Skólasetning Grunnskólans í Þorlákshöfn skólaárið 2022-2023 fer fram mánudaginn 22. ágúst nk.
Nemendur í 1. bekk mæta í boðuð viðtöl hjá umsjónarkennara.
Nemendur í 2. - 5. bekk mæta kl. 11:00 í sal skólans.
Nemendur í 6. - 10. bekk mæta kl. 13:00 í sal skólans.
Foreldrar eru hjartanlega velkomnir með börnum sínum á skólasetningu.
ATH! Nýir nemendur sem hefja nám í 2. - 10. bekk eru boðnir velkomnir ásamt
forráðamanni í heimsókn til að hitta umsjónarkennara og skoða skólann kl. 13:00
föstudaginn 19. ágúst nk.
Skólastjóri