Fundargerðir

Til bakaPrenta
Ungmennaráð - 8

Haldinn Fundarsalur íþróttamiðstöðvar,
07.10.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Eva Rán Ottósdóttir aðalmaður,
Gunnar Ægir Þorsteinsson aðalmaður,
Freyja Ósk Ásgeirsdóttir aðalmaður,
Hreiðar Leó Vilhjálmsson aðalmaður,
Védís Kolka Jónsdóttir aðalmaður,
Ragnar M. Sigurðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi,
Fundargerð ritaði: Ragnar M Sigurðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2610111 - Hrekkjavökuviðburður
Hrekkjavökuviðburður
Rætt var um hrekkjavökuviðburð með spurningakeppni þann 28. október. Miðað var við að viðburðurinn yrði í grunnskólanum. Guðlaug var nefnd í tengslum við salinn og ætlar Eva Rán að hafa samband við hana.
Upphafstími var ræddur kl. 19:30 og lok kl. 21:30. Freyja og Eva Rán ætla að kanna verðlaun fyrir sigurvegara spurningakeppninnar.
Einnig var rætt um að fá féló til að færa bíókvöldið sitt um einn dag og aðstoða við auglýsingar. Þolloween var nefnt í tengslum við kynningu viðburðarins. Í miðju kvissi á að hvetja þátttakendur til að svara Google Forms formi ráðsins og senda inn tillögur um það hvað hægt er að gera í Ölfusi fyrir ungmennin okkar.
Auglýsingar og Instagram
Hengja þarf upp auglýsingar fyrir bæði hrekkjavökuviðburðinn og Instagram síðu ráðsins í íþróttahúsinu, féló, Skálanum og búðinni. Einnig þarf að birta færslur á samfélagsmiðlum.
Íþróttaviðburður í desember
Rætt var um að halda íþróttaviðburð í desember. Hugmyndir sem komu fram voru körfuboltamót, fótboltamót, brennó eða kíló og búbblubolti. Útfærsla viðburðarins er enn til umræðu.
Næsti fundur
? Ræða Þolloween viðburðinn og stöðu undirbúnings.
? Fylgja eftir tillögukassanum, sem er enn ólokið verkefni.
Dagsetning næsta fundar: 22. október.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?