| |
| 1. 2606039 - Innviðasamkomulag Akurholt | |
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi innviðasamkomulag við Kot eignarhaldsfélag vegna uppbyggingar í Akurholti. Bæjarstjóra er falið að ganga frá samkomulaginu og undirrita það fyrir hönd Sveitarfélagsins Ölfuss.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 2. 2607032 - Viljayfirlýsing vegna mögulegrar uppbyggingar gagnavers | |
Bæjarráð fagnar áhuga Glacier Grid ehf. á mögulegri uppbyggingu gagnavers í Ölfusi og samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu ásamt meðfylgjandi stuðningsyfirlýsingu.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ganga frá og undirrita gögnin fyrir hönd sveitarfélagsins. Samþykktin felur ekki í sér skuldbindingu um úthlutun lands, afhendingu raforku, fjármögnun innviða eða útgáfu leyfa, heldur heimild til áframhaldandi samtals, greiningar og undirbúnings verkefnisins.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 3. 2607034 - Viljayfirlýsing um samstarf við uppbyggingu á atvinnustarfsemi | |
Bæjarráð fagnar áhuga Landnýtingar ehf. á uppbyggingu hátæknigróðurhúsa í Ölfusi og samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu.
Bæjarstjóra er falið að undirrita viljayfirlýsinguna fyrir hönd sveitarfélagsins og vinna áfram að undirbúningi verkefnisins. Endanleg úthlutun lands og aðrar skuldbindingar sveitarfélagsins eru háðar lögbundinni málsmeðferð, samþykki þar til bærra stjórnvalda og gerð sérstakra samninga.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 4. 2607035 - Heimild til veðsetningar fasteigna við Laxabraut | |
Bæjarráð samþykkir að veita First Water hf. heimild til veðsetningar fasteigna félagsins að Laxabraut 15, 17, 19, 21 og 23 til tryggingar á skuldum félagsins við Landsbankann hf. og Arion banka hf., í samræmi við fyrirliggjandi yfirlýsingu.
Fyrir liggur að First Water hf. er í skilum við sveitarfélagið. Bæjarstjóra er falið að undirrita yfirlýsinguna fyrir hönd Sveitarfélagsins Ölfuss.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| 5. 2607031 - Kynningarbréf frá stjórn Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga | |
| Kynningarbréf Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga lagt fram til kynningar. | | |
|
| 6. 2607033 - Erindi til sveitarfélaga vegna stefnumótunar í málefnum sveitarfélaga | |
Bæjarráð felur starfsmönnum að svara spurningum innviðaráðuneytisins vegna endurskoðunar stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.
Samþykkt samhljóða.
| | |
|
| |
| 7. 2606006F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 86 | |
1. 2510047 - Fjárhagsáætlun hafnarinnar 2026. Til kynningar. 2. 2606047 - Ráðning vélstjóra á dráttarbát. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 3. 2606046 - Ekjubrú í Þorlákshöfn - viðgerð á tjökkum. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 4. 2603033 - Byggingarstjórn- og eftirlit með viðbyggingu grunnskóla. Niðurstaða nefndarinnar staðfest. 5. 2604020 - Framkvæmdir við opinn svæði 2026. Til kynningar. 6. 2601048 - Framkvæmdaráætlun 2025-26. Til kynningar.
Fundargerðin lögð fyrir í heild sinni og hún staðfest.
| | |
|
| 8. 2607002F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 87 | |
1. 2607026 - Dýpkun hafnarinnar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðin lögð fyrir í heild sinni og hún staðfest. | | |
|