361.fundur bæjarstjórnar Ölfuss

FUNDARBOÐ

361. fundur bæjarstjórnar

verður haldinn í Ráðhúsi Ölfuss, fimmtudaginn 24. september 2026 og hefst kl. 16:30.

Dagskrá :

Almenn mál

1.

2607021 - Eima - Deiliskipulagsbreyting - Landbúnaðarlóðir

 

Lögð er fram deiliskipulagsbreyting fyrir Eimu í Selvogi. Breytingin felur í sér útvíkkun deiliskipulagsins og að bætt verði við 5 lóðum norðan Suðurstrandarvegar.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin vill vekja athygli á að uppbygging á syðra svæðinu er orðin nokkuð þétt og ekki í fullu samræmi við strjálbýlisákvæði. Selvogur er merkilegt minjasvæði sem ber að varðveita og því telur nefndin rétt að deiliskipulagsbreytingin verði grenndarkynnt sérstaklega samhliða auglýsingu.

Málið var tekið til atkvæðagreiðslu: Samþykkt með 4 atkvæðum D lista 1 atkvæði S lista á móti

Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal grenndarkynnt fyrir öðrum íbúum á svæðinu.

Berglind Friðriksdóttir S-lista lagði fram eftirfarandi bókun: Selvogur er einstakt menningar- og búsetulandslag þar sem saga byggðar, fornminjar, lágreist byggð, víðsýni og kyrrð mynda eina heild. Sérstaða svæðisins felst því ekki aðeins í einstökum skráðum minjum heldur einnig í samhengi þeirra við landslagið, byggðarmynstrið og þá ásýnd sem einkennir Selvog.
Í Aðalskipulagi Ölfuss 2020-2036 er Selvogur skilgreindur sem hverfisverndarsvæði og þar er sérstaklega vísað til mikilla minja um byggð. Jafnframt kemur þar fram sú stefna sveitarfélagsins að vinna skuli að deiliskipulagi, rammahluta aðalskipulags eða verndarsvæði í byggð sem taki til verndunar umhverfis, byggðar og hugsanlegrar framtíðaruppbyggingar á svæðinu.
Þá hefur sveitarfélagið áður lagt áherslu á að byggðamynstur Selvogs sé strjálbýlt og að ekki séu þar þyrpingar húsa. Við fyrri deiliskipulagsgerð fyrir Eimu var sérstaklega lögð áhersla á að hús yrðu stakstæð og í samræmi við þetta byggðamynstur.
Nú liggur hins vegar fyrir tillaga sem felur í sér umtalsverða aukningu á byggingarheimildum á svæðinu, m.a. með nýjum lóðum og heimildum fyrir íbúðar-/frístundabyggð, gestahúsum og ferðaþjónustu.
Undirrituð telur að við mat á slíkri uppbyggingu verði ekki eingöngu horft til þess hvort hægt sé að halda einstökum fornleifum óskemmdum. Ný uppbygging getur raskað þeirri heild án þess að einni einustu tóft sé raskað með beinum hætti. Meta verður áhrif uppbyggingarinnar á menningarlandslagið sem heild, þar með talið landslag, byggðamynstur, minjar, ásýnd, víðsýni og upplifun svæðisins.
Sérstök ástæða er til að staldra við að nefndin hefur áður bent á að umfjöllun um MV4 í aðalskipulagi skorti þar sem skipulagið liggur yfir það svæði. Nefndin gerði jafnframt athugasemdir við umfang byggingarheimilda, m.a. mænishæð, staðsetningu byggingarreita og fjölda samliggjandi lóða á landbúnaðarsvæði.
Að mati undirritaðrar hefur ekki verið sýnt fram á með nægilega heildstæðum hætti að fyrirhuguð uppbygging samræmist þeirri hverfisvernd og þeim verndarsjónarmiðum sem sveitarfélagið hefur sjálft sett fyrir Selvog. Ekki liggur heldur nægilega skýrt fyrir hvaða áhrif sú uppbygging sem hér um ræðir getur haft á heildarmynd Selvogs og framtíðarþróun svæðisins.

