Fundargerðir

Til bakaPrenta
Bæjarstjórn Ölfuss - 358

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
28.05.2026 og hófst hann kl. 16:30
Fundinn sátu: Gestur Þór Kristjánsson forseti bæjarstjórnar,
Geir Höskuldsson 2. varamaður,
Grétar Ingi Erlendsson bæjarfulltrúi,
Guðlaug Einarsdóttir 1. varamaður,
Hrönn Guðmundsdóttir bæjarfulltrúi,
Vilhjálmur Baldur Guðmundsson bæjarfulltrúi,
Berglind Friðriksdóttir bæjarfulltrúi,
Elliði Vignisson bæjarstjóri,
Sandra Dís Hafþórsdóttir sviðsstjóri,
Fundargerð ritaði: Sandra Dís Hafþórsdóttir, sviðsstjóri
Í upphafi fundar leitaði forseti eftir athugasemdum við fundarboð en engar bárust.


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2605001 - Lántaka Brunavarnir Árnessýslu 2026
Í fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir lántöku að fjárhæð kr. 240.000.000.- vegna byggingar nýrrar slökkvistöðvar á Flúðum og vegna kaups á nýrri slökkvibifreið sem staðsett verður í Reykholti.


Stjórn Brunavarna Árnessýslu og Héraðsnefnd Árnesinga hafa samþykkt lántökuna en þörf er á samþykki sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss samþykkir hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni Brunavarna Árnessýslu hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 240.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Bæjarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.

Lánið er tekið til fjármögnunar á byggingu nýrrar slökkvistöðvar á Flúðum og vegna kaupa á nýrri slökkvibifreið sem staðsett verður í Reykholti. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.

Bæjarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Brunavarna Árnessýslu til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.

Jafnframt er Elliða Vignissyni, bæjarstjóra, kt. 280469-5649, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. Sveitarfélagsins Ölfuss, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

Samþykkt samhljóða.
2. 2605002 - Viðauki við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu fyrir árið 2026
Á auka aðalfundi Brunavarna Árnessýslu 14. apríl síðast liðinn var samþykkt að gera viðauka við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu vegna ársins 2026. Viðaukinn er gerður vegna ráðningar þriggja slökkviliðsmanna sem þarf til að uppfylla lágmarkskröfur reglugerðar um mönnun dagvinnu útkallsliðs slökkviliðsins í samræmi við samþykktir Brunavarna Árnessýslu bs. frá 22.01.2025.
Bæjarstjórn samþykkir viðaukann.
3. 2605053 - Launakjör kjörinna fulltrúa
Fyrir bæjarstjórn lá tillaga frá bæjarfulltrúum B-lista um að leiðrétta laun kjörinna fulltrúa til samræmis við meðaltal samanburðarsveitarfélaga enda hafa þau kjör dregist verulega aftur úr.


Bæjarstjórn samþykkir tillöguna og felur bæjarstjóra að útfæra launakjör til samræmis við það.

