| |
| 1. 2311017 - Skýrsla skólastjóra | |
| Fjölskyldu- og fræðslunefnd þakkar skólastjóra fyrir greinargóða skýrslu um starfsemi skólans. Nefndin fagnar því öfluga og metnaðarfulla starfi sem fram kemur í skýrslunni, ekki síst árangri í lestrarverkefnum, virkri þátttöku nemenda í félags- og lýðræðisstarfi og áherslu skólans á velferð, forvarnir og faglega þróun. | | |
|
| 2. 2610113 - Grunnskólinn í Þorlákshöfn - starfsáætlun 2026-2027 | |
Fjölskyldu- og fræðslunefnd þakkar fyrir vandaða og metnaðarfulla starfsáætlun Grunnskólans í Þorlákshöfn fyrir skólaárið 2026-2027.
Nefndin fagnar þeim áherslum sem þar koma fram um öflugt skólastarf, velferð nemenda, læsi, fagþróun starfsfólks og virkt samstarf við foreldra og nærsamfélagið.
Fjölskyldu- og fræðslunefnd staðfestir starfsáætlunina fyrir skólaárið 2026-2027. | | |
|
| 3. 2608023 - Frístund - foreldrahandbók | |
Fjölskyldu- og fræðslunefnd fagnar framlagðri foreldrahandbók frístundaheimilisins Brosbæjar.
Handbókin veitir skýrar upplýsingar um starfsemi, þjónustu og verklag frístundar og styrkir upplýsingagjöf og samstarf við foreldra og forsjáraðila.
Fjölskyldu- og fræðslunefnd staðfestir foreldrahandbók Frístundar fyrir starfsárið 2026-2027. | | |
|
| 4. 2311012 - Skýrsla leikskólastjóra Bergheima | |
| Fjölskyldu- og fræðslunefnd þakkar leikskólastjóra fyrir greinargóða skýrslu og fagnar öflugu fagstarfi, góðu samstarfi milli skólastiga og þátttöku leikskólans í þróunar- og rannsóknarverkefnum. | | |
|
| 5. 2508002 - Skýrsla leikskólastjóra Hraunheima | |
Fjölskyldu- og fræðslunefnd þakkar leikskólastjóra fyrir greinargóða skýrslu um starfsemi Hraunheima.
Nefndin fagnar öflugu og fjölbreyttu starfi leikskólans, sérstaklega áherslum á umhverfisfræðslu, útikennslu, félags- og tilfinningaþroska barna, auk markvissrar fagþróunar starfsfólks. | | |
|
| |
| 6. 2610107 - Leikskólamál - gjöf til barna fædd 2023 | |
Fjölskyldu- og fræðslunefnd fagnar framtaki Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu sem styður við málþroska og læsi ungra barna.
Nefndin þakkar kærlega fyrir bókagjöfina til barnanna og leikskóla sveitarfélagsins.
Skólastjórnendur og áheyrnafulltrúar viku af fundi. | | |
|
| 7. 2603045 - Velferðarþjónusta - fundargerðir farsældarráðs | |
| Nefndin þakkar kynninguna. | | |
|
| 8. 2603046 - Velferðarþjónusta - fundargerð stjórnar Bergrisans | |
| Nefndin þakkar kynninguna. | | |
|
| 9. 2610106 - Eldra fólk - fundargerð fagteymis húsnæðismála | |
| Fjölskyldu- og fræðslunefnd staðfestir niðurstöðu fagteymis húsnæðismála um úthlutun félagslegs leiguhúsnæðis að Egilsbraut 9, í samræmi við framlagða fundargerð. | | |
|