Fundargerðir

Til bakaPrenta
Framkvæmda- og hafnarnefnd - 81

Haldinn í Þjónustumiðstöð,
18.02.2026 og hófst hann kl. 08:15
Fundinn sátu: Guðbergur Kristjánsson formaður,
Grétar Ingi Erlendsson varaformaður,
Erla Sif Markúsdóttir aðalmaður,
Hrönn Guðmundsdóttir 1. varamaður,
Berglind Friðriksdóttir aðalmaður,
Sigmar Björgvin Árnason sviðsstjóri,
Benjamín Þorvaldsson hafnarstjóri,
Fundargerð ritaði: Sigmar B Árnason, Sviðstjóri og byggingarfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2601064 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur 3
Eignarhaldsfélagið Inter ehf. sækir um lóðina Hafnarvegur 3.
Afgreiðsla: Synjað. Samkvæmt 4. gr úthlutunarregla n.t.t 4.9. Hafi umsækjandi þegar fengið úthlutaðri lóð án þess að hafa hafið framkvæmdir kemur viðkomandi ekki til greina við úthlutun á nýjum lóðum.
2. 2601068 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur 3
Stórverk ehf. sækir um lóðina Hafnarvegur 3 og Unubakka 13 til vara.
Afgreiðsla: Synjað. Starfsemi fyrirtækis samrýmist ekki skilmálum deiliskipulags. Sviðstjóra falið að skoða svæði sem hentar starfseminni.
3. 2602011 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur 3
VN fasteignir ehf. sækir um lóðina Hafnarvegur 3.
Afgreiðsla: Samþykkt
4. 2602033 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur 3
Benedikt Hauksson sækir um lóðina Hafnarvegur 3.
Afgreiðsla: Synjað. Samkvæmt 4. gr úthlutunarregla n.t.t 4.9. Hafi umsækjandi þegar fengið úthlutaðri lóð án þess að hafa hafið framkvæmdir kemur viðkomandi ekki til greina við úthlutun á nýjum lóðum.
5. 2602397 - Umsókn um lóð - Hafnarvegur 3
H. Hauksson ehf. sækir um lóðina Hafnarvegur 3.
Afgreiðsla: Synjað. Samkvæmt 4. gr úthlutunarregla n.t.t 4.9. Hafi umsækjandi þegar fengið úthlutaðri lóð án þess að hafa hafið framkvæmdir kemur viðkomandi ekki til greina við úthlutun á nýjum lóðum.
6. 2602003 - Tenging Suðurvarar við Nesbraut
Sviðstjóri leggur fyrir nefndina hugmyndir af breytingum á tengingu Suðurvarar (frá suðurvararbryggju) við Nesbraut.
Afgreiðsla: Nefndin felur sviðstjóra að koma erindinu inní vinnu H3 stýrihópinn og gera ráð fyrir frekari útfærslu á þessum gatnamótum.
7. 2601047 - Stækkun grunnskóla - útboðsgögn
Sviðstjóri leggur fyrir nefndina útboðsgögn til samþykktar til útboðs.
Afgreiðsla: Frestað
8. 2602386 - Verklegar framkvæmdir - útrás fyrir fráveitu
Sviðstjóri leggur fyrir nefndina útboðsgögn fyrir útrásarlögn frá hreinsistöð til samþykktar til útboðs
Afgreiðsla: Nefndin samþykkir að bjóða framkvæmdina út.
9. 2602385 - Verklegar framkvæmdir - dælustöð fyrir fráveitu
Sviðstjóri leggur fyrir nefndina útboðsgögn fyrir dælustöð að hreinsistöð til samþykktar til útboðs
Afgreiðsla: Frestað
10. 2601048 - Framkvæmdaráætlun 2025-26
Sviðsstjóri fór yfir stöðu helstu verklegar framkvæmdir sem eru á áætlun 2025-26.
Afgreiðsla: Lagt fram, nefndin þakkar upplýsingarnar.
11. 2402060 - DSK- reit H3 á hafnarsvæði
Sviðstjóri skipulagssviðs kynnir fyrir nefndinni vinnu H3 hópsins.
Afgreiðsla: inná fundin mætti skipulagsfulltrúi og fór yfir stöðu deiliskipulagsins. Nefndin þakkar kynninguna.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 09:40 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?