| |
| 1. 2607011 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Austurveita | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt | | |
|
| 2. 2511027 - Bolaölduvirkjun ASKbr | |
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 30. gr. og 2. málsgrein 32. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
Fært til bókar á fundi - Guðmundur Oddgeirsson Ég greiði atkvæði gegn fyrirliggjandi aðalskipulagsbreytingu og virkjunaráformum við Fjallið eina og er sammála athugasemdum Náttúruverndarstofnunar sem m.a. segir „Náttúruverndarstofnun áréttar að fyrirhuguð uppbygging mannvirkja réttlætir ekki sjálfkrafa röskun á hrauni sem nýtur verndar samkvæmt náttúruverndarlögum“ . Einnig bendir Náttúrverndarstofnun á að „haldbæran rökstuðning fyrir því að hagsmunirnir af framkvæmdinni séu bæði brýnir og almennir og vegi þyngra en þau náttúruverðmæti sem í húfi eru“. Guðmundur Oddgeirsson fulltrúi S-listans.
Fært til bókar á fundi - fulltrúar D-lista
Þessi breyting er eingöngu til rannsókna á svæðinu til að kanna getu þess til orkuvinnslu, verkefnið er í rammaáætlun og orkuþörfin er mikil. Mótvægisaðgerðir við raski á náttúru eru í skipulaginu þar sem gæta skal að umhverfinu eins og kostur er. Áður en leyfi er veitt fyrir framkvæmd sem raskar eldhrauni þarf að liggja fyrir umfjöllun um verndargildi, rökstyðja brýna nauðsyn framkvæmdar og fjalla um hvernig reynt var að lágmarka rask og hvort önnur útfærsla sem hefði minni eða engin áhrif á eldhraun var möguleg. Einnig hefur verkefnisstjórn rammaáætlunar veitt Bolaölduverkefninu góðar einkunnir, sérstaklega þegar litið er til rasks og áhrifa á náttúru sem og samfélagslegra áhrifa í samanburði við önnur verkefni sem voru metin. Einnig kemur fram í Orku og auðlindastefnu Ölfuss að „Til að tryggja sem sjálfbærasta nýtingu og vandaða umgengni um auðlindir í sveitarfélaginu leggur sveitarfélagið áherslu á að kortleggja áherslusvæði auðlindanýtingar og stuðla að vönduðum rannsóknum og uppsöfnun þekkingar hvað þær varðar.“
Fulltrúar D-listans
Erindið var borið upp til atkvæðagreiðslu
Á móti Guðmundur Oddgeirsson S-lista
Með Geir Höskuldsson D-lista Guðbergur Kristjánsson D-lista Bettý Grímsdóttir D-lista Guðlaug Einarsdóttir D-lista
| | |
|
| 3. 2607014 - Selfosslína 1 - óveruleg ASKbr | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt. Er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr 123/2010. | | |
|
| 4. 2607023 - Rauðilækur 3 - Nýtt deiliskipulag | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Með fyrirvara um staðfestingu á afhendingu á köldu vatni. | | |
|
| 5. 2606045 - Óseyrartangi - Stækkun lóðar hótels - Óv. DSKbr | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags og byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Með fyrirvara um samþykkt landeiganda. | | |
|
| 6. 2504076 - Hafnarsvæði H3 og samfélagsþjónustusvæði S4 - stækkun skipulagssvæðis - ASKbr | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 3. mgr. 30. gr. og 2. málsgrein 32. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. | | |
|
| 7. 2607028 - Klettagljúfur 21 - Nýtt deiliskipulag | |
| Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Synjað. Samkvæmt aðalskipulagi er hámarks heimild til að vera með parhús á íbúðarsvæðum í dreifbýli. | | |
|