Samþykkt samhljóða.
4. 2402017 - Grímslækjarheiði - Hraunkvíar DSK
Deiliskipulag Hraunkvía á Grímslækjarheiði er endurauglýst þar sem meira en 12 mánuðir eru liðnir frá lokum auglýsingarfrests og skipulagið ekki verið birt í B-deild. Skipulagssvæðið er samtals um 9,2 ha. að stærð og felur í sér afmörkun 14 íbúðalóða á reit ÍB17 skv. aðalskipulagi Ölfuss.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2604057 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Vinnsluborhola við Skarðsmýrarfjall
ON sækir um framkvæmdaleyfi til borunar vinnsluborholu við Skarðsmýrarfjall, inni á skilgreindu iðnaðarsvæði í aðalskipulagi.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2603068 - Hjarðarból - útvíkkun deiliskipulags - DSKbr
Lögð er fram breyting á deiliskipulagi Hjarðarbóls lóðir 1 og 2. Skipulagsbreytingin felur í sér stækkun skipulagssvæðisins til vesturs og afmörkun 6 nýrra íbúðalóða.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt með fyrirvara um að gerð innviða og vega í hverfinu skal fylgja ákvæðum tæknilýsingar sveitarfélagsins fyrir íbúabyggð í dreifbýli. Stofnun nýrra lóða verði heimilaðar þegar ákvæðum tæknilýsingar hefur verið fylgt. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2604056 - Þorlákshafnarvegur - óverulegar breytingar aðliggjandi DSK
Lagðar eru fram 5 óverulegar breytingar á deiliskipulögum við Þorlákshafnarveg. Breytingarnar eru gerðar samhliða deiliskipulagi vegarins til að samræma deiliskipulagsmörk.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna breytinginarnar fyrir landeigendum sem þær hafa áhrif á.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2601075 - Þorlákshafnarvegur deiliskipulag
Athugasemdaferli vegna deiliskipulags fyrir Þorlákshafnarveg er lokið. Lagðar eru fram athugasemdir og viðbrögð við þeim ásamt uppfærðu deiliskipulagi.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
9. 2603079 - Fyrirspurn um ASKbr - Samfélagsþjónustusvæði í íbúðasvæði
Lögð er fram fyrirspurn um heimild til breytingar á aðalskipulagi í Árbæjarhverfi. Breytingin snýr að því að hluta af samfélagsþjónustusvæðis S16 yrði breytt í íbúðabyggð. Ekki er talið líklegt að þörf verði á skóla/leikskóla á þessum stað á næstunni og standa því hugmyndir til að nýta landið undir íbúðir.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin tekur undir að fólksfjöldi í hverfinu er ekki svo mikill að þörf verði á skóla/leikskóla þar á næstu árum. Heimild til að hefja vinnu við aðalskipulagsbreytingu veitt. Mikilvægt er að slík breyting fái kynningu fyrir íbúum í Árbæjar þegar hún er auglýst.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2605007 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Gatnagerð Hraunkvíar
Landeigandi Hraunkvía sækir um framkvæmdaleyfi til að ráðast í gatnagerð á landinu. Deiliskipulag fyrir hverfið var langt komið í skipulagsferlinu en það þurfti að endurauglýsa það þar sem það rann út á tíma. Landeigandi hefur hug á að nýta sumarið 2026 í gatnagerð. Gatnagerð verður gerð í samræmi við tæknilýsingu sveitarfélagsins fyrir íbúabyggð í dreifbýli.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
11. 2602009 - Árbær 4 - Dýraspítali og verslunarlóðir - DSK
Endurkoma eftir auglýsingaferli. Skipulagshöfundur hefur brugðist við innkomnum athugasemdum og er lagt fram uppfært deiliskipulag ásamt stafrænum gögnum.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
12. 2605035 - Hafnarbakki 8 - óv. DSKbr.
Lögð er fram óveruleg breyting deiliskipulags hafnarsvæðis. Breytingin snýr að lóðinni Hafnarbakka 8 og felur í sér lítillega stækkun byggingarreits.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
13. 2510075 - Hafnarsandur 2 - Stækkun lóðar vegna tengivirkis DSKbr
Endurkoma eftir athugasemdir SLS. Skipulagsstofnun gerðu athugasemd við að skipulagið yrði birt í B-deild Stjórnartíðinda á þeim grundvelli að aðalskipulagsbreytingin hafi ekki þegar verið staðfest. Aðalskipulagsbreytingin var birt í B-deild þann 20. maí og deiliskipulagið því lagt fram að nýju til staðfestingar fyrir birtingu í B-deild.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
14. 2605048 - Lindarbær DSK
Lagt er fram deiliskipulag fyrir spilduna Lindarbær í Árbæjarhverfi. Spildan er 7.409 m2 og er ráðgert að reisa íbúðarhús, bílskúr og gróðurhús.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
15. 2603057 - Tengivirki á Völlum - DSK
Endurkoma eftir umsagnarferli. Skipulagshöfundur hefur brugðist við þeim umsögnum sem bárust á umsagnartíma og er skipulagið lagt fram í uppfærðri mynd.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
16. 2512124 - Gerðakot - Frístundahús - Nýtt deiliskipulag
Endurkoma eftir umsagnarferli. Skipulagshöfundur hefur brugðist við athugasemdum og er skipulagið lagt fram að nýju í uppfærðri mynd.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
17. 2512049 - Kirkjuferja - Fjórar íbúarlóðir - Nýtt deiliskipulag
Endurkoma eftir umsagnarferli. Skipulagshöfundur hefur brugðist við þeim athugasemdum sem bárust á umsagnartíma og er skipulagið nú lagt fram í uppfærðri mynd.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Baldur vék af fundi við afgreiðslu málsins. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Vilhjálmur Baldur Guðmundsson vék af fundi við afgreiðslu málsins:

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
18. 2605017 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Efnistaka í Núpanámu
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi til efnistöku í Núpanámu í landi vatna. Framkvæmdaleyfið tekur til efnistöku sem nemur 12.000 m3 á næstu 2-3 árum. Efnið verður nýtt sem leiðnissandur vegna lagningar Þorlákshafnarlínu 2 sem fyrirhugað er að hefja í sumar. Núpanáma er á efnistökusvæði E10 í aðalskipulagi og er náman deiliskipulögð.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Geir Höskuldsson vék af fundi við afgreiðslu málsins. Framkvæmdaleyfi veitt.

