Um námskeiðið: Á námskeiðinu læra þátttakendur mismunandi
aðferðir í handmótun með leir, skreyta verkin sín með leirlitum og glerja.
Hver þátttakandi fær að taka heim einstök verk sem hann hefur hannað
og skapað sjálfur.
Kennt verður: pulsutækni, plötutækni, kúluaðferð,
skreyting með leirlitum, sgraffito tækni og glerjun og frágangur.
Öll verk verða brennd í keramikofni og þátttakendur fá tilbúin og
glæsileg verk heim að námskeiði loknu.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa áður prófað leir.
Áhersla er lögð á sköpunargleði, tilraunir og notalega stemningu í litlum
hópi.
Aldur: 5.-7. bekkur. Hámarksfjöldi 10 þátttakendur.
Dagsetning: 22. til 24. júní og 3. júlí kl. 10:00 - 12:00
Kennari: Gunnhildur Rán Gunnarsdóttir
Verð: 10.000 kr.
Staðsetning: Grunnskólinn í Þorlákshöfn
Skráning og upplýsingar: gunnhildur@olfus.is