 

   

2.

2608039 - Umsókn um deiliskipulag -eða breytingu - Kinn (L212149), Ölfus

 

Lögð er fram breyting á deiliskipulagi fyrir Kinn í Ölfusi. Með deiliskipulagsbreytingunni er breytt nýtingarhlutfall lóðar í samræmi við aðalskipulagsbreytingu, dags. 26.01.2023, fyrir landbúnaðarsvæði L1, lóðarstærð yfir 3 ha. Heimild er til að nýtingarhlutfall lóðar megi vera allt að 0,15. Breyting á greinagerð: Byggingareitur 1: Heimilt er að byggja allt að 230 m2 íbúðarhús á 1 hæð, ásamt allt að 70 m2 bílskúr eða samt. 300 m2. Byggingareitur 2: Heimilt er að byggja gróðurhús og tilheyrandi geymslu- og aðstöðuhús allt að 5.600 m2. Mænishæð allt að 6 m frá gólfplötu. Byggingareitur 3: Heimilt er að byggja gróðurhús úr stálgrind með plastdúk og tilheyrandi aðstöðu allt að 700 m2. Mænishæð allt að 4 m frá gólfhæð. Heildarbyggingamagn verði þá mest 6.600 m2. Nýtingahlutfall lóðar verði þá mest 0,15.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

3.

2603068 - Hjarðarból - útvíkkun deiliskipulags - DSKbr

 

Endurkoma eftir athugasemdaferli
Skipulagið var auglýst en aðeins Vegagerðin gerði athugasemdir. Gerðar voru breytingar til að bregðast við umsögninni.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. grein skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

4.

2606035 - Árbæjarhverfi - Breyting landnotkunar úr samfélagsþjónustu í íbúðasvæði ASKbr

 

Lögð er fram aðalskipulagsbreyting er snýr að Árbæjarhverfi í Ölfusi. Í breytingunni felst að samfélagsþjónustusvæði S16 víkur fyrir stækkun íbúðasvæðisins ÍB 13.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

5.

2401047 - Þorkelsgerði 2C, nýtt DSK

 

Endurkoma, endurauglýst þar sem 12 mánuðir eru liðnir frá lokum auglýsingarfrests. Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir spilduna Þorkelsgerði 2c. Í skipulaginu felst að landinu er skipt upp í 4 lóðir, eina íbúðarhúsalóð og 3 frístundahúsalóðir.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

6.

2609031 - Akurgerði - stækkun byggingarreits Óv. DSKbr

 

Lagt er fram deiliskipulagsbreyting fyrir landið Akurgerði. Breytingin felur í sér að nýjum byggingarreitum B3 og B4 bætt við utan um þær byggingar sem fyrir eru á skipulagssvæðinu auk skilmála. Heitinu smáhýsi í greinargerð er breytt í gistihús. Breyting deiliskipulags er í samræmi við aðalskipulag þar sem jörðin samræmist heimildum landbúnaðarlands með skilmálum til fastrar búsetu.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgrein 43. greinar skipulagslaga nr 123/2010.

 

   

7.

2605050 - Vesturgljúfur 8 - Athafnasvæði í Verslunar og þjónustusvæði - óv. ASKbr

 

Lögð er fram óveruleg aðalskipulagsbreyting fyrir lóðirnar Vesturgljúfur 2-8. Breytingin felur í sér að landnotkun er breytt úr athafnasvæði í verslunar og þjónustusvæðið VÞ26.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Aðalskipulagsbreytingin er samþykkt með fyrirvara um samþykki þeirra lóðarhafa sem skipulagsbreytingin tekur til. Breytingin felur í sér að athafnasvæði er breytt í verslunar og þjónustusvæði sem almennt myndi teljast minna íþyngjandi fyrir nærliggjandi íbúa. Er það mat nefndarinnar með hliðsjón af eðli, umfangi og áhrifum á ytri aðila að breytingin falli undir 2. mgr. 36. gr. og teljist óveruleg í skilningi skipulagslaga. Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna tillöguna fyrir nærliggjandi lóðum og ganga frá málinu í samræmi við 2. málsgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

8.

