Nýliðanámskeið ❤️ fyrir heimsóknarvini

 

Fjölskyldu- og fræðslusvið Ölfuss, Rauði krossinn, Kvenfélag Þorlákshafnar, félag eldri borgara í Ölfusi og áhugasamir sjálfboðaliðar taka höndum saman um Vinaverkefni í Ölfusi.

Vinaverkefnið snýst um að efla félagsleg tengsl, draga úr einmanaleika og skapa dýrmætar samverustundir. Hlutverk vinasjálfboðaliða er fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju. Samveran getur til dæmis falist í spjalli yfir kaffibolla, gönguferð, spilum eða öðrum sameiginlegum áhugamálum.

❤️ Nýliðanámskeið fyrir heimsóknavini

📅 Fimmtudaginn 29. október kl. 17:00–19:00

📍 Versalir

Rauði krossinn leggur áherslu á góðan undirbúning sjálfboðaliða og býður þeim fræðslu og stuðning vegna þátttöku í verkefninu.

Gefðu af tíma þínum og gerðu gæfumun í lífi annars.

Sjá nánari upplýsingar um vinaverkefnið hjá Rauða Krossinum.

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?