Hvernig eigum við að ræða loftslagsinngrip?
Laugardaginn 3. október 2026 höldum við dagsvinnustofu í Reykjavík þar sem við viljum kanna hvernig fólk á Íslandi vill að vísindafólk og aðrir eigi samtal og samráð við samfélög um loftslagsinngrip (climate cooling/geoengineering) og aðra nýja loftslagstækni.
Við viljum sérstaklega gæta þess að samtalið takmarkist ekki við Reykjavík eða fólk úr háskóla- og loftslagsgeiranum. Við viljum því sérstaklega hvetja íbúa Þorlákshafnar og annars staðar í Ölfusi til að sýna áhuga á þátttöku.
Ölfus er sérstaklega áhugavert í samhengi rannsóknarinnar vegna þeirrar umræðu og þess samráðs sem hefur átt sér stað á svæðinu í tengslum við Carbfix og hugmyndir um móttöku, niðurdælingu og bindingu CO₂.
Við erum þó ekki að leita sérstaklega að fólki sem er með eða á móti Carbfix eða loftslagstækni. Engin fyrri þekking á loftslagsinngripum eða geoengineering er nauðsynleg.
Vinnustofan snýst um þrjár meginspurningar:
HVAÐ? Hvað ætti að ræða við samfélög um þegar kemur að nýrri loftslagstækni?
HVERNIG? Hvernig ætti slíkt samráð að fara fram og hvað gerir það raunverulega merkingarbært?
HVER? Hverjir ættu að taka þátt í þessum samtölum og hverjir ættu að hafa áhrif á ákvarðanir?
Vinnustofan fer fram á ensku og er opin fullorðnum (18+) sem búa á Íslandi. Allt að 25 þátttakendur geta tekið þátt.
📅 Laugardagur 3. október 2026
🕤 09:30–16:00
📍 Reykjavík – nákvæm staðsetning verður staðfest síðar
🍽️ Hádegismatur og veitingar verða í boði
💰 Þátttakendur fá greitt fyrir tíma sinn og framlag
🚌 Sanngjarn ferðakostnaður getur verið endurgreiddur samkvæmt fyrirfram samkomulagi
Hefur þú áhuga? Nánari upplýsingar og upplýsingar um þátttakendaleit verða birtar á Facebook-viðburðinum okkar:
[FACEBOOK EVENT LINK]
Rannsóknin er leidd við University College London (UCL) og fjármögnuð af Advanced Research and Invention Agency (ARIA).
Nánari upplýsingar: Cody Skahan – cody.skahan@anthro.ox.ac.uk