| |
1. 2406019 - Vindmælingarmastur í þrengslum | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulag á svæðinu heimilar ekki vindorkugarð. Nefndin sér ekki fyrir sér breytingar þar á, á gildistíma aðalskipulags og telur vindrannsóknir á svæðinu því óþarfar. | | |
|
2. 2505062 - Merkjalýsing - Samsett aðgerð - Fjallsbraut 5,8,10,12 og vegsvæði | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt | | |
|
3. 2505070 - Umsagnarbeiðni - Rannsóknarborholur norðan Geitafells | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulagsnefnd vill árétta sérstaklega að ekki verður veitt framkvæmdaleyfi til lagningar vegslóða nema fyrir liggi heimild landeigenda þeirra landa sem framkvæmdir snerta. Nefndin vill einnig benda á að Hafnarfjarðarbær virðist ekki hafa fengið umsagnarbeiðni en einn valkostur liggur að hluta um það sveitarfélag. Skoða þarf sérstaklega áhrif á grunnvatn. Bókun Guðmundar Oddgeirssonar áheyrnarfulltrúa Íbúalistans Í skjalinu “Matsskyldufyrirspurn“ er ítrekað talað um Bolaölduna sem virkjunarsvæðið en eins og hefur verið rætt á fyrri fundum Skiplags- og umhverfisnefndar gefur það heiti villandi mynd af staðsetningu væntanlegrar virkjunar sunnan Bláfjalla við Fjallið eina. Glögglega kemur fram í skjalinu að mikil óvissa er um hvar er að finna vænlegt svæði til virkjunar og þá helst til suðurs en síst til norðurs þar sem Bolaalda er, rétt við Litlu Kaffistofuna. Til stendur að fara yfir óraskað svæði með vegum og borplönum og matskyldufyrirspurnin tekur bara mið af því. Ekki er ætlunin að taka fyrir heildarmat hver áhrif fyrirhugaðrar stórvirkjunar, 100mW í raforku og rúmlega annað eins í vatni, geti haft á umhverfið og þar með talið vatnshlot. Mikið er gert úr því að væntanlega orku eigi að nýta í Ölfusi en eins og hefur komið fram í máli RG er að raforkan fari á netið, orkumarkaðinn. Mín skoðun er að áhættumeta eigi framkvæmdina við "Bláfjallavirkjun" í heild sinni en ekki bara út frá rannsóknarborunum. Í upphafi skal endinn skoða.
| | |
|
4. 2505072 - Umsagnarbeiðni - Kerfisáætlun Landsnets | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulagsnefnd samþykkir fyrirliggjandi drög að umsögn og felur skipulagsfulltrúa að senda hana í gegnum Skipulagsgátt Skipulagsstofnunar. | | |
|
5. 2402057 - Br. DSK Gljúfurárholt 23 og 24 | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr 123/2010. | | |
|
6. 2503049 - Kvörtun vegna umgengni og staðsetningu vörubíls í Lyngbergi | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulagsnefnd leggur áherslu á að fasteignaeigendur njóti svigrúms til að nýta fasteignir sínar innan þeirra marka sem lög, samþykktir og skipulag kveða á um. Um leið þarf að gæta þess að sú nýting og umgengni raski ekki eðlilegum lífsgæðum nágranna eða feli í sér hættu eða óþægindi sem ganga lengra en almennt þykir forsvaranlegt í íbúðahverfum.
Nefndin lítur svo á að erindið varði ekki aðeins einstakt deilumál heldur veki upp víðtækari spurningar um hvernig sveitarfélagið eigi að bregðast við þegar umgengni, geymsla búnaðar eða starfsemi innan íbúðasvæða fer að valda ónæði eða vanlíðan í nágrenni. Slík mál geta skarast við hlutverk byggingarfulltrúa, skipulagsfulltrúa, heilbrigðiseftirlits og jafnvel annarra eftirlitsaðila.
Nefndin felur skipulagsfulltrúa að kalla eftir umsögnum viðeigandi aðila, m.a. heilbrigðiseftirlits Suðurlands og byggingarfulltrúa, og óska eftir mat þeirra á því hvort ástand lóðar og starfsemi geti talist í andstöðu við ákvæði laga og reglna. Einnig verði kannað hvort þörf sé á sérstökum úrbótum eða aðgerðum í kjölfarið.
Jafnframt felur nefndin skipulagsfulltrúa að vinna tillögu að verklagi sveitarfélagsins við meðferð sambærilegra mála. Í þeirri vinnu verði horft til þess hvernig tryggja megi að kvartanir séu teknar alvarlega, afgreiddar faglega og að sjónarmið allra hlutaðeigandi aðila fái að koma fram með áherslu á samræmd og skilvirk viðbrögð, eflingu samráðs við fagstofnanir og vandaða upplýsingagjöf. | | |
|
7. 2110033 - DSK Akurgerði ferðaþjónustuhús | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Skipulagið er samþykkt með fyrirvara um að aflað sé samþykki stjórnar vatnsveitu um neysluvatnsöflun. Þá bendir nefndin á að lóð 1a er undir 5000 m2 en samkvæmt skilmálum aðalskipulags er lágmarksstærð lóða á landbúnaðarsvæði 5000 m2. Því þarf að stækka þá lóð. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 þegar brugðist hefur verið við áðurnefndum fyrirvörum. | | |
|