Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarráð Ölfuss - 470

Haldinn í fjarfundi,
11.08.2026 og hófst hann kl. 12:15
Fundinn sátu: Grétar Ingi Erlendsson formaður,
Sigurbjörg Jenný Jónsdóttir aðalmaður,
Gunnsteinn R. Ómarsson aðalmaður,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri
Í upphafi fundar leitaði formaður eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2608012 - Viljayfirlýsing um lóðaúthlutun - Keflavík
Lögð fram viljayfirlýsing milli Sveitarfélagsins Ölfuss og Thor landeldis ehf., dags. 16. júlí 2026, um fyrirhugaða leigu á um 18 hektara lóð milli Laxabrautar 41 og Laxabrautar 45, sunnan Suðurstrandarvegar.

Gert er ráð fyrir að lóðin verði leigð með sömu skilyrðum og á sömu forsendum og lóðirnar Laxabraut 41 og Laxabraut 43. Viljayfirlýsingin er gerð með fyrirvara um formlegan leigusamning, samþykki stjórnar Thor landeldis ehf. og samþykki bæjarráðs.

Bæjarráð fagnar áformum Thor landeldis ehf. um frekari uppbyggingu í sveitarfélaginu og samþykkir fyrir sitt leyti framlagða viljayfirlýsingu. Bæjarstjóra er falið að undirrita hana fyrir hönd Sveitarfélagsins Ölfuss.

Endanleg úthlutun og leiga lóðarinnar er háð gerð og samþykki formlegs leigusamnings auk þess sem allar skipulagslegar og lögbundnar forsendur þurfa að vera uppfylltar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:25 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?