Fundargerðir

Til bakaPrenta
Skipulags- og umhverfisnefnd - 120

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
21.09.2026 og hófst hann kl. 09:00
Fundinn sátu: Guðlaug Einarsdóttir varaformaður,
Geir Höskuldsson formaður,
Guðbergur Kristjánsson aðalmaður,
Bettý Grímsdóttir aðalmaður,
Guðmundur Oddgeirsson aðalmaður,
Sigurður Steinar Ásgeirsson skipulagsfulltrúi,
Fundargerð ritaði: Sigurður Steinar Ásgeirsson, Sviðsstjóri Skipulags- og lögfræðisviðs


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2609011 - Umsókn um leyfi til hænsnahalds - Oddabraut 12, 815
Húseigendur óska eftir að halda 5-6 hænur á lóð sinni, Oddabraut 12 í samræmi við reglur um dýrahald í Þorlákshöfn.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt að húseigandi megi halda allt að 6 hænur í samræmi við reglur um dýrahald í Þorlákshöfn. Leyfið er veitt til 5 ára í senn. Rétt er að árétta að heimildin er aðeins til halds hænsna, en hanar eru ekki leyfðir í þéttbýli.
2. 2609012 - Umsókn um leyfi til hænsnahalds - Reykjabraut 6, 815
Húseigendur óska eftir að halda allt að 6 hænur á lóð sinni, Reykjabraut 6 í samræmi við reglur um dýrahald í Þorlákshöfn.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt að húseigandi megi halda allt að 6 hænur í samræmi við reglur um dýrahald í Þorlákshöfn. Leyfið er veitt til 5 ára í senn. Rétt er að árétta að heimildin er aðeins til halds hænsna, en hanar eru ekki leyfðir í þéttbýli.
3. 2608072 - Nafnabreyting Staður 3 - Leiti
Landeigandi lóðarinnar Staður 3 óskar eftir að gerð sé nafnabreyting á lóðinni. Nýja nafn lóðarinnar verður Leiti.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Samþykkt.
4. 2606022 - Beiðni um heimild til takmarkaðrar efnistöku í landi Hamragils
Íþróttafélag Reykjavíkur óskar eftir heimild til efnistöku til rannsókna í aflagðri námu í landi Hamragils. Lagðar eru fram frekari upplýsingar sbr. bókun af fundi nefndarinnar í júní 2026.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Guðbergur Kristjánsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Nefndin telur enn margt óljóst um hvernig fyrirhugaðri efnistöku yrði háttað. Svæðið er vissulega raskað en þó er ljóst að áframhaldandi efnistaka myndi raska enn meira svæði og hugsanlega spilla möguleikum svæðisins til útivistar. Að því sögðu telur nefndin að sú takmarkaða efnistaka sem sótt er um nú muni ekki hafa umhverfisáhrif í för með sér og sé því ekki framkvæmdaleyfisskyld.
5. 2609017 - Riftún Sumarhúsalóð - DSK
Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir sumarhúsalóðina Riftún. Á lóðinni verði heimilt að byggja sumarhús ásamt gestahúsi í samræmi við ákvæði aðalskipulags Ölfuss.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
6. 2609020 - Umferðaröryggi í búðahverfi - Beiðni um lokun tengingar úr biskupabúðum í Faxabraut
Lagt er fram erindi íbúa í búðahverfi varðandi umferðaröryggi í búðahverfi. Biskupabúðir er íbúðargata en tenging hennar við Faxabraut gerir það að verkum að hún er nýtt sem akstursleið að hesthúsahverfi og að fiskeldum á Laxabraut. Hraðaksturs hefur ítrekað orðið vart í gegnum hverfið sem getur skapað hættu fyrir börn sem þar búa. Þá liggur þessi leið einnig gegnum grunnskólasvæði Þorlákshafnar og því í raun ekki heppileg umferðarleið m.t.t. umferðaröryggis í bæjarbúa. Þess er farið á leit að biskupabúðum verði lokað sem akstursleið þannig að umferð í hesthúsahverfi og að fiskeldum fari framvegis um Laxabraut.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin telur mögulega ákjósanlegt að loka þessari leið, sérstaklega meðan framkvæmdir eru í gangi vegna grunnskólans. Kalla þarf eftir áliti hestamannafélagsins áður en ákvörðun er tekin.
7. 2401047 - Þorkelsgerði 2C, nýtt DSK
-Endurkoma, endurauglýst þar sem 12 mánuðir eru liðnir frá lokum auglýsingarfrests. Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir spilduna Þorkelsgerði 2c. Í skipulaginu felst að landinu er skipt upp í 4 lóðir, eina íbúðarhúsalóð og 3 frístundahúsalóðir.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
8. 2609031 - Akurgerði - stækkun byggingarreits Óv. DSKbr
Lagt er fram deiliskipulagsbreyting fyrir landið Akurgerði. Breytingin felur í sér aðnýjum byggingarreitum B3 og B4 bætt við utan um þær byggingar sem fyrir eru á skipulagssvæðinu auk skilmála. Heitinu smáhýsi í greinargerð er breytt í gistihús. Breyting deiliskipulags er í samræmi við aðalskipulag þar sem jörðin samræmist heimildum landbúnaðarlands með skilmálum til fastrar búsetu.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr 123/2010.
