Fjölskylduskemmtun og jólaljósin tendruð

? Fjölskylduskemmtun í Skrúðgarðinum ?

Jólaljósin verða tendruð á bæjarjólatrénu föstudaginn 27. nóvember kl. 17:00 í Skrúðgarðinum.

Komdu og taktu þátt í notalegri og skemmtilegri fjölskyldustund þegar við tendrum jólaljósin og setjum sannkallaðan jólablæ á bæinn! ✨

? Lúðrasveitin leikur jólalög
? Barnakór grunnskólans syngur
? Grýla og Skjóða mæta hressar og kátar
? Jólasveinarnir láta að sjálfsögðu sjá sig og skemmta gestum með látum!

Fallega, jarðfasta grenitréð í Skrúðgarðinum verður í ár okkar bæjarjólatré og fær að klæðast glitrandi jólaljósum í tilefni jólanna. ✨?

Hlökkum til að sjá ykkur í Skrúðgarðinum og eiga saman notalega jólastund!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?