Geir Höskuldsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
19. 2605011 - Tangagljúfur og Háagljúfur - AT6, ÍB36 og VÞ20 óv. ASKbr
Lögð er fram óveruleg breyting á aðalskipulage Ölfuss sem tekur til bæjarholtsins í Gljúfurárholti. Í breytinginni felst að athafnasvæðinu AT6 er breytt í verslunar- og þjónustusvæði VÞ20. Lögun svæðisins er breytt en stærð þess er þó viðlíka og áður.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt. Er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
20. 2401047 - Þorkelsgerði 2C, nýtt DSK
Endurkoma eftir athugasemdaferli . Skipulagshöfundur hefur brugðist við athugasemdum og leggur fram uppfært skipulag.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
21. 2512090 - Hafnarsvæði H1 - Nýtt deiliskipulag
Endurkoma eftir umsagnarferli . Skipulagshöfundur hefur brugðist við athugasemdum er er skipulagið lagt fram að nýju í uppfærðri mynd.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Berglind Friðriksdóttir H-lista lagði fram eftirfarandi bókun:

Undirrituð fagnar framlagðri vinnu við deiliskipulag og telur mikilvægt að uppbygging þyngri hafnsækinnar starfsemi þróist á því svæði fremur en nær íbúabyggð. Með því má draga úr áhrifum slíkrar starfsemi á íbúa.
Mikilvægt er að tryggt verði áframhaldandi aðgengi almennings að fjörunni, líkt og bent er á í umsögn Náttúruverndarstofnunar. Um er að ræða mikilvægt útivistar- og náttúrusvæði sem þarf jafnframt að vernda og þróa með hagsmuni almennings að leiðarljósi.
Undirrituð hvetur til þess að samhliða þessari vinnu deiluskipulags verði unnið sérstaklega að hönnun og útfærslu á bættu aðgengi að svæðinu. Þar skiptir máli að tryggðir verði öruggir og aðgengilegir göngu- og hjólastígar frá þorpinu og alla leið að fjörunni þannig að íbúar geti notið svæðisins með öruggum hætti.
Þá er óskað eftir því að haldinn verði sérstakur kynningarfundur um þetta skipulag þar sem íbúum og öðrum hagaðilum gefst tækifæri til að kynna sér málið og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Mikilvægt er að sveitarfélagið leggi sig fram við að kynna málið með skýrum og aðgengilegum hætti, bæði á vef sveitarfélagsins og t.a.m. með umfjöllun á svæðismiðlum.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
22. 2402060 - DSK- reit H3 á hafnarsvæði
Lagt er fram deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið umhverfis Suðurvararbryggju. Á hafnarsvæðinu er gert ráð fyrir athafnasvæðinu AT8 og hafnarsvæði H3. Þar er einnig gert ráð fyrir að útsýnispallur við Suðurvör verði færður sunnar, nær Þorlákshafnarvita og að útbúið verði bílastæði og upphækkaður útsýnispallur þar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin leggur til að hluti bílastæða verði þannig staðsett að hægt sé að horfa yfir sjóvarnargarð úr bíl líkt og á eldri útsýnispalli. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Berglind Friðriksdóttir bæjarfulltrúi H-lista lagði fram eftirfarandi bókun:
Undirrituð leggur áherslu á mikilvægi þess að ráðist sé í gerð deiliskipulags svæðisins. Nauðsynlegt er að skýrar forsendur liggi fyrir um framtíðarsýn, nýtingu og umhverfisgæði svæðisins í heild. Undirrituð hefur áður gert grein fyrir skýrri andstöðu varðandi uppbyggingu íbúabyggðar sitt hvoru megin við Óseyrarbraut og er sú afstaða ítrekuð hér þar sem vikið er að þeirri uppbyggingu í deiliskipulagi sem er til umfjöllunar.
Undirrituð er þeirrar skoðunar að eðlileg mörk atvinnusvæðis liggi við útivistarpall, óháð því hvort hann færist, og leggst gegn því að atvinnuuppbygging teygi sig sunnar á kostnað útivistar- og náttúrusvæða. Mikilvægt er að viðhalda grænu svæði sem aðgreini og verndi bæði útivistargildi og fuglalíf á svæðinu.
Varðandi lóðir vestan Nesbrautar leggur undirrituð áherslu á að skýr skilyrði séu um þá starfsemi sem þar verður heimiluð, með það að markmiði að lágmarka rask gagnvart nærliggjandi íbúabyggð. Þá er sérstaklega horft til hávaða, mengunar, ásýndar og annarra umhverfisáhrifa. Þá er bent á mikilvægi þess að varðveita minjar á svæðinu í samráði við Minjastofnun Íslands.
Undirrituð leggur jafnframt ríka áherslu á að gerðar verði skýrar kröfur til hönnunar, útlits og frágangs bygginga og lóða á svæðinu. Mikilvægt er að ásýnd svæðisins taki mið af nálægð við íbúabyggð og útivistarsvæði, meðal annars með kröfum um gróðursetningu, skjólveggi og vandaðan frágang lóða.
Að endingu er óskað eftir því að haldinn verði sérstakur kynningarfundur um þetta skipulag þar sem íbúum og öðrum hagaðilum gefst tækifæri til að kynna sér málið og koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Mikilvægt er að sveitarfélagið leggi sig fram við að kynna málið með skýrum og aðgengilegum hætti, bæði á vef sveitarfélagsins og t.a.m. með umfjöllun á svæðismiðlum.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
23. 2602035 - Mýrarsel 9 - DSK
Endurkoma eftir umsagnaferli. Skipulagshöfundur hefur brugðist við athugasemdum að loknu umsagnarferli og leggur fram uppfært skipulag.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
24. 2601027 - Grásteinn - stækkun íbúðasvæðis óv. ASKbr
Endurkoma eftir umsagnarferli. Skipulagshöfundur hefur brugðist við athugasemdum og leggur fram uppfært skipulag.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Björn Kjartansson vék af fundi við afgreiðslu málsins. Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt. Er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
25. 2601076 - Grásteinn - fjölgun íbúðalóða og stækkun skipulagssvæðis - DSKbr
Endurkoma eftir umsagnarferli. Skipulagshöfundur hefur brugðist við athugasemdum og leggur fram uppfært skipulag.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
Fundargerðir til staðfestingar
26. 2604014F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 84
Fundargerð 84.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 30.04.2026 til staðfestingar.