9. 2605050 - Vesturgljúfur 8 - Athafnasvæði í Verslunar og þjónustusvæði - óv. ASKbr
Lögð er fram óveruleg aðalskipulagsbreyting fyrir lóðirnar Vesturgljúfur 2-8. Breytingin felur í sér að landnotkun er breytt úr athafnasvæði í Verslunar og Þjónustusvæðið VÞ26.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt með fyrirvara um samþykki þeirra lóðarhafa sem skipulagsbreytingin tekur til. Breytingin felur í sér að athafnasvæði er breytt í verslunar og þjónustusvæði sem almennt myndi teljast minna íþyngjandi fyrir nærliggjandi íbúa. Er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna tillöguna fyrir nærliggjandi lóðum og ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010.
10. 2609032 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Niðurrennslislögn á Hellisheiði
ON (Orka Náttúrunnar) hyggst stækka niðurrennslissvæði Hellisheiðarvirkjunar og hefja niðurrennsli í tvær holur nærri Gígahnúk og tvær holur nærri Lakahnúkum. Holur við Lakahnúka hafa verið nýttar til niðurrennslis í mörg undanfarin ár og í dag liggur að þeim bráðabirgðalögn sem er ofanjarðar. Holur við Gígahnúk hafa fram til þessa ekki verið nýttar til niðurrennslis, en þær voru á sínum tíma boraðar sem mögulegar vinnsluholur. Framkvæmdin felst í að lögð verður ný neðanjarðarlögn að holunum að undanskildum stuttum kafla undir Hringveg. Þar verður núverandi lögn nýtt áfram en að öðru leyti verður bráðabirgðalögnin tekin niður.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.
11. 2609033 - Aðstöðuumbætur í Skötubót - beiðni um heimild til að gera tröppur og útisturtu
Fjörugufan hefur verið með gusu í Þorlákshafnarfjöru neðan við golfvöll Þorlákshafnar. Viðtökur hafa verið vonum framar og fóru yfir 100 manns í fjörugufu fyrsta mánuðinn sem hún var starfrækt. Fyrirsvarsmönnum fjörugufunar langar til að bæta og efla aðkomu niður í fjöruna sem myndi nýtast bæði gestum Fjörugufunnar en einnig almenningi sem leggur leið sína í Þorlákshafnarfjöru. Að auki er óskað eftir heimild til að staðsetja útisturtu í fjörunni fyrir gesti Fjörugufunnar.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin er jákvæð fyrir erindinu og samþykkir fyrir sitt leyti en umfjöllun um fjárveitingu er vísað til bæjarráðs.
12. 2609034 - Laut - 3 íbúðalóðir - nýtt DSK
Landeigandi að Laut leggur fram beiðni um að gera deiliskipulag fyrir landið. Deiliskipulagið myndi fela í sér að landinu er skipt í 3 ibúðalóðir.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Frestað.
13. 2609006 - Gönguþverun Ölfusbraut
Lagðar eru fram 3 tillögur að gönguþverun yfir Ölfusbraut.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin velur leið 3.
14. 2609018 - Rannsóknarborholur í Meitlum - fyrirspurn um málsmeðferð
Orkuveita Reykjavíkur leitar til Sveitarfélagsins með ósk um afstöðu gagnvart fyrirhugaðri jarðhitaleit í sunnanverðum Meitlum. Fyrirtækið óskar eftir samráði og leiðsögn um hvort og þá hvernig best sé að koma málinu í farveg.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin hefur áður synjað málum er varða rannsóknarboranir í Meitlum sunnanverðum. Afstaða nefndarinnar er óbreytt.
15. 2608029 - Leyfi til að dreifa PheLyz (lífhvata VAXA) á landi í Ölfusi
Vaxa hefur óskað eftir heimild til að dreifa lífrænu jarðbætiefni (PheLys) á opin og óbyggð svæði auk skógræktar- og landgræðslusvæða í þeim tilgangi að bæta jarðvegsgæði og stuðla að aukinni kolefnisbindingu.
Jafnframt er óskað eftir heimild til að stunda mælingar á bindingu CO2 sem af framangreindri dreifingu leiðir til að öðlast rétt til að hagnýta sér ávinning af aukinni bindingu CO2 í jarðvegi þess lands sem dreift hefur verið á, þ.e. tryggja sér réttindi til að fella staðfesta losun inn í kolefnisbókhald afurða sinna.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Varðandi Engidalssvæðið er umfjöllun vísað til Fjallskilanefndar til umsagnar. Að fenginni jákvæðri umsögn er Vaxa veitt heimild til að dreifa Phelys á umræddum svæðum í rannsóknarskyni. Heimildin er víkjandi og áskilur sveitarfélagið sér rétt til að afturkalla hana að öllu leyti eða hluta ef ákveðið er að nota landsvæðið til annars síðar.

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 11:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?