Bæjarstjórn Ölfuss - 334
FUNDARBOÐ
334. fundur bæjarstjórnar verður haldinn í Ráðhúsi Ölfuss, fimmtudaginn 29. ágúst 2024 og hefst kl. 16:30.
Dagskrá :
Almenn mál
1. 2402082 - Stóragerði ASK
Endurkoma eftir athugun SLS fyrir auglýsingu.
SLS gerðu athugasemdir við aðalskipulagsbreytinguna sem bregðast þurfti við áður en
hún yrði auglýst. Skipulagshöfundur hefur lagfært tillöguna í samræmi við athugasemdir.
Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið
að auglýsa breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr.
123/2010.
2. 2309035 - ASK Meitlar og Hverahlíð II - Aðalskipulagsbreyting vegna
rannsóknaboranna.
Lögð er fram breyting á aðalskipulagi á landsvæði innan lands Hjallatorfu ofan fjalls.
Breytingin felur í sér að stofnað er iðnaðarsvæði fyrir rannsóknar- og vinnsluboranir í
Hverahlíð II. Markmið rannsóknarborananna er að kortleggja jarðhitaauðlindir utan
núverandi vinnslusvæða.
Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið
að auglýsa breytinguna og ganga frá málinu í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr.
123/2010.
3. 2406050 - Laxabraut 15-29 Landeldisstöð First Water DSK
First Water leggja fram tillögu að deiliskipulagi fyrir Laxabraut 15-29 sem mun nefnast
Laxabraut 15-23 eftir gildistöku skipulagsins. Skipulagssvæðið er rúmir 50 ha að stærð
og gerir ráð fyrir 28.000 tonna ársframleiðslu.
Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið
að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
4.
|
2401003 - DSK Kirkjuferjuhjáleiga I og Kirkjuferjuhjáleiga I, Land 4 Endurkoma eftir athugasemdaferli |
Skipulagið hefur verið auglýst og komu athugasemdir frá Vegagerðinni varðandi það að
veghelgunarsvæði skyldi sýnt á uppdrætti. Ekki voru gerðar athugasemdir af öðrum
umsagnaraðilum.
Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið
að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
5. 2408036 - Stóragerði DSK
Lagt er fram deiliskipulag fyrir landspilduna Stóragerði lóð 1. Í deiliskipulaginu er gert
ráð fyrir tveimur lóðum um 5000 m2 hvor, þar sem heimilt er að byggja upp til fastrar
búsetu og stunda minni háttar atvinnustarfsemi.
Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið
að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. málsgrein 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
6. 2406024 - Selvogsbraut 12 - stækkun verslunar DSK
Endurkoma eftir athugasemdaferli
Á auglýsingatíma barst athugasemd frá UST varðandi það að á skipulagssvæðinu megi
finna hraun. Aðrir umsagnaraðilar gerðu ekki athugasemdir. Í umsögn
Umhverfisstofnunar er áréttað að ekki megi raska hrauni nema brýnir almannahagsmunir
réttlæti röskunina. Þá segir í umsögn UST að ef leyfisveitandi veiti leyfið þurfi að
rökstyðja þá ákvörðun sérstaklega og gera grein fyrir öðrum valkostum sem skoðaðir
höfðu verið.
Afgreiðsla nefndar: Skipulagið er á svæði sem skilgreint er sem miðbæjarsvæði í
aðalskipulagi. Um er að ræða stækkun einu matvöruverslunarinnar í bæjarfélaginu sem
mikil þörf er á, enda hefur ásókn í verslunina aukist verulega á síðustu árum og
núverandi húsnæði orðið of lítið. Brýnir almannahagsmunir standa til þess að skipulagið
fái fram að ganga. Um er að ræða einu lausu lóðina í kringum verslunina og því ekki um
aðra valkosti að ræða fyrir slíka stækkun. Við byggingar á svæðinu verður þess gætt að
raska ekki hrauni nema óhjákvæmilegt sé.
Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að ganga frá málinu í
samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
7. 2303001 - DSK Skipulag Þóroddsstaðir 2 lóð D L210409
Endurkoma eftir athugasemdaferli
Minjastofnun kallaði eftir því að minjar yrðu sýndar á uppdrætti. Skipulagshöfundur
hefur lagfært skipulagið í samræmi við þessar athugasemdir.
Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið
að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
8. 2310028 - DSK deiliskipulag Hlíðarendi L171724
Endurkoma eftir athugasemdaferli.
Skipulagið hefur verið auglýst og er athugasemdaferli lokið. Skipulagið hefur verið
lagfært í takt við athugasemdir. Meðfylgjandi er einnig samantekt umsagna og viðbragða
við umsögnum.
Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið
að ganga frá málinu í samræmi við 1. málsgrein 42. greinar skipulagslaga nr. 123/2010.
9. 2408046 - Sambyggð 20 - stækkun byggingarreits óv. br. DSK
Lögð er fram óveruleg breyting á deiliskipulaginu Sambyggð. Breytingin lýtur að
stækkun byggingarreits á lóðinni Sambyggð 20. Tilgangur stækkunarinnar er að hægt sé
að koma fyrir svölum, stigahúsi og stakstæðri hjólageymslu.
Afgreiðsla nefndar: Nefndin beinir því til bæjarstjórnar að skipulags- og
byggingarfulltrúum verði heimilað að samþykkja breytinguna og ganga frá málinu í
samræmi við 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fundargerðir til staðfestingar
10. 2408005F - Skipulags- og umhverfisnefnd - 78
Fundargerð 78.fundar skipulags- og umverfisnefndar frá 21.08.2024 til staðfestingar.
11. 2408006F - Framkvæmda- og hafnarnefnd - 56
Fundargerð 56.fundar framkvæmda- og hafnarnefndar frá 21.08.2024 til staðfestingar.
12. 2408007F - Íþrótta- og tómstundanefnd - 45
Fundargerð 45.fundar íþrótta- og tómstundanefndar frá 23.08.2024 til staðfestingar.
13. 2408001F - Fjölskyldu- og fræðslunefnd - 24
Fundargerð 24.fundar fjölskyldu- og fræðslunefndar frá 14.08.2024 til staðfestingar.
Fundargerðir til kynningar
14. 2009052 - Fundargerðir Heilbrigðisnefndar Suðurlands
Fundargerð 237.fundar stjórnar Heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 20.08.2024 til
kynningar.
15. 1603010 - Málefni fatlaðs fólks Fundargerðir stjórnar Bergrisans.
Fundargerð 75.fundar stjórnar Bergrisans frá 12.08.2024 til kynningar.
16. 2302026 - Arnardrangur hses.fundargerðir stjórnar
Fundargerð 15.fundar stjórnar Arnardrangs hses. frá 12.08.2024 til kynningar.
27.08.2024
Elliði Vignisson, bæjarstjóri.