1. 2602385 - Verklegar framkvæmdir - dælustöð fyrir fráveitu. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2604063 - Viðbygging - grunnskóla. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2604064 - Flataskersbryggja - útboð. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
27. 2605001F - Bæjarráð Ölfuss - 465
Fundargerð 465.fundar bæjarráðs Ölfuss frá 07.05.2026 til staðfestingar.

1. 2511011 - Fornleifarannsóknir við Egilsbraut - Aukafjárveiting. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2605003 - Þríhliða samkomulag - lóð fyrir verslun. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2605004 - Ósk um stöðuyfirlit skipulagsmála vegna samkomulags um þróun hjúkrunarheimilis í Þorlákshöfn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
28. 2605002F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 114
Fundargerð 114.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 11.05.2026 til staðfestingar.

1. 2603068 - Hjarðarból - útvíkkun deiliskipulags - DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
2. 2603079 - Fyrirspurn um ASKbr - Samfélagsþjónustusvæði í íbúðasvæði. Tekið fyrir sérstaklega.
3. 2604057 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Vinnsluborhola við Skarðsmýrarfjall. Tekið fyrir sérstaklega.
4. 2604056 - Þorlákshafnarvegur - óverulegar breytingar aðliggjandi DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
5. 2601075 - Þorlákshafnarvegur deiliskipulag. Tekið fyrir sérstaklega.
6. 2604019 - Skilagrein fyrir sorphirðu í sveitafélaginu Ölfus árið 2025. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
7. 2403014 - Fjölnota Íþróttahús. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
8. 2402017 - Grímslækjarheiði - Hraunkvíar DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
9. 2602009 - Árbær 4 - Dýraspítali og verslunarlóðir - DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
10. 2605007 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Gatnagerð Hraunkvíar. Tekið fyrir sérstaklega.
11. 2601077 - Tangagljúfur og Háagljúfur - AT6 DSK. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
12. 2605011 - Tangagljúfur og Háagljúfur - AT6, ÍB36 og VÞ20 óv. ASKbr. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
13. 2503002 - Umsögn um starfsleyfi - Radar til fuglarannsókna á Mosfellsheiði. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
29. 2605003F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 53
Fundargerð 53.fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 11.05.2026 til staðfestingar.

