Fundargerðir

Til bakaPrenta
Íþrótta- og tómstundanefnd - 55

Haldinn Fundarsalur íþróttamiðstöðvar,
01.10.2026 og hófst hann kl. 10:00
Fundinn sátu: Davíð Arnar Ágústsson formaður,
Sigríður María B.Fortescue varaformaður,
Sævar Elí Kjartansson aðalmaður,
Ingunn Guðnadóttir aðalmaður,
Pálmi Þór Ásbergsson aðalmaður,
Ragnar M. Sigurðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi,
Fundargerð ritaði: Ragnar M. Sigurðsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2609056 - Erindi frá spinning iðkendum
1. Endurnýjun spinninghjóla. Erindi frá spinningiðkendum
Nefndin tekur undir mikilvægi góðrar og öruggrar aðstöðu til spinningiðkunar og telur mikilvægt að huga að endurnýjun hjólanna með markvissum og raunhæfum hætti.
Nefndin leggur til að ástand núverandi hjóla, kostnaður við endurnýjun og möguleg áfangaskipting verði skoðuð.
Málinu vísað til fjárhagsáætlunarvinnu bæjarráðs fyrir árið 2027
2. 2609057 - Tillögur til fjárhagsáætlunar frá íþrótta- og tómstundafulltrúa
2. Tillögur til fjárhagsáætlunar 2027 frá íþrótta- og tómstundafulltrúa.
Íþrótta- og tómstudnafulltrúi lagði fram til kynningar vinnuskjal með tillögum til fjárhagsáætlunar 2027.
3. 2609058 - Tillaga að skipan ungmennaráðs 2027
3. Skipan ungmennaráðs 2026 - 2027
Íþrótta- og tómstundafulltrúi lagði fram til kynningar tillögum að skipan ungmannaráðs 2026 ? 2027 og fór yfir starfsemi ráðsins. Bæjarstjórn samþykkir skipan ráðsins.
4. 2609059 - Minnisblað um framtíðarsýn, Húsnæði og aðstaða til íþróttaiðkunar

4. Uppbygging íþróttamannvirkja, Erindi frá stjórn Umf. Þórs
Nefndin telur mikilvægt að aðstaða þróist í takt við fjölgun íbúa og auknar þarfir íþróttastarfs. Sérstaklega verði horft til klefaaðstöðu, styrktar- og líkamsræktaraðstöðu, fjölnota rýma og fjölnota íþróttahúss.
Nefndin leggur til að gerð verði heildstæð greining á núverandi aðstöðu og framtíðarþörf, þar á meðal fyrirhugaðri viðbyggingu við íþróttamiðstöðina. Jafnframt verði metið hvort endurskoða þurfi fyrirhugaða útfærslu viðbyggingarinnar með tilliti til framtíðarþarfa íþróttastarfs.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að stofnaður verði vinnuhópur sem móti framtíðarsýn, forgangsröðun og næstu skref í samráði við íþróttafélög og aðra hagsmunaaðila.
Málinu vísað til fjárhagsáætlunarvinnu bæjarráðs fyrir árið 2027



5. 2609060 - Minnisblað um ráðningu framkvæmdastjóra
5. Rekstrarumgjörð íþróttafélaganna í Ölfusi. Erindi frá formönnum Umf. Þórs og Knattspyrnufélaginu Ægi
Íþrótta- og tómstundanefnd hefur tekið til umfjöllunar minnisblað formanna UMF Þórs og Knattspyrnufélagsins Ægis umráðningu framkvæmdastjóra og rekstrarumgjörð íþróttafélaganna í Ölfusi.
Nefndin telur mikilvægt að tryggja faglega og sjálfbæra umgjörð um starf félaganna og leggur til að farið verði yfir fyrirkomulag framkvæmdastjórastöðu, fjármögnun hennar og mögulega aðkomu sveitarfélagsins að skrifstofurekstri og bókhaldi.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að stofnaður verði vinnuhópur, í samráði við íþróttafélögin, sem leggi fram tillögur að framtíðarfyrirkomulagi og fjármögnun.
Málinu vísað til fjárhagsáætlunarvinnu bæjarráðs fyrir árið 2027
6. 2609065 - Tillaga frá Pálma Ásbergssyni
6. Tillaga frá Pálma Ásbergsyni um kaup á sex manna rafmagnshjóli.
Hjólið er hugsað til að keyra börn frá Leikskólanum Hraunheimum á æfingar í íþróttamiðstöðinni.
Með tilkomu Leikskólans Hraunheima hefur skapast sú áskorun að fjarlægð leikskólans frá íþróttahúsinu gerir það fyrirkomulag sem tíðkast hefur í Leikskólanum Bergheimum erfiðara. Því er lagt til að fjárfesta í rafmagnshjóli til að auðvelta flutning barnanna á æfingar.
Kostnaður gæti numið allt að kr. 2.000.000
Lagt er til að Leikskólinn Hraunheimar og íþróttafélögin komi sér saman um hvernig staðið verði að flutningunum
Tilllagan samþykkt samhljóða og vísað til bæjarráðs við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027

7. 2604025 - Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð Ölfuss 2026
Umsóknir í afreks- og styrktarsjóð
Alls bárust fjórar umsóknir að þessu sinni.
Eftirfarandi styrkveitingar voru samþykktar.
Styrmir Snær Þrastarson sem er í A ? landsliði karla um kr. 150.000 vegna undankeppni HM í körfuknattleik.
Önnu Laufey Gestsdóttir um kr. 25.000 vegna ferðakostnaðar með knattspyrnuliði kvenna hjá Umf. Selfoss.
Olga Lind Gestsdóttir um kr. 25.000 vegna ferðakostnaðar með knattspyrnuliði kvenna hjá Umf. Selfoss.
Guðrún Olga Garðarsdóttir um kr. 50.000 vegna námskeiðs í fimleikaþjálfun


Nefndin samþykkti á fundinum að fara í endurskoðun á úthlutunarreglum þannig að endurskoðaðar úthlutunarreglur verði tilbúnar fyrir næstu úthlutun í apríl næstkomandi. Markmiðið með endurskoðuninni er að gera reglurnar einfaldar og skýrar.


Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?