Fundargerðir

Til bakaPrenta
Ungmennaráð - 7

Haldinn í Ráðhúsi Ölfuss,
28.09.2026 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu: Eva Rán Ottósdóttir aðalmaður,
Gunnar Ægir Þorsteinsson aðalmaður,
Freyja Ósk Ásgeirsdóttir aðalmaður,
Hreiðar Leó Vilhjálmsson aðalmaður,
Védís Kolka Haraldsdóttir aðalmaður,
Ragnar M. Sigurðsson íþrótta- og tómstundafulltrúi,
Fundargerð ritaði: Ragnar M Sigurðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi


Dagskrá: 
Almenn mál
1. 2410051 - Erindisbréf fyrir Ungmennaráð Ölfuss
Erindisbréf Ungmennaráðs Ölfuss
Farið var yfir erindisbréf Ungmennaráðs Ölfuss. Þar er meðal annars fjallað um hlutverk ráðsins, skipan þess og starfshætti. Samkvæmt erindisbréfinu á ráðið að gæta hagsmuna ungmenna, gefa þeim færi á að koma sjónarmiðum sínum til skila og vera bæjarstjórn til ráðgjafar um málefni ungs fólks.
2. Kynning ungmennaráðs og tillögukassi
Rætt var um að formaður færi með íþrótta- og æskulýðsfulltrúa í efstu bekki grunnskólans í næstu viku fyrir hönd ungmennaráðs. Þau myndu kynna starf ungmennaráðsins fyrir nemendum og segja þeim hvernig þeir geta komið sjónarmiðum sínum á framfæri. Um leið yrði settur upp tillögukassi þar sem ungmenni geta látið rödd sína heyrast og sent ráðinu hugmyndir og ábendingar. Ungmennaráð mun síðan setjast niður og fara yfir svörin sem berast.
3. Opinn fundur og viðburðir fyrir ungmenni
Rætt var um að halda opinn fund fyrir ungmenni í kringum hrekkjavöku. Þar fengi ungmennaráð tækifæri til að kynna starf sitt og heyra sjónarmið, hugmyndir og tillögur annarra ungmenna. Fram komu hugmyndir um að gera fundinn að viðburði, kynna hann vel, fá Þolloween til að auglýsa hann og mögulega hafa bingó. Einnig var rætt um að halda piparkökuskreytingar fyrir jól. Ráðið ætlar að setjast niður á næsta fundi og ræða nánar fyrsta viðburðinn og hvernig hann verði útfærður.
4. Fundur með bæjarstjóra
Rætt var um að óska eftir fundi með bæjarstjóra sem fyrst til að fá kynningu á stjórnsýslu sveitarfélagsins og kynnast bæjarskrifstofunni. Fundarmenn lýstu miklum áhuga á því og vildu leggja áherslu á að koma fundinum á.
5. Samfélagsmiðlar
Rætt var um að stofna samfélagsmiðlasíðu ungmennaráðs sem fyrst til að kynna starf ráðsins og auglýsa viðburði. Formaður ætlar að stofna síðuna áður en farið verður í grunnskólann til að kynna starfið, svo hægt verði að benda nemendum á hana í kynningunni.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:00 

Til bakaPrenta
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?