Nú styttist í skólasetningu Grunnskólans í Þorlákshöfn eftir vonandi notalegt og ánægjulegt sumarfrí hjá nemendum, foreldrum og forráðamönnum.
Stjórnendur, kennarar og starfsmenn hlakka til að taka á móti öllum nemendum og hefja nýtt og spennandi skólaár saman.
Skólasetning fer fram mánudaginn 24. ágúst.
- Nemendur í 1. bekk hitta umsjónarkennara í boðuðu viðtali.
- Nemendur í 2.–5. bekk mæta kl. 9:00 í sal skólans
- nemendur í 6.–10. bekk mæta kl. 11:00 í sal skólans.
Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir með börnum sínum á skólasetninguna.
Hittumst hress og kát og hlökkum til að taka saman fyrstu skrefin inn í nýtt skólaár!
Verið öll hjartanlega velkomin í Grunnskólann í Þorlákshöfn.