Pétur Jóhann í Þorlákshöfn

Pétur Jóhann ætlar að taka léttan rúnt um landið í vetur og græta landan úr hlátri 😂
Í þetta skiptið verður Pétur með splunkunýtt efni þar sem hann fer um víðan völl og lætur gamminn geysa. Einnig má gera ráð fyrir að kötturinn, Gunnþór og fleiri snillingar líti við.
Ef þér finnst gaman að hlæja og skemmta þér konunglega þá er þetta málið.
Fyrri uppistandssýningar Péturs (Óheflaður & óhæfur) nutu gríðarlegra vinsælda og voru báðar mjög langlífar.
🎟 Forsala miða hefst fim 15. feb, nánar auglýst síðar.
Miðaverð: 4.990 í forsölu / 6.500 við hurð.
Þessi sýning er unnin í samstarfi við Ungmennafélagið Þór / körfuknattleiksdeild og er fjáröflun fyrir það góða félag 🏀
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?