Hlíðarvatnsdagurinn 2025

Allir eru velkomnir að Hlíðarvatni í Selvogi sunnudaginn 15. júní og mega reyna fyrir sér í vatninu frá því snemma morguns og fram til kl. 17:00.

Stangaveiðifélögin, sem eru með aðstöðu við Hlíðarvatn, bjóða gestum að koma, kynna sér vatnið og veiða án endurgjalds. Þetta eru Ármenn, Stangaveiðifélagið Árblik, Stangaveiðifélag Hafnafjarðar, Stangaveiðifélag Selfoss og Stangveiðifélagið Stakkavík. Fulltrúar frá félögunum verða við skála sína og munu leiðbeina gestum um agn, veiðistaði og aðferðir.

Hvernig sem viðrar er full ástæða til að skella sér í sunnudagsbíltúr að Hlíðarvatni og njóta náttúrunnar í Selvogi.

Leyfilegt agn er fluga og spónn. Einungis er veitt frá landi. Gestir eru vinsamlegast beðnir að skrá aflann hjá einhverju félaganna. Skrá þarf veiðistað, tegund, lengd og agn. Gestum er bent á að lausaganga hunda við vatnið er óheimil.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?