður óbreytt.


Bæjarráð samþykkir að við áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Ölfuss fyrir árið 2027 verði miðað við framangreindar forsendur um óbreytt útsvar, 0,19% álagningarhlutfall fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði og 2,5% hækkun gjaldskráa.

Bæjarstjóra er falið að vinna forsendurnar áfram.

Samþykkt samhljóða.
2. 2610101 - Umsókn um styrk til reksturs Sigurhæða
Erindi frá Sigurhæðum, þolendamiðstöð fyrir konur sem verða fyrir kynbundnu ofbeldi, þar sem óskað er eftir rekstrarstyrk fyrir árið 2027 að fjárhæð kr. 1.476.791.
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða.
3. 2610104 - Beiðni um stuðning til Stígamóta 2027
Erindi frá Stígamótum þar sem óskað er fjárstuðningi vegna rekstur Stígamóta fyrir árið 2027.
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða.
4. 2610105 - Beiðni um styrk til Kvennaathvarfsins 2027
Beiðni um rekstrarstyrk til Kvennaathvarfsins fyrir árið 2027. Óskað er eftir styrk að fjárhæð kr. 400.000.
Bæjarráð vísar erindinu til gerðar fjárhagsáætlunar.

Samþykkt samhljóða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:30 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?