Bæjarhátíðin Hamingjan við hafið - dagskrá 2026

Hamingjan við hafið er bæjarhátíð okkar í Ölfusi sem haldin er árlega, aðra helgi í ágúst.

Í ár, 2026, er hátíðin 4. - 9. ágúst. Fylgist vel með Facebook síðunni "Hamingjan við hafið"

Hátíðin er fjölskyldu- og menningarhátíð og eru gestir velkomnir í Hamingjuna til að taka þátt í gleðinni. Íbúar og fyrirtæki taka virkan þátt í hátíðinni og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Íbúar eru öflugir þátttakendur og skreyta hús sín og garða í hverfislitum sem gaman er að skoða.

Dagskrá 2026

Þriðjudagurinn 4. ágúst
16:00 Leikhópurinn Lotta sýnir Litaland í Skrúðgarðinum
 
Miðvikudagur 5. ágúst
16:00 Leikir í Skrúðgarði í umsjón körfukn.deildar Þórs
17:00 Froðurennibraut við Skólann í umsjón Ægis og Brunavarna Árn.
18:00 Hverfafótbolti í umsjón Ægis
17:00 Fjörugufan - gusuupplifun í Skötubót (skráning á instagram Fjörugufunnar)
19:00 Fjörugufan - gusuupplifun í Skötubót (skráning á instagram Fjörugufunnar)
20:00 Pup quiz á Heima Bistro með Bjarna Lalla
 
Fimmtudagur 6. ágúst
16:00 Sundlaugarpartý í Sundlaug Þorlákshafnar
16:00 Fjölskyldusamvera, sögustóll og prjónahittingur í Lautinni í Skrúðgarðinum
17:00 Fjörugufan - gusuupplifun í Skötubót (skráning á instagram Fjörugufunnar)
18:00 Grill og harmonikkuball á 9-unni
19:00 Fjörugufan - gusuupplifun í Skötubót (skráning á instagram Fjörugufunnar)
19:00 Menningar og söguganga á vegum Ferðamálafélags Ölfuss, farið frá Selvogsbraut 41
21:00 Tónlistarveisla í garðinum hjá Róberti og Guðlaugu, Selvogsbraut 11
 
Föstudagurinn 7. ágúst
17:00 Söguskiltin við Selvogsbraut afhjúpuð - Sagan okkar í 75 ár
19:30 Skrúðganga frá hverfunum 
20:00 Kvöldskemmtun
- Hr. Hnetusmjör
- Emmsjé Gauti
- Kristmundur Axel
- Júlí Heiðar
- Ball með Sveitamönnum
 
Laugardagurinn 8. ágúst
10:00-12:00 Háfeti býður í heimsókn. Börnum boðið á hestbak og að klappa hestunum, heitt á könnunni
12:00-17:00 Markaður í Skrúðgarðinum
13:00 Barnadagskrá í Skrúðgarðinum
- Lalli Töframaður
- Bmx Bros
- Lína Langsokkur
- Sirkus Íslands
16:00 Street ball mót Þórs við ráðhúsið (leikið 3 á 3)
16:00 Argh - heimagallerí Reykjabraut 19. Kósí kaffihúsastemming til kl. 18:00
Hoppukastalar, veltibíllinn og wipoutbraut
Stórtónleikar á laugardagskvöld og ball ársins að því loknu
  • Bríet
  • Stefán Hilmarsson
  • KK
  • Flóni

Flugeldasýning Mannbjargar

Dansleikur í tjaldinu með Blaz Roca

Sunnudagur 9.ágúst 
8:00 opna hamingjumótið í golfi 

 

Matarvagnar á svæðinu ásamt fjölmörgum öðrum skemmtilegum viðburðum.
Frítt er á alla viðburði hátíðarinnar.
 
Hlökkum til að sjá ykkur

 

Íbúar eru hvattir til að skreyta hús sín og garð í litum regnbogans og erum öllum frjálst að velja liti.

Hin hefðbundnu litahverfi eru eftirfarandi:

- Brautir eru bláar

- Búðir gular

- Hraun og Byggðir rauð

- Bergin og götur græn (appelsínugul)

- Móar bleikir

- Dreifbýli Ölfuss fjólublátt

Það verður gaman saman í Hamingjunni

Verðlaun fyrir best skreytta húsið 

Verkefnastjóri hátíðarinnar 2026 er Sigurgeir Skafti Flosason, sigurgeirskafti@gmail.com

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?