Sveitarfélagið Ölfus hefur á undanförnum árum lagt ríka áherslu á lýðheilsu, heilsueflingu, útivist og samfélagsþátttöku. Þátttaka í Íþróttaviku Evrópu er liður í þeirri stefnumótun og markar mikilvægt tækifæri til að hvetja íbúa til aukinnar daglegrar hreyfingar og efla vitund um mikilvægi virks lífsstíls.
Verkefnið BeActive Ölfus 2026 verður samfélagsverkefni þar sem sveitarfélagið leiðir saman íþróttafélög, skólasamfélagið, félagsstarf eldri borgara, fyrirtæki, heilbrigðis- og velferðarþjónustu, sjálfboðaliða og íbúa með það að markmiði að gera hreyfingu að eðlilegum hluta daglegs lífs.
Lögð verður áhersla á að nýta sérstöðu Ölfuss þar sem nálægð við náttúruna, fjölbreytt útivistarsvæði og góð íþróttaaðstaða skapa einstök tækifæri til hreyfingar fyrir alla.
Dagskrá verður kynnt þegar nær dregur.
Sjá nánar um verkefnið