2609017 - Riftún Sumarhúsalóð - DSK

 

Lagt er fram nýtt deiliskipulag fyrir sumarhúsalóðina Riftún. Á lóðinni verði heimilt að byggja sumarhús ásamt gestahúsi í samræmi við ákvæði aðalskipulags Ölfuss.

Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.

 

   

9.

2609032 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Niðurrennslislögn á Hellisheiði

 

ON (Orka Náttúrunnar) hyggst stækka niðurrennslissvæði Hellisheiðarvirkjunar og hefja niðurrennsli í tvær holur nærri Gígahnúk og tvær holur nærri Lakahnúkum. Holur við Lakahnúka hafa verið nýttar til niðurrennslis í mörg undanfarin ár og í dag liggur að þeim bráðabirgðalögn sem er ofanjarðar. Holur við Gígahnúk hafa fram til þessa ekki verið nýttar til niðurrennslis, en þær voru á sínum tíma boraðar sem mögulegar vinnsluholur. Framkvæmdin felst í að lögð verður ný neðanjarðarlögn að holunum að undanskildum stuttum kafla undir Hringveg. Þar verður núverandi lögn nýtt áfram en að öðru leyti verður bráðabirgðalögnin tekin niður.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.

 

   

10.

2609007 - Umsókn um framkvæmdaleyfi - Endurheimt votlendis að sogni

 

Lögð er fram beiðni um framkvæmdaleyfi er snýr að endurheimtingu votlendis á 25 ha svæði á jörðinni Sogn L171801. Fyrirhugað er að fylla uppí/stífla 4264 metra af skurðum.
Afgreiðsla Skipulags- og umhverfisnefndar: Framkvæmdaleyfi veitt.

 

   

11.

2609018 - Rannsóknarborholur í Meitlum - fyrirspurn um málsmeðferð

 

Orkuveita Reykjavíkur leitar til Sveitarfélagsins með ósk um afstöðu gagnvart fyrirhugaðri jarðhitaleit í sunnanverðum Meitlum. Fyrirtækið óskar eftir samráði og leiðsögn um hvort og þá hvernig best sé að koma málinu í farveg.
Afgreiðsla skipulags- og umhverfisnefndar: Nefndin hefur áður synjað málum er varða rannsóknarboranir í Meitlum sunnanverðum. Afstaða nefndarinnar er óbreytt.

 

   

Fundargerðir til staðfestingar

12.

2609001F - Bæjarráð Ölfuss - 472

 

Fundargerð 472.fundar bæjarráðs frá 03.09.2026 til staðfestingar.

 

   

13.

2608009F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 54

 

Fundargerð 54.fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 27.08.2026 til staðfestingar.

 

   

14.

2609004F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 89

 

Fundargerð 89.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 16.09.2026 til staðfestingar.

 

   

15.

2609002F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 119

 

Fundargerð 119.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 04.09.2026 til staðfestingar.

 

   

16.

2609006F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 120

 

Fundargerð 120.fundar skipulags- og umhverfisnefndar frá 21.09.2026 til staðfestingar.

 

   

Fundargerðir til kynningar

17.

1701032 - Fræðslumál Fundagerðir stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga.

 

Fundargerð 220.fundar stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga frá 25.08.2026 til kynningar.

 

   

18.

1701026 - Brunamál Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu

 

Fundargerð 6.fundar stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 18.08.2026 til kynningar.

 

   

19.

1603005 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

 

Fundargerð 1001.fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28.08.2026 til kynningar.

 

   

20.

2009027 - Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

 

Fundargerð 93.fundar stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga frá 27.04.2026, 94.fundar frá 18.06.2026, 95.fundar frá 07.08.2026 og 96.fundar frá 21.08.2026 til kynningar.

 

   

21.

1602012 - Samstarf sveitarfélaga Fundargerðir stjórnar SASS.

 

Fundargerð 638.fundar stjórnar SASS frá 04.09.2026 til kynningar.

 

   

 

22.09.2026

Elliði Vignisson, bæjarstjóri.

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?