Fjölskylduskemmtun og jólaljósin tendruð

🎄 Fjölskylduskemmtun í Skrúðgarðinum 🎄

Jólaljósin verða tendruð á bæjarjólatrénu föstudaginn 27. nóvember kl. 17:00 í Skrúðgarðinum.

Komdu og taktu þátt í notalegri og skemmtilegri fjölskyldustund þegar við tendrum jólaljósin og setjum sannkallaðan jólablæ á bæinn! ✨

🎺 Lúðrasveitin leikur jólalög
🎶 Barnakór grunnskólans syngur
👹 Grýla og Leppalúði mæta hress og kát
🎅 Jólasveinarnir láta að sjálfsögðu sjá sig og skemmta gestum með látum!

Fallega, jarðfasta grenitréð í Skrúðgarðinum verður í ár okkar bæjarjólatré og fær að klæðast glitrandi jólaljósum í tilefni jólanna. ✨🎄

Hlökkum til að sjá ykkur í Skrúðgarðinum og eiga saman notalega jólastund!

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?