1. 2604025 - Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð Ölfuss 2026. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
2. 2604066 - Ársreikningur Mannbjargar 2025. Til kynningar.
3. 2605012 - Reikningar 2025 UMF Þórs og deilda. Til kynningar.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
30. 2605004F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 85
Fundargerð 85.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 20.05.2026 til staðfestingar.

1. 2604064 - Flataskersbryggja - útboð. Til kynningar.
2. 2601048 - Framkvæmdaráætlun 2025-26. Til kynningar.
3. 2605043 - Brunavarnaráætlun BÁ 2026-2031. Til kynningar.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.

31. 2605006F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 115
Fundargerð 115.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 26.05.2026 til staðfestingar.

1. 2512124 - Gerðakot - Frístundahús - Nýtt deiliskipulag. Tekið fyrir sérstaklega.
2. 2605017 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Efnistaka í Núpanámu. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
3. 2605035 - Hafnarbakki 8 - óv. DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
4. 2605039 - Merkjalýsing - Breyting á lóðastærð - Sambyggð 18, Þorlákshöfn. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
5. 2605040 - Merkjalýsing - Uppskipting landeignar - Borgargerði 6 og 8. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
6. 2401047 - Þorkelsgerði 2C, nýtt DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
7. 2512049 - Kirkjuferja - Fjórar íbúarlóðir - Nýtt deiliskipulag. Tekið fyrir sérstaklega.
8. 2510075 - Hafnarsandur 2 - Stækkun lóðar vegna tengivirkis DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
9. 2605047 - Hraunskógar - Beiðni um heimild til gróðursetningar. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
10. 2505028 - Umsókn um framlengingu stöðuleyfis vindmælingartækis 2025-2026. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
11. 2605048 - Lindarbær DSK
12. 2605011 - Tangagljúfur og Háagljúfur - AT6, ÍB36 og VÞ20 óv. ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
13. 2601077 - Tangagljúfur og Háagljúfur - AT6 DSK. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
14. 2603057 - Tengivirki á Völlum - DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
15. 2512090 - Hafnarsvæði H1 - Nýtt deiliskipulag. Tekið fyrir sérstaklega.
16. 2605050 - Vesturgljúfur 8 - Athafnasvæði í Verslunar og þjónustusvæði - óv. ASKbr. Niðurstaða nefndarinnar staðfest.
17. 2602035 - Mýrarsel 9 - DSK. Tekið fyrir sérstaklega.
18. 2402060 - DSK- reit H3 á hafnarsvæði. Tekið fyrir sérstaklega.
19. 2601027 - Grásteinn - stækkun íbúðasvæðis óv. ASKbr. Tekið fyrir sérstaklega.
20. 2601076 - Grásteinn - fjölgun íbúðalóða og stækkun skipulagssvæðis - DSKbr. Tekið fyrir sérstaklega.

Fundargerðin tekin fyrir í heild sinni og hún staðfest.
32. 2605005F - Afgreiðslunefnd byggingarfulltrúa - 91
Fundargerð 91.fundar afgreiðslunefndar byggingarfulltrúa frá 20.05.2026 til kynningar.

Lagt fram til kynningar.
Fundargerðir til kynningar
33. 1603010 - Málefni fatlaðs fólks Fundargerðir stjórnar Bergrisans.
Fundargerð 93.fundar stjórnar Bergrisans bs. frá 21.04.2026 til kynningar.
Lagt fram.
34. 1701026 - Brunamál Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu
Fundargerð 36.fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 30.04.2026 til kynningar.
Lagt fram.
35. 1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
Fundargerð 998.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 08.05.2026 til kynningar.
Lagt fram.
36. 2009027 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.
Fundargerð 91.fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 02.03.2026 og 92.fundar frá 10.04.2026 til kynningar.
Lagt fram.
37. 1805041 - Menningarmál Fundargerðir stjórnar Byggðasafns Árnesinga
Fundargerð 22.fundar stjórnar Byggðasafns Árnesinga frá 18.05.2026 til kynningar.
Lagt fram.
Í fundarlok þakkaði forseti fundarmönnum fyrir gott samstarf sl. fjögur ár.

Hrönn Guðmundsdóttir og Baldur Guðmundsson tóku til máls og þökkuðu samstarfið á kjörtímabilinu.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:50 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?