Vilt þú fá heimsóknarvin ?

Sveitarfélagið Ölfus og Rauði krossinn bjóða upp á heimsóknavinaþjónustu fyrir einstaklinga sem vilja félagsskap, spjall eða samveru. Heimsóknavinir eru þjálfaðir sjálfboðaliðar sem heimsækja fólk reglulega og stuðla að auknum félagslegum tengslum.

Þeir sem hafa áhuga á að fá heimsóknavin, eða vilja fá nánari upplýsingar, geta haft samband við Bylgju Sjöfn Jónsdóttur hjá Rauða Krossinum, bylgjas@redcross.is

Þátttaka í verkefnum Rauða krossins - Rauði krossinn á Íslandi

Heimsóknavinir hitta einstaklinga á heimilum þeirra. Staðsetning og tímasetning er samkomulagsatriði milli sjálfboðaliða og gestgjafa en miðað er við fjórar heimsóknir á mánuði, klukkustund í senn. Misjafnt er hvað felst í heimsóknum en það getur t.d. verið spjall við eldhúsborðið, að spila, kíkja á viðburði eða fara á kaffihús, allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.

Sjá nánar um verkefnið í Ölfusi

Sjá nánar um vinaverkefni Rauða Krossins

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?