Kristjana Stefáns og Tómas Jónsson

Kristjana Stefáns og Tómas Jónsson

Miðasala hefst fimmtudaginn 4. nóv. -
 
Hljómborðsleikarinn Tómas Jónsson telur niður í jólin með tónleikaröð á aðventunni þar sem hann fær til sín góða gesti sem allt er stórkostlegt tónlistarfólk. Það eru þau Bríet, KK, Kristjana Stefáns og Júníus Meyvant sem koma fram ásamt Tómasi.

Hin ástsæla tónlistarkona, Kristjana Stefánsdóttir kemur fram með Tómasi sunnudaginn 12. desember kl. 16.
Kristjana hefur verið leiðandi tónlistarkona í íslenskri jazztónlist um árabil og verðlaunað tónskáld fyrir leiksýningar og söngleiki. Hún hefur hljóðritað bæði í eigin nafni og kemur reglulega fram í útvarpi, sjónvarpi og á tónleikum, bæði hérlendis og erlendis.

Þorlákskirkja er hlý og notaleg sem hæfir tilefninu einkar vel, þar sem stemningin verður heimilisleg, svolítið eins og að fá þetta hæfileikaríka fólk heim í stofu. Þorlákskirkja er í Þorlákshöfn sem er aðeins í 30 mín. fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.

Miðaverði er 3500 kr.

Tónleikaröðin:
Bríet - fös. 26. nóv. kl. 20
KK - sunn. 5. des. kl. 20
Kristjana Stefáns - sunn. 12. des. kl. 16
Júníus Meyvant -   sunn. 19. des. kl. 16

 

 

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?